Mosfellingur - 12.01.2023, Blaðsíða 24
Anton Ari Einarsson knattspyrnumarkmaður
býr í Mosfellsbæ og spilaði upp alla yngri flokka
Aftureldingar.
Árið 2022 varð hann Íslandsmeistari með
Breiðabliki í Bestu deild karla. Anton hlaut gull-
hanskann og komst með liðinu í þriðju umferð
Evrópukeppninnar. Í haust var Anton valinn í
A-landslið karla í fjórða skipti.
Anton hefur alltaf verið sérlega samviskusamur
og duglegur við æfingar og hefur það skilað
tveimur bikarmeistaratitlum og þremur Íslands-
meistaratitlum á síðustu átta árum. Hann er góð
fyrirmynd bæði innan og utan vallar.
Anton Ari Einarsson
knattspyrna
Ingvar kom til liðs við Aftureldingu í haust og var
valinn sundmaður Aftureldingar 2022.
Eftir komu hans til Aftureldingar hefur hann
æft vel, unnið fyrir sínu og hefur náð frábærum
árangri.
Á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug, sem
fram fór í nóvember, var hann með 80% bætingu
sem er virkilega vel gert fyrir 18 ára sundmann.
Hann nældi sér í þrenn verðlaun, 3. sæti í
unglingaflokki í 200 metra bringusundi, 2. sæti
í opnum flokki í 200 metra bringusundi og var
í 3. sæti í boðsundsliði Aftureldingar sem náði í
brons í 4x50m skriðsunds boðsundi blandað.
Ingvar Orri Jóhannesson
sund
Einar Sverrir Sigurðsson varð Íslandsmeistari
í motocrossi árið 2022 í MX1 flokk og er þetta
í þriðja sinn sem hann verður Íslandsmeistari í
þessum flokki.
Einar var einn af þremur sem var valinn í fyrsta
landslið Íslands í motocrossi þegar það var
myndað árið 2007 til að taka þátt í „Motocross of
Nations“ (MXON). Einar var valinn aftur í íslenska
landsliðið árið 2008 og árið 2009. Einari var
boðin þátttaka í ár en varð að sitja heima vegna
meiðsla.
Einar leggur mikið til íþróttarinnar og hefur hann
lyft grettistaki í að endurvekja enduro og starfar
mikið með íþróttaklúbbum á suðvesturhorninu.
Hann er góð fyrirmynd og kappsamur.
Einar Sverrir Sigurðsson
motocross
Oliver Ormar Ingvarsson átti frábært ár og vann
Íslandsmeistaratitilinn utandyra á árinu.
Hann var einnig valinn í nokkur landsliðsverkefni
og keppti meðal annars í úrslitum á EM innan-
dyra í Slóveníu þar sem hann endaði í 9. sæti
með sveigboga karlaliðinu en þeir voru slegnir út
af Úkraínu í 16 liða úrslitum.
Oliver er í 180. sæti á Evrópulista og í 496. sæti
á heimslista. Oliver vann einnig gull í sveigboga
parakeppni.
Hann er jafnframt formaður stærsta bogfimi-
félags á Norðurlöndum og mjög virkur í að
skipuleggja starf félagsins.
Oliver Ormar Ingvarsson
bogfimi
Benedikt Ólafsson er 19 ára gamall og stoltur
Harðarfélagi. Hann átti frábæru gengi að fagna á
síðastliðnu keppnisári. Hann sigraði á Landsmóti
hestamanna annað skiptið í röð í ungmenna-
flokki, varð Íslandsmeistari í gæðingaskeiði og
vann sigur í tveimur greinum á Reykjavíkurmeist-
aramótinu. Hann stóð á verðlaunapalli á öllum
mótum ársins. Benedikt er fjölhæfur hestamaður
og jafnvígur í öllum greinum með frábæra hesta
sem ræktaðir eru í Mosfellsdalnum. Benedikt
var valinn í U21 landsliðið fjórða árið í röð
og sæmdur FT fjöðrinni. Benedikt var valinn
efnilegasti knapi landsins þetta árið af Lands-
sambandi hestamannafélaga. Hann þjálfar tíu
hross með vinnu og skóla og fer allur hans tími í
hestamennskuna.
Benedikt Ólafsson
hestaíþróttir
Kristján Þór er 34 ára gamall kylfingur úr GM.
Kristján átti stórkostlegt tímabil 2022 og sýndi
að hann er á meðal allra bestu kylfinga landsins.
Kristján vann glæsilegan sigur á Íslandsmótinu í
golfi í Vestmannaeyjum. Kristján sigraði einnig á
lokamóti ársins, Korpubikarnum, á lægsta skori
sögunnar á mótaröð GSÍ. Með þeim sigri tryggði
Kristján sér stigameistaratitil GSÍ.
Kristján er lykilmaður í sterku liði GM sem varð
í 3. sæti á Íslandsmóti golfklúbba í efstu deild.
Kristján var í haust valinn í karlalandslið Íslands.
Kristján Þór Einarsson
golf