Læknablaðið : fylgirit - 04.03.2016, Blaðsíða 15

Læknablaðið : fylgirit - 04.03.2016, Blaðsíða 15
B R Á Ð A D A G U R I N N 2 0 1 6 F Y L G I R I T 8 6 LÆKNAblaðið 2016/102 FYLGIRIT 86 15 Bráðadagurinn 6. mars 2015 Börn og aldraðir Bráðaþjónusta á 21. öldinni Ráðstefna á vegum flæðissviðs Landspítala. Hótel Natura Nauthólsvegi 52, Reykjavík. Dagskrá 08:30 - 08:35 Setning bráðadagsins Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri flæðissviðs Landspítala 08:35 - 08:50 Ávarp landlæknis Birgir Jakobsson, Landlæknir 8:55 - 9:40 Boðsfyrirlestur: The Elder-Friendly Emergency Department: From Evidence to Outcomes Dr. Samir Sinha öldrunarlæknir, Mount Sinai og the University Health Network Hospitals í Toronto. 09:45 – 09:55 Forgangsröðun þjónustu til aldraðara einstaklinga: heimaþjónusta og dvöl á hjúkrunarheimili Ingibjörg Hjaltadóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun, PhD, flæðissvið Landspítala 09:55 – 10:05 Tilvísun aldraðra í hjúkrunarstýrð úrræði eftir endurteknar komur á bráðamóttöku Ingibjörg Sigurþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur MS, bráðamóttöku Landspítala 10:05 - 10:30 Kaffihlé – Veggspjaldakynning 1 í anddyri 10:30 - 10:50 Boðsfyrirlestur: Velferðarþjónusta frá vöggu til grafar á 21. öldinni Stefán Eiríksson, framkvæmdarstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar 10:50 - 11:00 Komur aldraðra, 67 ára og eldri, á bráðamóttöku Landspítala vegna meiðsla 2011-2012 María Guðnadóttir, meistaranemi, Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Háskóla Íslands 11:00 - 11:10 Gjörgæslusjúklingar á bráðamóttökum Landspítala 2010-2012 Þorsteinn Jónsson, aðjúnkt í bráða- og gjörgæsluhjúkrun, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands 11:10 - 11:20 Forprófun á mælitækinu Pain assessment in advanced dementia (PAINAD) til að meta verki hjá einstaklingum sem eiga erfitt með að tjá verki Elfa Þöll Grétarsdóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun, flæðissviði Landspítala 11:20 - 11:30 Gæði lyfjaupplýsinga, samantekt og samanburður á lyfjaávísanavillum við útskrift aldraðra einstaklinga af sjúkrahúsi yfir á hjúkrunar- og dvalarheimili Karen Birna Guðjónsdóttir, lyfjafræðingur, Sjúkrahúsapóteki Landspítala 11:30 - 11:40 Má mylja öll lyf? Lyfjagjafir á hjúkrunarheimilum Pétur S. Gunnarsson, lyfjafræðingur, Sjúkrahúsapóteki Landspítala 11:40 - 11:50 Sjúkraflug til Landspítala árin 2011-2012 Elín Rós Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur, aðgerðarsviði Landspítala 11: 50 - 12:10 Boðsfyrirlestur: Prehospital Emergency Medical Services in Madrid Vicente Sánchez-Brunete Ingelmo, sérfræðingur á bráðamóttöku Landspítala 12:10 - 13:00 Léttur hádegisverður – Veggspjaldakynning 2 í anddyri 13:00 - 13:40 Boðsfyrirlestur: Building Paediatric Emergency Medicine Dr. Paul Leonard bráðalæknir og yfirlæknir á bráðamóttöku barna, NHS Lothian, Edinborg 13:40 - 13:50 Öryggi barna í innkaupakerrum: Árangursríkt inngrip til forvarna. Skrásetningu slysa er ábótavant. Árni Þór Eiríksson, sálfræðideild Háskóla Íslands 13:50 - 14:00 Stunguáverkar sem leiddu til innlagna á Landspítala 2005-2014 Una Jóhannesdóttir, læknadeild Háskóla Íslands 14:00 - 14:10 Geðgreiningar