Læknablaðið : fylgirit - 04.03.2016, Page 4
4 LÆKNAblaðið 2016/102 FYLGIRIT 86
Ávarp
Fólksfjölgun, hærri meðalaldur og aukning í ferðamannafjölda eru allt þættir
sem geta haft áhrif á álag í heilbrigðisþjónustu og þar með bráðaþjónustu. Fleiri
komur fjölveikra á bráðamóttökur og flóknari vandamál kalla á þverfaglegar og
sérhæfðar úrlausnir sem þó þurfa að vera hagkvæmar og öruggar fyrir sjúklinga
og samfélagið. Heilbrigðisþjónusta er þess eðlis að hún er í stöðugri mótun og
framþróun í takt við nýja tækni og meðferðir en einnig þarf að taka mið af sam-
félagsbreytingum. Oft verða breytingar bráðar og kalla á skjót viðbrögð en hins
vegar má sjá aðrar breytingar fyrir og sýna fyrirhyggju. Til að þróa og áætla bráða-
heilbrigðisþjónustu í framtíðinni má byggja á fortíðinni við að greina þarfir og
gera áætlanir.
Þema Bráðadagsins 2016 var valið sérstaklega með slíka framtíðarsýn í huga.
Hvernig má sem best hanna og þróa þjónustu við bráðveika í framtíðinni? Þar
sem framtíðin kemur strax á morgun þarf að hafa í huga þær aðstæður sem nú
eru í þjóðfélaginu en einnig hvernig aðstæður verða á hinu nýja sjúkrahúsi sem
heilbrigðisstarfsfólk og sjúklingar horfa til með eftirvæntingu. Með nýjustu rann-
sóknum og gagnreyndum þjónustumöguleikum sem kynnt verða á Bráðadeginum
2016 má leggja grunn að þróun viðeigandi bráðaþjónustu á Íslandi til framtíðar.
Bráðadagurinn hefur öðlast sess sem þverfagleg ráðstefna í bráðafræðum, eins
og fjölmörg áhugaverð innsend ágrip bera vott um. Ráðstefnurit Bráðadagsins
er orðið ómissandi og mikilvæg heimild í bráðafræðum. Í ár voru þverfaglegar
nálganir að viðfangsefnum bráðaþjónustu sérstaklega áberandi og rannsóknir og
verkefni kynnt bæði með erindum og veggspjöldum. Í þessu riti eru birt 21 ritrýnt
ágrip sem endurspeglar nýjustu þekkingu og þróun í bráðaþjónustu á Íslandi á
21. öldinni.
Von okkar er að efni þessa blaðs efli áhuga og hvetji til enn frekari rannsókna í
bráðafræðum á Íslandi.
Við færum höfundum ágripa, gestafyrirlesurum, styrktaraðilum, fundarstjórum
og starfsfólki flæðisviðs bestu þakkir fyrir þeirra framlag til Bráðadagsins 2016.
Fyrir hönd undirbúningsnefndar,
Dr. Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir
Lektor og verkefnastjóri
Rannsóknarstofu Landspítala
og Háskóla Íslands í bráðafræðum