Mosfellingur - 09.02.2023, Side 28
- Íþróttir28
j a ko s p o r t ( N a m o e h f ) - k r ó k h á l s 5 f - 1 1 0 á r b æ r Sími: 566 7310 - jakosport@jakosport.is - jakosport.is
AftureldingAr
vörurnAr
fást hjá okkur sport íslandi
Danski varnarmaðurinn Rasmus
Christiansen mun spila með Aftur-
eldingu í Lengjudeildinni í fótbolta í
sumar.
Rasmus er 33 ára gamall og hefur
verið einn öflugasti varnarmaðurinn
í efstu deild á Íslandi í áraraðir. Hann
kemur til Aftureldingar frá Val þar sem
hann varð þrívegis Íslandsmeistari og
einu sinni bikarmeistari á sjö árum.
Meistaraflokkur karla er á fullu að
undirbúa sig fyrir Lengjudeildina sem
hefst í sumar. Liðið hefur unnið marga
æfingaleiki hingað til í vetur og gefur
spilamennskan góð fyrirheit.
Valdar í Hæfileikamótun KSÍ
Fjórar stelpur úr Aftureldingu voru á dögunum valdar í Hæfileikamótun KSÍ. Þær æfa
knattspyrnu með 4. flokki Aftureldingar. Frá vinstri Katla, Helga, Freydís og Íris.
Fjölmennasta mót fimleikahreyfingarinnar fór
fram síðustu helgi en fimleikadeild Fjölnis stóð fyr-
ir GK móti yngri flokka dagana 3., 4. og 5. febrúar.
Við erum að tala um 75 lið á aldrinum 9 til 12 ára
sem eru um 700 keppendur. Fimleikadeild Aftur-
eldingar var að þessu sinni fjölmennasta félagið á
mótinu með 11 lið og 120 keppendur.
Á föstudeginum 3. febrúar fór fram stökkfimi
yngri flokka þar sem Afturelding var með tvö lið í
þeim hluta og enduðu liðin í 2. sæti og 13. sæti.
Laugardaginn 4. febrúar fór 5. flokkur og KKY
flokkur inn á gólfið þar sem Afturelding var með
þrjú lið í 5. flokk stúlkna og eitt lið í 5. flokk drengja
og tvö lið í KKY flokki. Afturelding sigraði alla
flokka á laugardeginum sem er áberandi flottur
árangur.
Sunnudaginn 5. febrúar var svo komið að 4.
flokknum en þar er samkeppnin hörðust og flestu
liðin skráð. Afturelding er með tvö lið í A deild og
eitt lið í C deild. Í A deild enduðu liðin okkar í 3.
og 6. sæti, annað liðið sigraði dýnuna. Í C deild
endaði lið Aftureldingar í 7. sæti.
Fimleikadeild Aftureldingar var með áberandi
hæsta árangurinn á GK móti yngri flokka sem er
virkilega gaman að sjá en það er ekki markmið
númer eitt hjá deildinni að sigra öll mót. Það sem
deildin leggur fyrir sig er markviss þjálfun fyrir
alla iðkendur, hópefli og áhugahvetjandi æfingar
og verkefni við hæfi.
Komandi helgi munu eldri flokkarnir keppa á
GK mótinu á Akranesi og þar stíga fram þrjú lið
fyrir hönd Aftureldingar. Við hvetjum alla sem sjá
sér fært um að mæta að skella sér á skagann og
hvetja þessi flottu lið. Frekari upplýsingar um mót-
ið koma fram inn á facebook síðu fimleikadeild-
arinnar sem heitir Fimleikadeild Aftureldingar og
lifandi upplýsingar inn á instagram deildarinnar
fimleikadeild_aftureldingar.
Handknattleiksdeild Aftureldingar hefur framlengt samninga við Blæ
Hinriksson, Brynjar Vigni Sigurjónsson og Þorstein Leó Gunnarsson.
Allir eiga það sameiginlegt að vera á meðal efnilegustu handknatt-
leiksmanna landsins og hafa látið mikið að sér kveða í leikjum Olís-
deildarinnar.
Blær Hinriksson, 21 árs miðjumaður og vinstri skytta, gekk til liðs
við Aftureldingu frá HK árið 2020. Blær er fjölhæfur leikmaður sem
getur leyst allar stöður fyrir utan á vellinum. Blær hefur verið einn
markahæsti leikmaður liðsins.
Brynjar Vignir Sigurjónsson, 20 ára markmaður og landsliðsmaður
í U-21 liði Íslands, er uppalinn hjá Aftureldingu og gríðarlega efnilegur
markmaður. Brynjar hefur spilað með meistaraflokki Aftureldingar í
nokkur ár og er nú þegar komin með mikla reynslu.
Þorsteinn Leó Gunnarson, 20 ára vinstri skytta og landsliðsmaður
í U-21 liði Íslands, er uppalinn hjá Aftureldingu og hefur verið lykil-
maður í góðu gengi Aftureldingar Þorsteinn hefur tekið gríðarlegum
framförum á undanförnum árum og er í dag ein af öflugustu skyttum
Olís-deildarinnar.
RaSmuS
Í Rauðu
Í SumaR
rasmus christiansen
Fimleikar í sókn • 11 lið frá Afturelding kepptu um síðustu helgi
með flest lið á GK mótinu
hluti mosfellinganna
á æfingu fyrir mótBlær, Brynjar Vignir og Þorsteinn Leó áfram
Framlengja til
næstu þriggja ára