Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Blaðsíða 32

Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Blaðsíða 32
EDINBORGARVERSLUN upp á þeim óvana að leyfa þeim kaþólsku að borða kjöt á föstunni sem kom sér svona illa fyrir ís- lenska fiskkaupmenn og þá sér- staklega fyrir Edinborg sem var langstærsti fiskkaupandinn á þeim tíma. Fór því svo að hið stóra, þarfa verslunarfyrirtæki dró smátt og smátt saman seglin og endaði með því að byrjað var að segja upp starfsfólki þegar árið 1913 gekk í garð." MIÐBÆRINN BRENNUR Fleiri áföll dundu yfir Edin- borgarverslun í kjölfarið. Einn vor- kaldan apríldag árið 1915 stóð miðbær Reykjavíkur í björtu báli. Tólf hús brunnu og þar á meðal öll verslunarhús Edinborgar. Engu varð bjargað svo að orð væri á ger- andi. Þetta var reiðarslag fyrir Asgeir Sigurðsson og verslun hans þó að flest væri tryggt á viðunandi hátt, bæði hús og vörur. En reksturinn hafði gengið frekar illa næstu árin á undan og þetta varð til þess að allmargar deildir Edin- borgar voru nú lagðar af. Skó- verslunin var til dæmis lögð niður en forstöðumaður hennar, Stefán Gunnarsson, setti upp eigin skó- verslun sem varð um áratuga skeið ein sú helsta í bænum. Sama má segja um klæðskeradeildina. Stjórn- endur hennar, klæðskerarnir Guðmundur Bjarnason og Guð- mundur Fjeldsted, settu upp sjálf- stætt klæðskeraverkstæði er þeir urðu að hætta hjá Edinborg og naut það mikillar virðingar í Reykjavík á millistríðsárunum. Þær deildir sem Edinborg hélt áfram með og núlifandi Reykvík- ingar á miðjum aldri og þar yfir muna vel eftir, voru vefnaðarvöru- verslun annars vegar og hins vegar glervöru-, búsmuna- og hreinlætis- vöruverslun. Báðar voru þessar verslunardeildir í leiguhúsnæði í Ingólfshvoli fyrstu árin eftir brunann. Sú breyting varð á árið 1917 að Skotarnir Copland og Berrie drógu sig út úr rekstrinum og Asgeir Sigurðsson varð einn eigandi Edin- borgarverslunar. Ásgeir Sigurðsson var kvæntur skoskri konu, Amelie Oliver frá Edinborg. Þau reistu sér einbýlis- hús í Suðurgötu 12 í byrjun aldar- innar og var það þá talið eitt hið glæsilegasta í Reykjavík. Frú Milly Sigurðsson, eins og hún var jafnan kölluð af Reykvíkingum, var mikil garðyrkjukona og var garður hennar rómaður fyrir fegurð. Þau hjón eignuðust einn son, Walter Sigurðsson og gerðist hann með- eigandi í versluninni árið 1928, en naut stutt við því að hann beið bana í slysi fjórum árum síðar. Var það mikið áfall fyrir foreldrana. Reyndar hafði Ásgeir kaupmaður eignast launson árið 1901 með Þórdísi Hafliðadóttur í Reykjavík. Það var sá frægi Haraldur Á. Sig- urðsson revíuhöfundur og gaman- leikari og varð hann nú einka- erfingi Ásgeirs Sigurðssonar. EN N AUKAST UMSVIFIN Eftir fyrri heimsstyrjöld var verslunin Edinborg enn ein sú stærsta í Reykjavík. Sérstök heild- verslun var stofnuð árið 1919 og flutti hún einkum inn matvörur og hreinlætisvörur. Einnig fékk hún umboð fyrir Goodrich-fyrirtækið sem framleiddi bíldekk og gúmmí- fatnað í stórum stíl. Ásgeir Sigurðs- son var áfram einn af hinum stóru fiskkaupmönnum og fiskútflytjend- um landsins og var þar í samvinnu við Berrie hinn skoska, fyrrverandi félaga sinn, en Geo Copland hafði sett upp eigin fiskverslun. Ásgeir rak þessa fiskútflutningsverslun fram að því að Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda - SIF - var stofnað árið 1932. Fljótlega eftir að fyrra stríði lauk fór Ásgeir Sigurðsson að hyggja að stórbyggingu á lóð sinni í Hafnarstræti 10-12 en hún stóð auð eftir brunann 1915. Hann fékk Einar Erlendsson húsameistara til að teikna fyrir sig mikla glæsibygg- ingu og var hún fulllgerð árið 1925 og jafnan síðan kölluð Edinborgar- húsið. Þetta var þrílyft, langt, steinsteypt hús með nýklassískum einkennum, flatsúlum og öðru skrauti, svo sem nafni verslunar- innar, sem mótað var í múrhúðina. Edinborgarhúsið stendur enn en hefur verið rúið upphaflegum sérkennum sínum og byggt ofan á það. Það er nú nýtt af Landsbanka Islands. Ásgeir Sigurðsson var kominn á sjötugsaldur er nýja húsið var full- gert og farinn að hugsa til þess að draga sig í hlé. Árið 1926 gerðist Sigurður B. Sigurðsson, sonur Björns Sigurðssonar bankastjóra, meðeigandi í Edinborgarverslun og tveimur árum síðar, Walter Sigurðsson, sonur Ásgeirs, eins og áður sagði. Walter var áhugamaður um nýmæli meðan hans naut við og fór nú Edinborgarverslunin að þreifa fyrir sér í iðnaði. Árið 1929 var að hans frumkvæði stofnað Fiskimjöl hf. á vegum verslunar- innar en árið 1934 stofnaði hún Veiðarfæragerð Islands í félagi við Pétur Jóhannsson. Þar voru fram- leiddar fiskilínur, öngultaumar og fleira, í stórum stíl. Ennfremur rak verslunin netagerð og gúmmíverk- stæði um hríð. FRUMHERJIFELLUR Ásgeir gamli Sigurðsson eða Ásgeir konsúll, eins og hann var oft nefndur en hann var breskur kon- súll, dró sig smám saman út úr rekstrinum. Fráfall Walters Sig- urðssonar árið 1932 varð honum þungbært og smám saman hvíldi stjórn fyrirtækisins nær eingöngu á meðeigandanum, Sigurði B. Sig- urðssyni. Hinn sonurinn, Haraldur Á. Sigurðsson, starfaði að vísu við Edinborg um árabil, en hvarf síðan eingöngu að hugðarefni sínu, leik- list og leikritagerð. Ásgeir Sigurðs- son lést 26. september 1935 og skorti þá tvo daga í 71 árs aldur. Féll þar í valinn merkur ágætis- maður sem ávallt mun verða minnst í verslunarsögu Islendinga. Það er af Edinborgarverslun að segja að hún var rekin áfram af Sigurði B. Sigurðssyni í Hafnar- stræti og varð hann einn eigandi hennar 1964. Skömmu síðar réðst hann í stórbyggingu innarlega við Laugarveg en þá fór að halla alvarlega undan fæti. Nokkrum árum síðar hætti Edinborgar- verslun. Merkum kafla í sögu versl- unar á íslandi var lokið. 32 VERZLUNARTIÐINDI

x

Verzlunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.