Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Qupperneq 19

Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Qupperneq 19
GATT í GILDI Nýtt GATT-samkomulag færir versluninni fjölmörg tækifæri Um áramótin síðustu tók gildi eitt mikilvægasta samkomulag sem þjóðir heims hafa gert frá upphafi. Alls voru það 124 þjóðir, auk ESB, sem innsigluðu Uruguay-lotu GATT samkomulagsins og samþykktu að koma á fót Alþjóðaviðskiptastofn- uninni, WTO (World Trade Organ- ization). Talsvert færri þjóðir teljast þó meðal stofnaðila, því þjóðþing hverrar þjóðar þurfti að fullgilda samninginn fyrir árslok 1994, til að komast í þann hóp. Hér á landi tókst naumlega að herja þings- ályktunartillögu um samninginn í gegn á Alþingi fyrir áramót. Al- mennt eru menn sammála um að samningurinn um Alþjóðavið- skiptastofnunina muni virka sem vítamínsprauta á efnahag heimsins á næstu árum og nýjustu útreikn- ingar segja að fyrir vikið verði heimstekjur 510 milljörðum Banda- ríkjadollara hærri eftir tíu ár. Jafnræði enn í öndvegi Megininntak GATT er að viðskipti skuli stunduð á grundvelli jafn- ræðis og að ríki megi ekki mis- muna vörum við innflutning með tollum eða magntakmörkunum vegna uppruna eða áfangastaðar. A ofanverðum áttunda áratugnum þótti ljóst að hið almenna sam- komulag um tolla og viðskipti frá 1947, svaraði ekki lengur kröfum nútíma heimsviðskipta, m.a. vegna þess að samningurinn var tak- markaður við vöruviðskipti. I kjöl- farið hófust Uruguay-viðræðurnar á ráðherrafundi aðildarríkjanna í Punta del Este í Uruguay árið 1986. Það tók 8 ár að komast að endan- legri niðurstöðu enda um að ræða langviðamestu viðskiptaviðræður til þessa. Til viðbótar samningi um tolla og viðskipti, sem jafnframt nær nú til landbúnaðarvara, voru gerðir samningar um hugverkarétt í viðskiptum og þjónustuviðskipti, auk þess sem ríkin komu sér sam- an um hvernig haga skuli heildar- athugun og eftirliti, úrlausn deilu- mála o.fl. WTO leysir GATT af hólmi Við lok seinni heimsstyrjaldarinnar var ætlunin að setja á stofn þrjár nátengdar stofnanir um alþjóðlega efnhags- og viðskiptasamvinnu ríkja. Einungis náðist samkomulag um stofnun tveggja, þ.e. Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabank- ans. Með samningnum um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinar, verður þriðja stofnunin loks sett á fót. Henni er ætlað að mynda stofnanalegan ramma utan um hina ýmsu samninga sem gerðir voru í Uruguay-lotunni. Vöruúrval mun aukast Island mun hafa margvíslegan ávinning af nýja GATT-samkomu- laginu. Hvað innflutning áhrærir á að opnast fyrir fjölda nýrra vöru- flokka sem áður hefur verið óheim- ilt að flytja til landsins. Þar ber hæst ýmsar landbúnaðarvörur og er gert ráð fyrir að tollar leysi af hólmi magntakmarkanir og aðrar innflutningshindranir. Smátt og smátt skal dregið úr tollvernd á næstu 6 árum. Ekki sér þó fyrir endann á land- búnaðarþættinum. I samningnum er áðurnefnt 6 ára tímabil ætlað til aðlögunar innlendrar framleiðslu og á því skal lækka tolla um 36% að meðaltali. Þetta meðaltals- ákvæði hefur orðið til þess að land- búnaðargeirinn hyggst leggja mjög há tollaígildi á t.d. grænmeti, eða Verður væntanlega farið að skila sér fyrir lok ársins — segir Ólafur Davíðsson ráðuneytisstjóri Þó að ísland hafi gerst stofnaðili að Alþjóðaviðskiptastofnuninni um ára- mótin er vart hægt að tala um að áhrifa samningsins sé farið að gæta hér. Enda þarf fleira til að koma. Fyrir liggur að gera þarf fjölmargar breytingar á lög- gjöf um innflutning og vöruviðskipti áður en af framkvæmd getur orðið. Olafur Davíðsson ráðuneytisstjóri í for- sætisráðuneytinu, sem leitt hefur sam- starfsnefnd fimm ráðuneyta sem undir- býr þessar breytingar, segir undirbún- inginn sem slíkan ganga ágætlega. "Við vonumst til að bæði þeir sem viðkiptin stunda og neytendur verði farnir að merkja áhrif samningsins fyrir lok þessa árs. Það er hins vegar Alþingis að af- greiða lagabreytingar og ákveða hven- ær sú afgreiðsla fer fram og héðan af er ljóst að ekkert gerist fyrr en nýtt þing kemur saman í haust." - En hvernig munu menn merkja áhrif samningsins? ''Fyrst og fremst í auknu vöruvali, aðallega með innflutningi á landbúnað- arvörum sem hingað til hafa ekki verið fluttar til landsins. Ennþá er þó nokkuð óljóst hversu víðtækur sá innflutningur verður. - Hvað með pann ótta innflytjenda að t tilboði íslands um tollbindingar á land- búnaðarvörur, sé í raun verið að opna fyrir mögulega verðlwekkun en ekki lækkun ? "Það er ótvírætt að öll samningsgerð- in gekk út á að draga úr viðskiptahindr- unum og því stríðir hækkun tolla þvert gegn anda samningsins. Framkvæmdin verður að tryggja að ekki verði gengið gegn þessum megintilgangi. Það er samkomulag milli ríkisstjórnarflokk- anna um að efnislegt forræði landbún- aðarmála skuli vera í landbúnaðarráðu- neytinu og við það hefur allur undir- búningur miðast. Framkvæmdin hlýtur hins vegar að byggja á samkomulagi þeirra ráðuneyta sem um málið fjalla, þau verða að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Island mun hafa margvíslegan hag af þessum samningi. Það hefur sýnt sig að þegar vöxtur er í heimsbúskapnum eykst eftirspurnin eftir okkar afurðum og verð á þeim hækkar. Við sjáum fram á Iækkun tolla á fjölmörgum afurða okkar í ýmsum löndum, í samræmi við tvíhliða samninga sem gerðir voru. Aukið frjálsræði mun greiða fyrir öllum viðskiptum og vöruúrval verður í kjöl- farið meira en áður. Þá hefur ísland ótvíræðan ávinning af því að Alþjóða- viskiptastofnunin taki við af GATT. Stofnunin mun hafa meira vald til að fylgja eftir kvörtunum og betri tök á að treysta réttaröryggi smærri þjóða. Þannig ættu hagsmunir okkar að verða betur tryggðir en ella." VERZLUNARTIÐINDI 19

x

Verzlunartíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.