Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.03.2020, Qupperneq 30

Skinfaxi - 01.03.2020, Qupperneq 30
30 S K I N FA X I Skipulag fyrirtækja og félagasamtaka hefur breyst mikið á síðastliðnum tíu árum. Mörg þeirra virðast þó enn föst í hefð- bundnum aðferðum vanafastra stjórnenda. En fortíðin heyrir sögunni til. Félagasamtök þurfa að geta lagað sig að nýjum og breyttum tímum. Sveigjanleiki er lykilorðið í dag. Fram kemur í skýrslunni Global Human Capital Trends, sem endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtækið Deloitte vinnur reglu- lega, að sú kvöð fylgi tæknivæðingunni að allir verði að fylgja með. Stjórnendur, fyrirtæki og félagasamtök, sem fylgja ekki tímans rás, dragist hægt og rólega aftur úr og heltist að lokum úr lestinni. Það eigi bæði við um fólk og félög – ekki síður en stjórn- endur sem verða að vera fljótir að tileinka sér nýja stjórnunar- hætti í takt við nútímann. Þeir verði að hlusta og vinna með öðrum. Félagasamtök Lauslega byggt á umfjöllun Deloitte Insights. Aðferðir til að bæta sveigjanleika + Það tekur á að stíga inn í framtíðina. Til að það takist þarf að breyta viðhorfum og vinnulagi. + Nýtt vinnulag er þreytandi og fólk mun gera mistök. En mikilvægt er að læra af þeim enda er um að gera að prófa sig áfram og gera tilraunir. Þegar upp er staðið mun erfiðið skila sér í meiri afköstum, árangri og betra samstarfi. + Stjórnendur verða að hætta að ráðskast og leyfa starfsfólki að njóta sín. + Mikilvægt er að leyfa sér að búa til, vera skapandi. Að opna dyr að samstarfi og samvinnu. + Hefðbundið skipulag félagasamtaka einkennist af verkefna- stýringu þar sem hver og einn sinnir sínu. Formið er fastmótað. Þetta hentar ekki í breyttum heimi þar sem taka þarf ákvarðanir með hraði og gefa grænt ljós á að prófa sig áfram til að sjá hvað skilar árangri. + Mikilvægt er að hvetja til sveigjanleika og styrkja starfsfólk í því að prófa eitthvað nýtt, taka áhættu, koma með nýjar tillögur og vinna í síbreytilegu umhverfi. Nokkur atriði um skrefin inn í framtíðina Hefðbundnar aðferðir Nýjar aðferðir Skipulag sem miðar að virkni og árangri. Skipulag sem hefur að markmiði að auka hæfni einstaklinga og breyta vinnulagi með það fyrir augum að bæta þjónustu við félagsmenn. Formfast og þekkt stjórnskipulag sem lítur út eins og píramídi. Fjöldinn er neðst. Stjórnendum fækkar eftir því sem ofar dregur. Einn er á toppinum sem heldur um alla þræði. Skipulag sem byggir á verkefnum og vinnuhópum sem sinna hver sínum verkefnum, tiltekinni þjónustu og afmörkuðum hópum félagsmanna. Eina leiðin til að færast ofar innan skipulagsins er að hækka um eitt þrep í einu, s.s. með stöðuhækkun í einhverju formi. Fjölbreytt og þverfagleg reynsla og stjórnunarhættir leiða til þróunar í starfi og auka líkur á því að fá meiri ábyrgð. Stöðuhækkanir leiða til þess að starfsfólk verður leiðtogar. Áhrif þeirra sem fá fleiri fylgjendur með sér í lið aukast. Stjórnendur stýra. Stjórnendur leiða. Menningin skipulagseiningarinnar einkennist af ótta við mistök og hvað öðrum finnist. Starfsfólk finnur til öryggis, það leggur áherslu á og tekur þátt í nýsköpun. Félagið/einingin byggir á skýrum reglum. Reglur eru ósýnilegar og líkjast fremur almennum viðmiðum en skýrum reglum. Hlutverk og störf eru skýrt skilgreind. Fólk vinnur í teymum sem eru með vel skilgreind markmið. Starfsheiti og titlatog skipta engu máli innan teymanna.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.