Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Page 12
VERSLUM HEIMA
Athygli beint
að atvinnu-
og verðmæta-
SKÖpun versl-
unarinnar
í ágúst 1984 ákvað stjórn Félags
sérvöruverslana að efna til sérstaks
átaks til að benda neytendum á
mikilvægi þess að versla heima.
Gerðist þetta í beinu framhaldi af
árvissri umræðu um innkaupaferð-
ir Islendinga til nágrannalandanna,
þar sem talið er að þjóðarbúið missi
af hundruðum ef ekki þúsundum
milljóna í tekjur á ári hverju. Mark-
miðið var að opna augu almenn-
ings og stjórnvalda fyrir þeirri
atvinnu- og verðmætasköpun sem
verslun stendur fyrir og þeim
virðisauka sem hún skilar hinn í
landið. Yfirskrift átaksins varð
Tryggjum atvinnu - verslum heima
og þróaðist það fljótlega frá því að
verða verkefni Félags sérvöruversl-
ana í breiða samvinnu fjölda fyrir-
tækja, stórra og smárra, í verslun
og þjónustu.
Efnt var til kynningarfundar 11.
október og þangað boðaðir
fulltrúar ýmissa verslunarfyrir-
tækja og stórra þjónustuaðila, auk
félagasamtaka vinnuveitenda og
launþega. A fundinum voru kynnt-
ar þær hugmyndir sem fyrir lágu
og gerðu fundarmenn almennt
góðan róm að.
Atakið var formlega sett í gang
28. október og var Davíð Oddsson
fenginn til að opna það á fundi í
Geysishúsinu. Þangað mættu full-
trúar ýmissa samtaka sem og kaup-
menn og fjölmiðlafólk. í framhaldi
var farið í dreifingu kynningarefnis
- veggspjalda og límmiða til
verslana um land allt og dreift var
300 þúsund innkaupapokum sem
merktir voru í bak og fyrir og kost-
aðir af greiðslukortafyrirtækjunum.
Þá voru birtar heilsíðuauglýsingar í
dagblöðum og einnig skjáauglýs-
ingar, auk þes sem félög og fyrir-
tæki víðs vegar um landið, tóku
málið upp, hver í sínu héraði.
"Við erum nokkuð sátt við hvern-
ig þetta gekk til", segir Baldvin
Omar Magnússon formaður Félags
sérvöruverslana. "Atakið náði því
sem til var ætlast og við hugsuðum
þetta aldrei nema sem fyrsta vers.
Fyrir liggur að halda áfram og
fylgja þessu eftir í ár og næsta ár og
mun undirbúningur hefjast strax í
vor. Markmiðið var að á nokkrum
árum gætum við náð inn í landið
aftur hluta af þeirri verslun sem nú
fer fram erlendis. Ahugi kaup-
manna á framhaldi er mikill, en
það voru vonbrigði að launþega-
félögin skyldu ekki fást til þátttöku.
Vonandi verður þar gerð bragarbót
á í haust."
Meðal þess sem átakið beindist
að var að vekja athygli stjórn-
valda á gildi verslunar. Af því
tilefni mætti fjármálaráðherra
ásamt aðstoðarmannai sínum á
fund starfshópsins. A mynd-
inni eru, t.f.v.: Þór Sigfússon
aðstoðarm. ráðherra, Friðrik
Sophusson fjármálaráðherra,
Bjarni Finnsson formaður KI,
Magnús E. Finnsson fram-
kvæmdastjóri KI, Einar Hall-
dórsson framkvæmdastjóri
Kringlunnar og Gunnar
Guðjónsson formaður
Laugavegssamtakanna.
A myndina vantar hins vegar
Baldvin Omar Magnússon
formann Félags sérvöru-
verslana
12 VERZLUNARTIÐINDI