Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Síða 20
GATT í GILDI
mörg hundruð prósent í sumum
tilvikum, og opnar þannig fyrir
minni lækkun á öðrum vöruteg-
undum. Þessum flókna talnaleik
er í raun ætlað að viðhalda inn-
flutningshindrunum á ýmsum
landbúnaðarvörum svo lengi sem
mögulega er hægt. Afleiðingin er
einföld: Hækkun vöruverðs. Og
þetta gerist innan veggja landbún-
aðarráðuneytisins, sem fengið hef-
ur forræði í innflutningsmálum
matvara og þannig frítt spil til að
standa vörð um hagsmuni land-
búnaðargeirans
Möguleikar útflytjenda
Það er hins vegar ekki hvað síst
útflutningsverslunin sem fær ný og
áður óþekkt tækifæri með samn-
ingnum. Kröfur Islands um tolla-
lækkanir beindust einkum að fiski
og fiskafurðum, sem og ýmsum
iðnaðarvörum tengdum sjávarút-
vegi. Þar náðist mikill árangur í
tvíhliða viðskiptasamingum við
stórar viðskiptaþjóðir eins og
Bandaríkin og Japan, en aðgangur
að mörkuðum Evrópu er þegar
tryggður með EES og fríverslunar-
samningum við ríki Mið- og
Austur Evrópu. Jafnframt er ljóst
að Island nýtur góðs af tilboðum
annarra ríkja innan samkomulags-
ins, því í krafti bestukjarareglunnar
nýtur Island þeirra tollalækkana
sem önnur ríki hafa náð fram í við-
ræðunum. Vegna þessa eru fyrir-
sjáanlegar umtalsverðar tollalækk-
anir inn á ýmsa þá markaði sem
Islendingar horfa vonaraugum til í
náinni framtíð, einkum í Asíu, en
einnig í Mið- og Suður-Ameríku.
Og þá má ekki gleyma þeim mögu-
Hvar verða tækifærin?
í þingsályktunartillögunni um full-
gildingu samningsins um stofnun
Álþjóðaviðskiptastofnunarinnar er að
finna upplýsingar um þær tollalækk-
anir sem verða á helstu framleiðslu-
vörum Islendinga á ýmsum mörkuð-
um. Kemur m.a. fram að óvegin tolla-
lækkun á fisk og fiskafurðuir er 29,6%
til Bandaríkjanna, 26% til Japan, 27,2%
til Kóreu, 51,2% til Singapúr, 28,1% til
Malasíu og 28,8% til Mexíkó.
I þessu ljósi er fróðlegt að skoða
upplýsingar sem fram komu í tíma-
ritinu Economist nýverið um efna-
hagshorfur í heiminum á næstu árum.
Þar eru spáð fyrir um vöxt landsfram-
leiðslu í hinum ýmsu heimshlutum
næstu tíu árin og kemur engum á
óvart að þar tróna löndin í Asíu og
Mið-og Suður Ameríku efst á lista.
Þarna er um að ræða gífurlega fjöl-
menn svæði og má nefna að Kínverjar
eru nú komnir yfir milljarðinn, á
Indlandi búa um 900 milljónir, í Mið-
og Suður Ameríku um 450 milljónir og
í Hong Kong, Singapore, S-Kóreu, Tai-
wan og Japan tæpar 300 milljónir, þar
af 200 milljónir í Japan.
Batnandi efnahagástand í þessum
ríkjum, eykur kaupgetu íbúanna og
opnar fyrir innflutning þeirra á ýms-
um varningi frá efnaðri þjóðum heims.
Sem dæmi er nefnt að í Kína, Indlandi
og Indónesíu séu í dag um 100 milljón-
ir manna með sömu kaupgetu og
Spánverjar, sem eru stór kaupandi
fiskafurða frá íslandi. Árið 2010 verð-
ur samsvarandi tala hins vegar 700
milljónir. Haldi landsframleiðsla
áfram að aukast í Kína svipað og verið
hefur, verða meðaltekjur á mann árið
2020 um 13 þúsund Bandaríkjadalir,
en það samsvarar meðaltekjum Spán-
verja í dag.
leikum sem íslensk landbúnaðar-
vara fær á erlendum mörkuðum.
Aukin viðskipti - betri kjör
Almennt eru menn sammála um
að samningurinn um Alþjóðavið-
skiptastofnunina muni leiða til
aukinna heimsviðskipta, hagvaxtar
og betri lífskjara. Er það kærkomin
upplyfting eftir efnahagslega lá-
deyðu undanfarinna ára. Ymsum
tölum hefur verið velt upp í því
sambandi og margir sett sig í spá-
mannlegar stellingar. I skýrslu
utanríkisráðherra til Alþingis í
apríl 1993 kemur fram sú áætlun
að heimstekjur muni aukast um
200 milljarða dollara á ári í kjölfar
Uruguay-viðræðnanna. I þings-
ályktunartilögunni um fullgild-
ingu samningsins um WTO segir
hins vegar að samkvæmt nýjum
útreikningum sérfræðinga GATT
megi ráðgera að eftir 10 ár verði
heimstekjur a.m.k. 510 milljörðum
dollara meiri, en ella hefði verið,
vegna samningsins. Hvernig svo
sem menn velta slíkum tölum upp,
er ljóst að viðskipti munu aukast
verulega. Jafnframt verður þróun-
arlöndum tryggð meiri hlutdeild í
heimsviðskiptunum með aukinni
fríverslun. Allt hangir þetta á sömu
spýtunni því um leið og útflutn-
ingur þróunarlandanna vex, eykst
geta þeirra til að kaupa margvís-
legan varning frá iðnríkjum, sem
þannig auka einnig framleiðslu
sína, útflutning og tekjur. Hvar
sem borið er niður í heiminum, eru
væntingar til samningsins því þær
sömu, það er að aukið viðskipta-
frelsi og afnám viðskiptahindrana
muni leiða til betri lífskjara fyrir
alla þegar upp er staðið. Og hvaða
atvinnugrein ætli verði þar í lykil-
hlutverki? Jú, eimitt - verslunin.
Jón í Nóatúni
sjötugur
Jón Júlíusson, kaupmaður f
Nóatúni, varð sjötugur nú í
byrjun ársins. Jón hefur lengi
verið í forystu matvörukaup-
manna innan Kaupmannasam-
taka Islands og gegnt fjölda
trúnaðarstarfa á vegum sam-
takanna og utan þeirra. I tilefni
afmælisins færðu Kaupmanna-
samtök íslands honum að gjöf
málverk frá æskuslóðum Jóns á
Snæfellsnesi eftir Bjarna Jóns-
son listmálara.
20 VERZLUNARTIÐINDI