Mosfellingur - 12.01.2023, Blaðsíða 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ4
sunnudagur 15. janúar
kl. 11: Guðsþjónusta í Lágafellskirkju.
Prestur: sr. Arndís Linn.
kl. 13: Litur & föndur sunnudagaskóli
í safnaðarheimilinu, Þverholti 3.
sunnudagur 22. janúar
kl. 13: Taka með vin sunnudagaskóli
í safnaðarheimilinu.
kl. 20: Íhugunarguðsþjónusta
með hljómsveitinni ADHD.
Prestur: sr. Henning Emil Magnússon.
sunnudagur 29. janúar
kl. 11: Guðsþjónusta í Mosfellskirkju.
Prestur: sr. Henning Emil Magnússon.
kl. 13: Kubba sunnudagaskóli í
safnaðarheimilinu.
sunnudagur 5. febrúar
kl. 11: Guðsþjónusta í Lágafellskirkju.
Prestur: sr. Henning Emil Magnússon.
kl. 13: Vasaljósa sunnudagaskóli í
safnaðarheimilinu.
Foreldramorgnar
Á miðvikudögum kl. 10-12 í safnaðar-
heimilinu, 3. hæð. Á dagskránni er opið
hús, gestafyrirlesarar, léttar veitingar
og góð aðstaða fyrir krílin.
gaman saman
- samverur eldri borgara
Annan hvern fimmtudag kl. 12-14
í safnaðarheimilinu í samstarfi við
FAMOS sem verða hina fimmtudagana
á móti, Eirhömrum.
12. janúar: Arna Ýr Sigurðardóttir
heldur fyrirlestur um drauma og
merkingu þeirra.
26. janúar: Elín Sigrún Jónsdóttir lög-
maður heldur fyrirlestur um erfðamál.
lagafellskirkja.is & endilega
fylgdu okkur á samfélagsmiðlunum
facebook & instagram.
Vinningshafar í
jólakrossgátu
Í jólablaði Mosfellings gafst
lesendum kostur á að spreyta sig á
verðlaunakrossgátu. Dregið hefur
verið úr innsendum lausnum og
eru sigurvegararnir þau Sigríður
Steingrímsdóttir Hulduhlíð 1 og
Hörður Þorsteinsson Vogatungu 33.
Vinningshafarnir fá gjafabréf á
veitingastaðinn Barion í Mosfellsbæ
og verður þeim komið til þeirra á
næstu dögum. Lausnarorð kross-
gátunnar var „Ekki er allt gull sem
glóir“. Við þökkum þeim fjölmörgu
sem sendu inn rétta lausn og óskum
vinningshöfum til hamingju.
- Jólakrossgáta34
Verðlauna
krossgáta
Mosfellingur og Barion bjóða upp á jólakrossgátu
Verðlaun í boði
Barion Mosó
Dregið verður úr innsendum
lausnarorðum og fá tveir
heppnir vinningshafar 5.000 kr.
gjafabréf frá Barion Mosó.
Sendið lausnarorðið sem er í tölusettu reitunum, 1-22, á netfangið krossgata@mosfellingur.is
eða heimilisfangið Mosfellingur, Spóahöfða 26, 270 Mosfellsbæ.
Merkt „Jólakrossgáta”. Skilafrestur er til 6. janúar. Látið fylgja nafn og heimilisfang.
H
öf
un
du
r k
ro
ss
gá
tu
: B
ra
gi
V
. B
er
gm
an
n
- b
ra
gi
@
fr
em
ri.
is
Mest lesnu fréttirnar á
Mosfellingur.is árið 2022
Algjör endurnýjun
á lista Framsóknar
Frétt | Á félagsfundi þriðjudag-
inn 22. febrúar var samþykkt
tillaga að framboðslista Fram-
sóknar í Mosfellsbæ, en uppstillingar-
nefnd hefur unnið að mótun listans frá
því í nóvember.
Halla Karen Kristjánsdóttir íþróttakennari
skipar 1. sæti listans og Aldís Stefánsdóttir
viðskiptafræðingur er í 2. sæti.
Áhersla lögð á samtal og samvinnu
„Við, sem skipum lista Framsóknar ...
Hef alltaf horft bjartsýnn
fram á veginn
viðtal | Það er óhætt að segja að
líf Þorbjörns Vals Jóhannssonar,
eða Tobba eins og hann er ávallt
kallaður, hafi tekið stóra u-beygju en hann
hefur sl. sextán ár glímt við erfið veikindi.
Árið 2007 fór hann í opinn brjóstholsskurð
sem hefur haft miklar afleiðingar á líðan
hans og haustið 2018 greindist hann með
bráðahvítblæði.
