Mosfellingur - 09.02.2023, Síða 6

Mosfellingur - 09.02.2023, Síða 6
 - Fréttir úr bæjarlífinu6 Sérsniðin þjónusta til byggingaraðila A L L T . I S - A L L T @ A L L T . I S - 5 6 0 5 5 0 5 Undanfarnar vikur hafa endurbætur og breytingar átt sér stað á Olís Langatanga sem er hluti af umbreyt- ingarferli og nýrri ásýnd allra stöðva. Stöðin hefur fengið mikla upplyftingu þar sem básum hefur verið komið fyrir í matsalnum og hann aðeins stækkaður svo betur fari um sem flesta. Einnig hefur verið frískað upp á allar innréttingar sem gerir heildaryfirbragð léttara. Þjónustustöðin hefur aukið á fjölbreytnina og opnað Lemon míní með hollari valkosti fyrir við- skiptavini. Lemon míní er aðeins minni útgáfa af Lemon en þar er í boði fjórar vinsælustu tegundirnar af samlokum og djúsum frá Lemon. Lemon er ferskur og safaríkur matur og hentar vel þeim sem velja sér hollari kosti. Á sínum stað eru svo ávallt safaríkir hamborgarar frá Grill 66 eins og margir þekkja og frábært úrval af annarri smávöru sem og bílavörum. Mæta ólíkum þörfum viðskiptavinanna „Á síðasta ári var gerður samningur við TVG-Zims- en og eiga viðskiptavinir kost á að fá sendar pantanir til okkar til að sækja og í leiðinni tankað bílinn og fóðrað magann. Þannig kappkostum við að mæta ólíkum þörfum viðskiptavina okkar,“ segir Elsa For- berg verslunarstjóri Olís í Mosfellsbæ. „Við bjóðum gamla og nýja viðskiptavini hjart- anlega velkomna og hlökkum til að þjónusta þá áfram.“ Breytingar í Langatanganum • Vinsælustu djúsarnir og samlokurnar Lemon míní opnar á Olís erla forberg verslunarstjóri salurinn fær andlitslyftingu frumsýning í leikfélag mosfellssveitar sýnir dýrin í hálsaskógi bæjarleikhúsinu M yn di r/ Ra gg iÓ la

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.