og sjálfsvígstilraunir meðal sænskra eftirlifenda tsunami-hamfaranna: Fimm ára pöruð ferilrannsókn Ragnhildur Guðmundsdóttir, doktorsnemi, Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Háskóla Íslands 14:10 - 14:20 Banaslys í umferðinni á Íslandi í 100 ár Brynjólfur Mogensen, yfirlæknir og dósent, Rannsóknarstofu LSH og HÍ í bráðafræðum 14:25 - 14:35 Komur slasaðra barna á bráðadeild Landspítala eftir reiðhjólaslys árin 2005-2010 Ármann Jónsson, læknir, bráðadeild Landspítala 14:35 - 14:55 Bráðalækningar barna í höndum bráðalækna Bjarni Eyvindsson, bráðalæknir barna, NHS Lothian, Edinborg 14:55 - 15:00 Lokaorð Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri, Rannsóknarstofu LSH og HÍ í bráðafræðum Fundarstjórar: Ása Elísa Einarsdóttir, Gyða Baldursdóttir, Inga J. Arnardóttir og Pálmi Jónsson Veggspjaldakynning 1 Aðalsteinn Guðmundsson: SENATOR: Þróun og klínísk prófun á nýjum hugbúnaði sem metur og gefur ráðleggingar um lyfjameðferð og aðrar meðferðarleiðir hjá eldri einstaklingum Elfa Þöll Grétarsdóttir: Gæði í auknu flæði Elfa Þöll Grétarsdóttir: Ákjósanleg matstæki til skimunar og greiningar á óráði Helga Bragadóttir: Tengsl teymisvinnu og starfsánægju í hjúkrun á bráðalegudeildum á sjúkrahúsum á Íslandi Hlíf Guðmundsdóttir: Klínískar leiðbeiningar um greiningu, forvarnir og meðferð við óráði Unnur Lilja Úlfarsdóttir: Mjaðmagrindarbrot meðhöndluð á Landspítala árin 2008-2012 Veggspjaldakynning 2 Arnljótur Björn Halldórsson: Komur á bráðamóttöku Landspítala vegna rákvöðvarofs í kjölfar ofþjálfunar árin 2008-2012 Hrafnkell Óskarsson: Sjúkraflug þyrlu Landhelgisgæslu Íslands árin 2008-2012 Oddný Kristinsdóttir: Pediatric early warning score (PEWS) á barnadeild Barnaspítala Hringsins Páll Óli Ólason: Komur slasaðra á bráðamóttöku Landspítala eftir vélsleðaslys árin 2001-2012 Ragnhildur Guðmundsdóttir: Skjótur brottflutningur af hamfarasvæði í kjölfar náttúruhamfara og áhrif á langtíma heilsufar eftirlifenda Sif Ólafsdóttir: Áhrif lídókaíns á blóðrás og bólguþætti í brunasköðuðum rottum Sólrún W. Kamban: Ávinningur af stuttum fjölskyldumeðferðarsamræðum við foreldra barna, eins ára og yngri, sem greinast með RS veiru á bráðamóttöku barna Málþingið er öllum opið og aðgangur starfsfólks flæðissviðs er ókeypis en fyrir aðra gesti er aðgangseyrir 5.000 kr. Skráning á vef Landspítalans: www.landspitali.is Xarelto 15 mg og 20 mg (stytt samantekt á eiginleikum lyfs) Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að tilkynna allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfinu til Lyfjastofnunar, www.lyfjastofnun.is. Innihaldslýsing: Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 15 mg eða 20 mg rivaroxaban. Ábendingar: Fyrirbyggjandi meðferð gegn heilablóðfalli og segareki hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif án lokusjúkdóms og einn eða fleiri áhættuþætti, svo sem hjartabilun, háþrýsting, aldur ≥ 75 ára, sykursýki, sögu um heilablóðfall eða skammvinnt blóðþurrðarkast. Meðferð við segamyndun í djúpbláæðum og segareki í lungum og til að fyrirbyggja endurtekna segamyndun í djúpbláæðum og segarek í lungum hjá fullorðnum. Skammtar og lyfjagjöf: Skammtar: Fyrirbyggjandi við heilablóðfalli og segareki: Ráðlagður skammtur er 20 mg einu sinni á sólarhring, sem er einnig ráðlagður hámarksskammtur. Meðferð með Xarelto á að halda áfram til langs tíma þegar ávinningur sem fyrirbyggjandi við heilablóðfalli og segareki vinnur upp hættuna á blæðingu. Ef skammtur hefur gleymst á sjúklingurinn að taka Xarelto án tafar og halda síðan áfram næsta dag og taka lyfið einu sinni á sólarhring eins og lagt var upp með. Ekki skal taka tvöfaldan skammt sama daginn til að vinna upp skammt sem gleymst hefur að taka. Meðferð við segamyndun í djúpbláæðum, meðferð við segareki í lungum og fyrirbyggjandi við endurteknu segareki í djúpbláæðum og segareki í lungum: Ráðlagður skammtur við upphafsmeðferð við bráðri segamyndun í djúpbláæðum eða segareki í lungum er 15 mg tvisvar á dag fyrstu þrjár vikurnar og síðan 20 mg einu sinni á dag fyrir framhaldsmeðferð og fyrirbyggjandi við segamyndun í djúpbláæðum og segareki í lungum, eins og mælt er fyrir hér á eftir. Dagur 1-21: 15 mg tvisvar á dag. Hámarks dagsskammtur er 30 mg. Dagur 22 og eftir það: 20 mg einu sinni á dag. Hámarks dagsskammtur er 20 mg.Lengd meðferðar skal vera einstaklingsbundin eftir vandlega áætlun á ávinningi meðferðar gegn hættunni á blæðingu. Stuttur meðferðartími (a.m.k. 3 mánuðir) á að byggja á tímabundnum áhættuþáttum (t.d. nýlegri skurðaðgerð, slysi, hreyfingaleysi) og lengri meðferðartími á að byggja á langvinnum áhættuþáttum eða segamyndun í djúpbláæðum eða segareki í lungum af óþekktum orsökum. Gleymist skammtur meðan verið er að taka 15 mg tvisvar á dag (dagur 1 - 21) skal sjúklingurinn taka Xarelto tafarlaust til að tryggja töku á 30 mg af Xarelto á dag. Í þessu tilfelli má taka tvær 15 mg töflur í einu. Daginn eftir skal sjúklingurinn halda áfram að taka 15 mg tvisvar á dag eins og venjulega og mælt var með. Gleymist skammtur þegar einn skammtur er tekinn daglega (dagur 22 og eftir það), skal sjúklingurinn taka Xarelto tafarlaust og halda áfram næsta dag með því að taka skammtinn einu sinni á dag eins og mælt var með. Ekki skal taka tvöfaldan skammt sama daginn til að vinna upp skammt sem gleymst hefur að taka. Skipti frá K vítamín hemli yfir í Xarelto: Fyrir sjúklinga sem fá fyrirbyggjandi meðferð gegn heilablóðfalli og segareki, skal stöðva meðferð með K vítamín hemli og hefja meðferð með Xarelto þegar INR (International Normalized Ratio) er ≤ 3,0. Fyrir sjúklinga sem fá meðferð gegn segamyndun í djúpbláæðum eða segareki í lungum eða fyrirbyggjandi meðferð gegn endurteknum tilvikum, skal stöðva meðferð með K vítamín hemli og hefja meðferð með Xarelto þegar INR er ≤ 2,5. Þegar sjúklingar eru fluttir af meðferð með K vítamín hemli yfir í Xarelto, munu INR gildi vera falskt hækkuð eftir að Xarelto hefur verið tekið inn. Mæling á INR gefur ekki rétta mynd af blóðþynningarvirkni Xarelto og á því ekki að nota það. Skipti frá Xarelto yfir í K vítamín hemil: Möguleiki er á ófullnægjandi blóðþynningu við skipti af Xarelto yfir á K vítamín hemla. Tryggja skal samfellda viðunandi blóðþynningu á meðan breytt er um blóðþynningarlyf. Gæta skal að því að Xarelto getur leitt til hækkunar á INR. Hjá sjúklingum sem breyta frá Xarelto yfir í K vítamín hemil, skal gefa K vítamín hemilinn þar til INR er ≥2,0. Fyrstu tvo dagana af skiptitímabilinu, skal nota hefðbundinn upphafsskammt af K vítamín hemlinum og síðan skammt af K vítamín hemli samkvæmt INR prófi. Á meðan sjúklingar eru bæði á Xarelto og K vítamín hemli, skal ekki athuga INR fyrr en 24 klst. eftir fyrri skammt en áður en næsti skammtur af Xarelto er tekinn. Þegar inntöku Xarelto hefur verið hætt, þurfa að líða að minnsta kosti 24 klst. eftir síðasta skammt áður en INR próf verður áreiðanlegt. Skipti frá blóðþynningu til inndælingar yfir í Xarelto: Hjá sjúklingum sem fá blóðþynningu með inndælingu skal hætta gjöf hennar og hefja gjöf Xarelto 0 til 2 klst. áður en næst hefði átt að gefa inndælingu lyfsins (t.d. heparín með lágan mólþunga) eða þegar hætt er að gefa blóðþynningarlyf með stöðugu innrennsli (t.d. ósundurgreint heparín í æð). Skipti frá Xarelto yfir í blóðþynningarlyf til inndælingar: Gefa á fyrsta skammt af blóðþynningarlyfi til inndælingar þegar taka hefði átt næsta skammt af Xarelto. Sérstakir sjúklingahópar Skert nýrnastarfsemi: Takmarkaðar klínískar upplýsingar um sjúklinga með verulega skerta nýrnastarfsemi (kreatínín úthreinsun 15 29 ml/mín.) sýna marktæka hækkun á þéttni rivaroxabans í plasma. Því skal gæta varúðar þegar Xarelto er notað hjá þeim sjúklingum. Notkun er ekki ráðlögð hjá sjúklingum með kreatínín úthreinsun < 15 ml/mín. Hjá sjúklingum með miðlungsmikið skerta nýrnastarfsemi (kreatínín úthreinsun 30 49 ml/mín.) eða alvarlega skerta nýrnastarfsemi (kreatínín úthreinsun 15 29 ml/mín.) eiga eftirfarandi skammtar við: Sem fyrirbyggjandi við heilablóðfalli eða segamyndun hjá sjúklingum með gáttatif án lokusjúkdóms, er ráðlagður skammtur 15 mg einu sinni á dag. Sem meðferð við segamyndun í djúpbláæðum og segareki í lungum og sem fyrirbyggjandi við endurteknum tilvikum segamyndunar í djúpbláæðum og segareks í lungum skal meðhöndla sjúklinga með 15 mg tvisvar á dag fyrstu 3 vikurnar. Eftir það er ráðlagður skammtur 20 mg einu sinni á dag. Íhuga skal að minnka skammta úr 20 mg einu sinni á dag í 15 mg einu sinni á dag ef áætluð blæðingahætta sjúklingsins er talin vega þyngra en hætta á endurteknum tilvikum segamyndunar í djúpbláæðum og segareks í lungum. Ráðleggingar um notkun 15 mg skammts byggja á lyfjahvarfalíkani og hafa ekki verið rannsakaðar við þessar klínísku aðstæður. Engin þörf er á aðlögun skammta hjá sjúklingum með vægt skerta nýrnastarfsemi (kreatínín úthreinsun 50 80 ml/mín.) Skert lifrarstarfsemi: Xarelto er ekki ætlað sjúklingum með lifrarsjúkdóm með blóðstorkutruflunum og blæðingarhættu sem hefur klíníska þýðingu þar með talið hjá sjúklingum með skorpulifur með Child Pugh B og C. Börn: Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi og verkun Xarelto hjá börnum á aldrinum 0 til 18 ára. Engar upplýsingar liggja fyrir. Því er ekki mælt með notkun Xarelto fyrir börn yngri en 18 ára. Sjúklingar sem gangast undir rafvendingu/lyfjavendingu: Hefja má eða halda áfram notkun Xarelto hjá sjúklingum sem gætu þurft að gangast undir rafvendingu/lyfjavendingu. Við rafvendingu/lyfjavendingu sem stýrt er með ómskoðun hjarta um vélinda (transesophageal echocardiogram, TEE) hjá sjúklingum sem ekki hafa áður fengið segavarnarlyf á að hefja meðferð með