Mosfellingur - 12.01.2023, Qupperneq 8

Mosfellingur - 12.01.2023, Qupperneq 8
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu Skrifstofa félagsstarfsins er opin alla virka daga kl. 13–16. Sími félags- starfsins er 586-8014. Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur, s: 698-0090. Skrifstofa FaMos á Eirhömrum er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16. Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni famos@famos.is www.famos.is - Fréttir úr bæjarlífinu8 Félagsvist Félagsvist er spiluð alla föstudaga kl. 13:00 hjá okkur í borðsal Eirhamra Hlaðhömrum 2. Allir velkomnir. Aðgangur er ókeypis en auðvitað er alltaf frír kaffisopi og vinningur ef heppnin er með þér. Útsaumur og postulín Minnum á frábæru hópana okkar postulínshópur sem kemur saman og málar á postulín þriðjudaga og fimmtudaga til skiptis kl. 11:30 og einnig útsaumshópur sem hittist alla miðvikudaga kl. 12:30. Allir velkomnir. gaMan SaMan SÖngUr Hlaðhömrum kl. 13:30, næstu skipti eru 19. jan. og 2. feb. og alltaf annan hvern fimmtudag í vetur. Gaman saman söngskemmtun Hlaðhömrum 2 í borðsal kl. 13:30. Helgi R. Einars- son tekur á móti hressum krökkum frá leikskólum bæjarins og þau taka lagið fyrir okkur. Kaffi selt eftir söngskemmtun á 500 kr. í matsal. Allir velkomnir. BaSarVÖrUr Enn TIl SÖlU Enn er nóg af fallegum basarvörum til sölu í handverksstofu Félagsstarfs- ins Hlaðhömrum 2 alla virka daga frá 11:00-16:00, föstudaga 13:00-16:00. Verið velkomin að skoða. gönguhópur fyrir mjög virka og hressa 60+ Minnum á frábæra gönguhópinn okkar sem hittist alla miðvikudaga við Fellið/ Íþróttahúsið Varmá kl 13:00. Göngurnar henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Frábær félags- skapur. Gerum gott heilsueflandi samfélag enn betra og verum með. gaMan SaMan FYrIrlESTrar Þverholti 3, 3. hæð (safnaðarheimili). Næstu skipti 12. jan. og 26. jan. Félagsstarfið Mosfellsbæ og Lágafellssókn eru í samstarfi með fyrirlestra annan hvern fimmtudag kl. 14:00. Næsti fyrirlestur verður um DRAUMA, virkilega spennandi og áhugavert. Aðgangur auðvitað alltaf ókeypis, hvetjum öll til að vera dugleg að mæta á þessa flottu og fróðlegu fyrirlestra. STjórn FaMoS jónas Sigurðsson formaður s. 666 1040 jonass@islandia.is jóhanna B. Magnúsdóttir varaformaður s. 899 0378 hanna@smart.is Kristbjörg Steingrímsdóttir ritari s. 898 3947 krist2910@gmail.com Þorsteinn Birgisson gjaldkeri s. 898 8578 thorsteinn.birgis@gmail.com guðrún K. Hafsteinsdóttir meðstjórnandi s. 892 9112 gunnasjana@simnet.is Áshildur Þorsteinsdóttir varamaður s. 896 7518 asath52@gmail.com Hafberg hlaut fálka- orðu á nýársdag Á nýársdag var Hafberg Þórisson, forstjóri og stofnandi Lambhaga, sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir frum- kvöðlastarf í ræktun og vistvænni grænmetisframleiðslu. Hafberg stofnaði fyrirtækið árið 1979 og er Lambhagi í dag stærsti framleiðandi og seljandi á fersku salati og kryddjurtum á landinu. Fyrirtækið hóf framleiðslu í Lundi í Mosfellsdal sumarið 2021 og er nú búið að reisa rúmlega einn þriðja af stöðinni í. Síðastliðið ár var stærsta framkvæmdaár Lambhaga frá upphafi. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sæmdi 14 Íslendinga heiðursmerki á Bessastöðum. Þann 2. janúar kl. 23:24 fæddist fyrsti Mosfellingur ársins 2023. Það var fallegur og hraustur drengur, foreldrar hans eru þau Hafdís Elva Einarsdóttir og Freysteinn Nonni Mánason. „Við vorum voða glöð að hann skyldi ná 2023, við héldum jafnvel að hann myndi fæðast þann þriðja en hann var komin í heiminn klukkutíma eftir að við komum niður á Landspítala. Fæðingin gekk vel og hann er mjög vær og góður og allt hefur gengið vel,“ segir Hafdís Elva. Drengurinn er annað barn foreldra sinna en fyrir eiga þau dótt- urina Marínu Birtu sem er rúmlega þriggja ára. Fjölskyldan hefur búið í Mosfellsbæ í tvö ár og líkar vel. „Við erum bæði utan af landi og langaði að búa í úthverfi höfuð- borgarinnar eða minna samfélagi. Við erum alveg rosalega ánægð með þessa ákvörðun og þjónustuna hér í bænum,“ segir Freysteinn Nonni. Mosfellingur óskar fjölskyldunni til hamingju með drenginn. Drengur kom í heiminn 2. janúar • Glöð að hann skyldi bíða eftir nýju ári fyrsti mosfellingur ársins fjölskyldan í góðu yfirlæti í bjarkarholti MOSFELLINGUR kEmur næst út 9. fEbrúar mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.