Þorbjörn Valur er fæddur í Reykjavík 4.
janúar 1969. Foreldrar hans eru ...
Umsækjendur um
stöðu bæjarstjóra
Frétt | Eftirfarandi aðilar sóttu
um stöðu bæjarstjóra í Mosfells-
bæ. Alls sóttu 30 aðilar um stöð-
una en 5 drógu umsóknir sínar til baka.
Árni Jónsson – Forstöðumaður
Gísli H.Halldórsson – Fyrrv. bæjarstjóri
Glúmur Baldvinsson – Leiðsögumaður
Gunnar Hinrik Hafsteinss. – Meistaranemi
Gunnlaugur Sighvatsson – Ráðgjafi
Gylfi Þór Þorsteinsson – Aðgerðastjóri
Helga Ingólfsdóttir – Bæjarfulltrúi ...
Á www.mosfellingur.is eru birtar helstu fréttir úr blaðinu • Þrjár fréttir efstar á lista
4. júlí27. desember
321
24. febrúar
Þorrablót Aftureldingar verður haldið í
íþróttahúsinu að Varmá laugardaginn 21.
janúar eftir tveggja ára hlé vegna Covid.
Blótið verður í hefðbundinni mynd og
hefst miðasala á Barion föstudaginn 13.
janúar kl. 17. „Nú er að myndast mikil
stemning í bæjarfélaginu og heyrum við
að margir hópar ætli að mæta á Barion um
hádegisbil og búið sé að útbúa vaktaplan
þar til miðasala hefst,“ segir Rúnar Bragi
forseti þorrablótsnefndar til 15 ára.
Frábær dagskrá
„Dagskráin er frábær, Geiri í Kjötbúðinni
sér um matinn og býður upp á hefðbund-
inn þorramat og eitthvað girnilegt fyrir þá
sem ekki þora í þorrann. Villi naglbítur er
veislustjóri, Hreimur, Sigga Beinteins, Erna
Hrönn og Gunni Óla ásamt hljómsveitinni
Made in sveitin munu sjá til þess að allir
muni skemmta sér.“
stefnt á stærsta blótið
„Við gerum ráð fyrir troðfullum sal og
ætlum okkur því að nota allt íþróttahúsið
sem aldrei hefur verið gert áður. Við verðum
með Búbblubíl þar sem boðið verður upp á
freyðivín og síðan verður annar auka bar
sem þýðir að það verða þrjár stöðvar sem
ætti vonandi að koma í veg fyrir biðraðir.
Þar sem íbúum hefur fjölgað mikið síð-
ustu ár gerum við ráð fyrir að alla sé farið
að þyrsta í að mæta á stærsta menningar-
viðburðinn í bæjarfélaginu.“
skreytingar og bikarar
„Við teljum að sú skemmtilega hefð að
hóparnir komi eftir hádegi á blótsdegi og
skreyti borðin sín sé einstök, mikill metn-
aður og skemmtilegt andrúmsloft skapast
og gefur svolítið tóninn fyrir kvöldið. Við
erum með óháða dómnefnd sem velur svo
best skreyttu borðin.
Vert er að taka fram að þorrablótið er
stærsta fjáröflun barna- og unglingastarfs
Aftureldingar og eru því Mosfellingar hvatt-
ir til að mæta og eiga góða kvöldstund með
sveitungum sínum.“
Risaþorrablót Aftureldingar haldið 21. janúar • Spenna í loftinu eftir tveggja ára hlé
„Vonumst eftir troðfullu húsi“
skreytingar skipa stóran
þátt í stemningunni
Hnífsstunga í Þver-
holti um helgina
Rannsókn lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu á hnífsstungu í íbúð
í Þverholti í Mosfellsbæ um helgina
miðar vel. Lögreglu barst tilkynn-
ing um mann með stungusár, á
tíunda tímanum föstudagskvöldið
6. janúar. Þegar lögreglan kom á
vettvang voru tveir menn um tvítugt
í íbúðinni. Maðurinn sem varð fyrir
stungunni er ekki í lífshættu. Var
hann strax fluttur á slysadeild og
er líðan hans eftir atvikum. Hinn
maðurinn var handtekinn og færður
á lögreglustöð. Hann er nú laus úr
haldi þar sem rannsóknarhagsmun-
ir eru ekki lengur taldir vera fyrir
hendi. Sjúkraflutningamenn mátu
ástand hins slasaða svo að þörf væri
á fylgd lögreglu til að greiða fyrir
umferð og flýta ferð upp á spítala.
Ekki er óskað eftir lögreglufylgd
nema mikil hætta sé fyrir hendi.
MOSFELLINGUR
keMur næst út
9. febrúar
mosfellingur@mosfellingur.is