Skinfaxi - 01.03.2020, Side 31
S K I N FA X I 31
Óskum viðskiptavinum
og öðrum landsmönnum nær og fjær
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
og þökkum viðskiptin á árinu!
PGV
FRAMTÍÐARFORM EHF
P L A S T G L U G G A V E R K S M I Ð J A
BÆJARHRAUNI 24, 220 HAFNARFIRÐI - SÝNINGARSALUR
ÆGISGATA 2A, 240 GRINDAVÍK - VERKSMIÐJA
510-9700 I WWW.PGV.IS
Kostir
samstarfs
+ Enginn vinnur einn. Hefðbundið skipulag gerir
ráð fyrir því að hver vinnur í sínu horni. En staðreyndin er
sú að samstarf skilar meiri árangri. Samkvæmt könnun
Deloitte telja aðeins 14% stjórnenda að klassíska stjórnskipu-
lagið – píramídafyrirkomulagið – skili mestum árangri. Á sama
tíma hafa þeir stjórnendur – og félagasamtök – náð mestum
árangri þar sem lögð er áhersla á teymisvinnu.
+ Fólk vinnur best saman í litlum hópum. Árangurinn verður líka meiri
eftir því sem starfsfólkið situr nær hvert öðru eða boðleiðirnar styttri.
+ Þau félagasamtök ná meiri árangri þar sem hefð er fyrir því að
hvetja teymi og einstaklinga til þess að vinna saman og þar sem
teymin deila upplýsingum sín á milli.
+ Ekkert teymi er komið til þess að vara að eilífu. Títt er hjá
framsæknum fyrirtækjum og félagasamtökum að búa til
teymi sem ætlað er að vinna saman í ákveðinn tíma og
skila af sér ákveðnu verkefni. Þegar markmiðinu er
náð er teymið leyst upp og einstaklingarnir
settir í önnur verkefni.
Nýtum
tæknina
+ Mikilvægt að nýta tækni og hugbúnað til að auka
skilvirkni innan skipulagsins og halda utan um starfsemina.
Það kallar á breytt vinnulag sem fólk þarf að tileinka sér.
+ Stjórnendur félagasamtaka eru ekki endilega þeir bestu til
að innleiða nýja tækni og aðferðir. Þeir geta hins vegar fundið þá
sem hæfastir eru til að leiða það innan félagsins.
+ Fjölda af tólum og tækjum er hægt að nota til að einfalda og
bæta starfið. Margir þekkja orðið Google Drive, Microsoft Teams,
Facebook, Zoom og allan þann fjölda sem fólk hefur orðið að læra á
vegna breyttra vinnuhátta í tengslum við COVID-19. Þessi tól nýtast
einmitt afskaplega vel í teymisvinnu.
+ Verið opin fyrir því hvaða hugbúnað er gott að nota, sem
auðveldar ykkur starfið.
+ Festið ykkur ekki við einn hugbúnað. Séuð þið eða
einhver í teyminu ósátt við tól og tæki, sem notuð eru,
verið þá opin fyrir því að skipta um.
+ Verið opin fyrir því hvaða hugbúnaður nýtist félaginu
ykkar og ykkur sjálfum. Hvað nýtist sem dæmi
til að bæta þjónustu við iðkendur, for-
eldra og aðra félagsmenn?
framtíðarinnar