Xarelto a.m.k. 4 klukkustundum fyrir rafvendingu/lyfjavendingu til að tryggja fullnægjandi segavörn. Áður en rafvending/lyfjavending er gerð á að leita staðfestingar á því hjá öllum sjúklingum að þeir hafi tekið Xarelto samkvæmt ávísun. Við ákvörðun um að hefja meðferð og um meðferðarlengd á að hafa hliðsjón af gildandi leiðbeiningum um segavarnir hjá sjúklingum sem gangast undir rafvendingu/lyfjavendingu. Leiðbeiningar um notkun: Til inntöku. Taka skal töflurnar með mat. Ef sjúklingar geta ekki gleypt heilar töflur er hægt að mylja Xarelto töflu og blanda saman við vatn eða eplamauk strax fyrir notkun og taka það inn. Neyta skal fæðu strax eftir gjöf mulinna Xarelto 15 mg eða 20 mg filmuhúðaðra taflna. Einnig er hægt að gefa mulda Xarelto töflu um magasondu, eftir að rétt staðsetning sondunnar í maganum hefur verið staðfest. Gefa á mulda töfluna um magasondu í litlu magni af vatni og skola síðan vatni gegnum sonduna. Eftir gjöf mulinna Xarelto 15 mg eða 20 mg filmuhúðaðra taflna skal strax gefa næringu um sondu. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Virk blæðing sem hefur klíníska þýðingu. Áverki eða ástand þar sem talið er að hætta geti verið á mikilli blæðingu. Um getur verið að ræða sár sem er eða hefur nýlega verið í meltingarvegi, illkynja æxli þar sem mikil hætta er á blæðingu, nýlegan áverka á heila eða mænu, nýlega aðgerð á heila, mænu eða auga, nýlega innankúpublæðing, þekkta æðahnúta í vélinda eða grun um slíkt, missmíði slag- og bláæðatenginga, æðagúlp, eða mjög afbrigðilegar æðar í mænu eða heila. Samhliða meðferð með öðrum segavarnarlyfjum, t.d. ósundurgreindu (unfractionated) heparíni, léttu (low molecular weight) heparíni (enoxaparin, dalteparin o.s.frv.), heparín afleiðum (t.d. fondaparinux.), segavarnarlyfjum til inntöku (warfarín, dabigatran etexilat, apixaban o.s.frv.), nema við þær sérstöku aðstæður að verið sé að skipta um blóðþynningarmeðferð eða ef ósundurgreint heparín er gefið í skömmtum sem duga til að viðhalda opnum æðalegg í miðlægri bláæð eða slagæð. Lifrarsjúkdómur með blóðstorkutruflunum og blæðingarhættu sem hefur klíníska þýðingu þar með talið hjá sjúklingum með skorpulifur með Child Pugh B og C. Meðganga og brjóstagjöf. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá - www.serlyfjaskra.is. Vinsamlegast kynnið ykkur fræðsluefni ætlað læknum og sjúklingum áður en meðferð lyfsins hefst en efnið má nálgast hjá fulltrúa markaðsleyfishafa (sjá nánar hér á eftir). Afhenda skal öllum sjúklingum öryggiskort áður en meðferð er hafin. Afgreiðslutilhögun og greiðsluþátttaka: R, G. Pakkningar og hámarkssmásöluverð (ágúst 2015): Þynnupakkningar: 28 töflur (13.487 kr.), 42 töflur (19.583 kr. – einungis 15 mg), 98 töflur (41.619 kr.), 100 töflur (42.944 kr.). Markaðsleyfishafi: Bayer Pharma AG Umboðsaðili á Íslandi: Icepharma hf, Lynghálsi 13, 110 Reykjavík. Vinsamlegast hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa í síma 540 8083 ef óskað er eftir fræðsluefni eða frekari upplýsingum um lyfið. Heimildir: Samantekt á eiginleikum lyfs, júlí 2015. Sérlyfjaskrártexta í heild sinni má nálgast á heimasíðu Lyfjastofnunar: www.serlyfjaskra.is.

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.