Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Blaðsíða 15

Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Blaðsíða 15
Flest bendir nú til þess að íslenskt atvinnulíf sé á leið upp úr þeim öldudal sem einkennt hefur síðustu ár. Rekstraraðilar hafa haldið að sér höndum í samdrættinunr; á meðan hafa atvinnutæki gengið úr sér og viðhaldskostnaður aukist. En nú horfa margir fram á betri tíma. AÐMÖRGUER AÐ HYGGJA Mikilvægt er að vanda vel til fjárfestinga. Velja þarf hentugustu tækin, sem skila mestri arðsemi að teknu tilliti til allra kostnað- arliða. Einnig skiptir rniklu hvernig fjárfestingin er fjármögnuð. Við getum bent þér á leiðir þar sem þú losnar við að binda rekstrarfé í tækinu og þar sem fyrirgreiðsla þín í viðskiptabankanum helst óskert. Þú kannt e.t.v. að meta að geta fengið 100% fjármögnun þar sem tækið er megintryggingin og njóta staðgreiðsluafsláttar hjá seljanda engu að síður. NÚERRÉTTI TÍMINN Á Alþingi hafa verið sam- þykktar breytingar á lögurn um tekju- og eignarskatt. Heimilt er að fyma sérstakri flýtifyrningu þær fjárfest- ingar sem til er efnt nú í ár. Um er að ræða m.a. “fyman- legt lausafé”, en undir það flokkast hvers kyns atvinnu- tæki. Nefna má tölvu- og skrifstofubúnað, framleiðslu- tæki, bifreiðar (þó ekki fólks bifreiðar) og vinnuvélar af öllu tagi. Umrædd tæki má árlega fyma allt að tvöfaldri venjulegri fymingu á rekstrarárunum 1995, 1996 og 1997. RÁÐGJÖF Við hjá Glitni hf., dótturfyrirtæki Islandsbanka, sérhæfum okkur í fjármögnun atvinnutækja. Við gefum þér góð ráð um hvernig best er að standa að fjárfestingum og hvernig best er að fjármagna þær. Hringdu og fáðu sendar upplýsingar eða heimsæktu ráðgjafa okkar. c Glitntrhf DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA Ármúla 7, 108 Reykjavík Sími 560 88 00 og 560 88 20

x

Verzlunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.