Mosfellingur - 09.02.2023, Qupperneq 10
- Fréttir úr bæjarlífinu10
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
RútubílstjóRi
óskast
Hópferðabílar Reynis óska eftir að ráða rútubílstjóra með
D réttindi í gildi. um er að ræða heilsársstarf, skólaakstur
í Mosfellsbæ yfir veturinn og annar akstur á sumrin.
Við erum með starfsstöðvar í Mosfellsbæ, Akranesi
og Stóra-Lambhaga Hvalfjarðarsveit.
Upplýsingar: hopo@simnet.is eða í síma 662-1881 (Birkir Snær)
Hópferðabílar Reynis Jóhannsonar
Laugardaginn 4. febrúar fór fram lang-
þráður aðalfundur Hollvinasamtaka
Reykjalundar en aðalfundur samtakanna
hefur fallið niður síðustu ár vegna Covid-
faraldursins.
Hollvinasamtök Reykjalundar eru sam-
tök fólks sem þykir vænt um Reykjalund og
er tilbúið til að leggja sitt af mörkum til að
efla starfsemina og styrkja frekari uppbygg-
ingu hennar. Margir eiga þessari stofnun
líf sitt að þakka, eða eiga vini og ættingja
sem hafa komist aftur út í lífið sem virkir
þátttakendur eftir dvöl á Reykjalundi.
Aðalfundurinn heppnaðist mjög vel og
í stjórn samtakanna voru kjörin Bryndís
Haraldsdóttir, formaður, Haukur F. Leós-
son, Halla M. Hallgrímsdóttir, Júlíus Þór
Jónsson og Örn Kjærnested en varamenn
eru þær Eva Magnúsdóttir og Hafdís Gunn-
björnsdóttir.
Á fundinum afhentu Hollvinasamtökin
Reykjalundi hjartarafrit og sex senda af full-
komnustu gerð, til að fylgjast með hjarta-
línuriti einstaklinga í þjálfun en gjöfin er að
verðmæti tæplega 4 milljóna króna.
Reykjalundur þakkar félögum í holl-
vinasamtökunum kærlega fyrir hlýhug og
glæsilegt framlag síðustu ár.
Menningar- og lýðræðisnefnd
Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsókn-
um um styrki vegna listviðburða og
menningarmála árið 2023.
Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki,
félagasamtök eða stofnanir, innan sem utan
Mosfellsbæjar.
Fjárframlög til lista og menningarmála
eru af tvennum toga:
Fjárframlög til almennrar listastarfsemi.
Fjárframlög vegna viðburða eða verkefna.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 1.
mars 2023 í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.
Nánari upplýsingar á vef Mosfellsbæjar, mos.is.
Niðurstöður Menningar- og nýsköpunarnefndar
Mosfellsbæjar munu liggja fyrir eigi síðar en 8. mars
2023 og eru háðar samþykki bæjarstjórnar.
Mosfellsbær www.mos.is 525 6700
Fjárframlög
til lista- og
menningar-
starfsemi 2023
Gjöf að verðmæti 4 milljóna • Hjartarafrit og sendar
Afhentu glæsilega
gjöf á aðalfundi
Hollvinasamtakanna