Læknablaðið : fylgirit - 04.03.2016, Blaðsíða 4

Læknablaðið : fylgirit - 04.03.2016, Blaðsíða 4
4 LÆKNAblaðið 2016/102 FYLGIRIT 86 Ávarp Fólksfjölgun, hærri meðalaldur og aukning í ferðamannafjölda eru allt þættir sem geta haft áhrif á álag í heilbrigðisþjónustu og þar með bráðaþjónustu. Fleiri komur fjölveikra á bráðamóttökur og flóknari vandamál kalla á þverfaglegar og sérhæfðar úrlausnir sem þó þurfa að vera hagkvæmar og öruggar fyrir sjúklinga og samfélagið. Heilbrigðisþjónusta er þess eðlis að hún er í stöðugri mótun og framþróun í takt við nýja tækni og meðferðir en einnig þarf að taka mið af sam- félagsbreytingum. Oft verða breytingar bráðar og kalla á skjót viðbrögð en hins vegar má sjá aðrar breytingar fyrir og sýna fyrirhyggju. Til að þróa og áætla bráða- heilbrigðisþjónustu í framtíðinni má byggja á fortíðinni við að greina þarfir og gera áætlanir. Þema Bráðadagsins 2016 var valið sérstaklega með slíka framtíðarsýn í huga. Hvernig má sem best hanna og þróa þjónustu við bráðveika í framtíðinni? Þar sem framtíðin kemur strax á morgun þarf að hafa í huga þær aðstæður sem nú eru í þjóðfélaginu en einnig hvernig aðstæður verða á hinu nýja sjúkrahúsi sem heilbrigðisstarfsfólk og sjúklingar horfa til með eftirvæntingu. Með nýjustu rann- sóknum og gagnreyndum þjónustumöguleikum sem kynnt verða á Bráðadeginum 2016 má leggja grunn að þróun viðeigandi bráðaþjónustu á Íslandi til framtíðar. Bráðadagurinn hefur öðlast sess sem þverfagleg ráðstefna í bráðafræðum, eins og fjölmörg áhugaverð innsend ágrip bera vott um. Ráðstefnurit Bráðadagsins er orðið ómissandi og mikilvæg heimild í bráðafræðum. Í ár voru þverfaglegar nálganir að viðfangsefnum bráðaþjónustu sérstaklega áberandi og rannsóknir og verkefni kynnt bæði með erindum og veggspjöldum. Í þessu riti eru birt 21 ritrýnt ágrip sem endurspeglar nýjustu þekkingu og þróun í bráðaþjónustu á Íslandi á 21. öldinni. Von okkar er að efni þessa blaðs efli áhuga og hvetji til enn frekari rannsókna í bráðafræðum á Íslandi. Við færum höfundum ágripa, gestafyrirlesurum, styrktaraðilum, fundarstjórum og starfsfólki flæðisviðs bestu þakkir fyrir þeirra framlag til Bráðadagsins 2016. Fyrir hönd undirbúningsnefndar, Dr. Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir Lektor og verkefnastjóri Rannsóknarstofu Landspítala og Háskóla Íslands í bráðafræðum

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.