Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Blaðsíða 14
STALDRAÐ VIÐ Á NÝJU ÁRI
Staldrað við
á nýju ári
Hvað er forsvarsmönnum fyrirtækja minnisstæðast
frá liðnu ári og hverjar eru væntingar þeirra til ársins
sem nýlega er hafið? Við leituðum til nokkurra
félagsmanna ÍSLENSKRAR VERSLUNAR
Birgir R. Jónsson, Magnús Kjaran hf:
Vegur og virðing
verslunar fór
vaxandi á árinu
"Eftirminnilegast frá liðnu ári er
ekki hvað síst það, hversu vegur og
virðing verslunar hefur vaxið. Menn
virðast smátt og smátt vera að gera sér
grein fyrir mikilvægi verslunar til at-
vinnu- og verðmætasköpunar. Jafn-
framt er það staðreynd að verslun er
sú atvinnugrein sem hvað mestan þátt
hefur átt í að bæta kjör fólks með auk-
inni samkeppni og lægra vöruverði.
Þessi staðreynd er smám saman að
hljóta viðurkenningu.
A nýbyrjuðu ári bind ég miklar von-
ir við GATT. Þetta samkomulag mun
hafa mikil áhrif á milliríkjaviðskipti og
starfsumhverfi þeirra sem stunda inn-
og útflutning. Við sjáum fram á auk-
inn og auðveldari aðgang fyrir okkar
útflutningsvörur, þar með taldar land-
búnaðarvörur, en sjávarafurðir eru oft-
ast skilgreindar þar með.
Hvað innflutninginn áhrærir opnast
margir spennandi möguleikar, en
árangurinn mun ekki hvað síst fara
eftir því hvernig til tekst með tolla. Þar
koma strax upp í hugann nýir vöru-
flokkar eins og kjöt og ostar. Vissulega
veldur það ákveðnum áhyggjum að
forræði þessara mála skuli hafa verið
fært úr fjármálaráðuneytinu í landbún-
aðarráðuneytið. Fyrir vikið verður
fylgst af sérstakri athygli með álagn-
ingu innflutningsgjalda á þessar vörur,
og þá ekki síður á grænmetið, en
neysla og sala á því hefur sem kunn-
ugt er margfaldast á undanförnum
árum. Islensk verslunarfyrirtæki hafa
fullan hug á að nýta sér þau tækifæri
sem GATT býður upp á og munu
fylgjast gjörla með því hvernig stjórn-
völdum ferst úr hendi að sníða íslenskt
umhverfi að hinum alþjóðlegu samn-
ingum."
Magnús E. Firtnsson, framkvæmda-
stjóri Kaupmannasamtaka Islands:
Samstaðan í debet-
kortamálinu lengi
í minnum höfð
"Frá síðasta ári eru mér sennilega
minnisstæðastar þær deilur sem við
áttum í við banka og sparisjóði um
debetkortin, og lyktir þeirra. Sú vinna
stóð í rúmt ár og náðist verulegur ár-
angur vegna samstöðu hópsins sem að
deilunni kom okkar megin. Það hafði
enginn vogað sér, hvorki fyrr né síðar,
að standa þannig uppi í hárinu á
bönkunum, hér í þessu landi frænd-
semi, flokka og klúbba.
Á nýju ári er ég sannfærður um að
kaupmenn munu enn leita leiða til
þess að hagræða í verslunum sínum
og draga úr kostnaði. Tækninni fleygir
stöðugt fram og jafnvel hinar minnstu
verslanir munu í auknum mæli nýta
sér þá nútímatækni sem tölvur og
tölvuumhverfið býður upp á. Á hinn
bóginn óttast ég nokkuð þá sam-
þjöppun sem er að verða í matvöru-
versluninni. Hún gerir þeim, sem
áhuga hafa á, æ erfiðara fyrir að hefja
rekstur innan þessarar greinar."
Hallgrímur Gunnarsson, Ræsin
Lélegarðsemi-
þrjú fyrirtæki hætta
starfsemi
"Bílainnflutningur var í áframhald-
andi lægð á síðasta ári, sem náði botn-
inum síðari hluta ársins. Það er sýni-
legt að flestum tókst að ná tökum á
stöðunni í heild, en það kostaði sitt og
var dapurlegt að horfa á eftir þremur
innflutningsfyrirtækjum síðustu mán-
uði ársins. Séð út frá bílaeign lands-
manna hefur þróunin öll verið á versta
veg og alvarlegt áhyggjuefni að mark-
aðurinn færist nú óðum yfir í minni og
óöruggari bíla.
Fyrir stjórnendur fyrirtækjanna var
síðasta ár einnig erfitt vegna aðgerða
ríkisins í skattamálum, sem menn voru
að kljást við allt árið. Á ég þá bæði við
"skattarassíuna” frá 1993, sem skilaði
litlu fyrir ríkið en kostaði fyrirtækin
óhemju tíma og peninga, og svo virðis-
aukaskattinn á ábyrgðarviðgerðir sem
menn voru skikkaðir til að greiða á
síðasta ári. Ibáðum þessum málum
hefur ríkið farið offari, en þau bíða
bæði afgreiðslu yfirskattanefndar.
Væntingar mínar fyrir árið 1995 eru
einkum þær að ríkisvaldið beri gæfu
til að fara hóflegar í skattlagningu, í
þeirri von að stöðugleiki fari að skap-
ast í bílgreininni. í dag tekur ríkissjóð-
ur inn í tekjur af bílnum, 18 milljarða
króna á ári, þar af 12 milljarða í gegn-
um notkun hans og rekstur. Fari sem
horfir, að bílum fækki enn frekar, mun
þessi skattstofn minnka verulega. Þá
verður freistandi að hækka innflutn-
14 VERZLUNARTIÐINDI