Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Qupperneq 28
EDINBORGARVERSLUN
það er öðru nær. Verslunin Edin-
borg átti sinn stóra þátt í að breyta
hugsunarhættinum. Allt í einu var
viðskiptamaðurinn farinn að hafa
meiri rétt en afgreiðslumaðurinn.
Það var hann sem hafði ávallt rétt
fyrir sér en sá sem afgreiddi var
aðeins þjónn hans.
BLÓMLEG VERSLUN
Uppgangur Edinborgarverslun-
arinnar undir stjórn Asgeirs Sig-
urðssonar var ævintýralegur. Um-
setning verslunarinnar fyrsta árið
sem hún starfaði var tæpar 43 þús-
und krónur en tíu árum síðar var
umsetningin komin upp í tvær og
hálfa milljón og hafði nær sextíu-
faldast þrátt fyrir litla sem enga
verðbólgu á sama tíma. Arið 1895
voru fastir starfsmenn verslunar-
innar fimm, eins og áður sagði, en
tíu árum síðar voru þeir orðnir 58
og er þá ekki talinn með fjöldi dag-
launamanna.
Fyrst í stað flutti Edinborgar-
verslun eingöngu inn útlendar vör-
ur og verslaði með þær en fljótlega
fór Asgeir Sigurðsson að þreifa
fyrir sér með að kaupa saltfisk og
aðrar íslenskar afurðir gegn stað-
greiðslu í beinhörðum peningum,
skíragulli frá Englandi. Sú nýjung
olli einnig straumhvörfum í
útflutningsverslun Islendinga. Fór
svo á árunum 1901 og 1907 að
Edinborg náði að kaupa stærsta
hlutann af fiskframleiðslu Islend-
inga og var megnið af fiskinum
sent beint til Spánar og Italíu en
hafði áður oftast farið um Kaup-
mannahöfn með tilheyrandi milli-
liðakostnaði þar. Asgeir fékk góð
sambönd við spænsk og ítölsk
verslunarfyrirtæki og árið 1905
urðu nokkur þeirra meðeigendur í
fiskverslun Edinborgar. Má því
segja að á þeim tíma hafi Verslunin
Edinborg verið orðin fjölþjóðlegt
fyrirtæki þar sem eigendurnir voru
íslenskir, skoskir, spænskir og
ítalskir.
ALÞJÓÐLEG ÚTGERÐ
OG FISKVERKUN
Til þess að fiskverslunin gengi
sem best fyrir sig voru stofnuð
útibú verslunarinnar víða um land:
á Akranesi, í Keflavík, Hafnarfirði,
á ísafirði, Akureyri, Eskifirði og í
V estmannaeyjum.
Árið 1901 hóf Edinborg sjálf
stórfellda skútuútgerð. Það ár var
stofnað á hennar vegum dóttur-
Efri mynd: Auglýsing frá Edinborg á
kreppuárunum.
Neðri mynd: Auglýsingavagn Edin-
borgar árið 1909. Efst trónir "negrinn”
og sjást glögglega hin amerísku áhrif á
auglýsingaaðferðina.
fyrirtækið Sjávarborg. Skyldi verk-
efni þess vera þilskipaútgerð, fisk-
verkun og fiskverslun. Strax voru
keyptir sjö stórir kútterar og hafði
Sjávarborg um tíma mest umsvif
allra útgerða í Reykjavík. Meðal
annars keypti hún öll fiskiskip
Geirs kaupmanns Zoéga í Reykja-
vík og einnig skip Ágústs Flygen-
rings í Hafnarfirði. Skúturnar urðu
tíu eða ellefu þegar flestar voru.
Munu þær reyndar að verulegu
leyti hafa verið gerðar út fyrir
reikning spænskra fiskkaupmanna
og má segja að Edinborg hafi verið
leppur fyrir þá. Miðstöð útgerðar-
innar var á svokallaðri Sjávarborg-
arlóð neðst við Barónsstíg. Þar var
tekið á móti afla, gert að honum og
fiskurinn þurrkaður, ekki aðeins
fiskur úr skútum verslunarinnar
meðan þær voru við lýði, heldur
og frá fjölmörgum öðrum útgerðar-
mönnum. Eftirfarandi frétt birtist í
Þjóðólfi í febrúar 1902:
"Um 600 þúsund krónur hefur
verslunin Edinborg hér í bænum
borgað hér á landi næstliðið ár fyrir
saltfisk, sundmaga, vinnulaun við
útskipun fisksins og fleira, auk
þeirrar atvinnu er verslunin hefur
veitt með þilskipaútgerð sinni og
fiskverkun við þá útgerð. Forstöðu-
maður verslunarinnar hér, hr.
Ásgeir Sigurðsson, er umboðsmað-
ur fiskkaupmanna á Spáni svo að
þar eru engir milliliðir. Rennur því
enginn ágóði í vasa erlendra milli-
göngumanna og leiðir þar af að
fiskurinn getur verið hér í hærra
verði en ella. Verslunin Edinborg
hefur fyrst allra verslana hér
grundvallað viðskipti sín á pen-
ingaborgun og á miklar þakkir
skilið fyrir þá framtakssemi og
þann dugnað sem hún hefur sýnt í
því að efla bein peningaviðskipti á
landinu enda hefur hún blómgast
ár frá ári. Mundi mörgum bregða
við ef þessi fiskkaup verslunar-
innar hættu því rúm hálf milljón
króna í skildingum inn í landið á
ári, er allmikið fé eftir vorum mæli-
kvarða."
Svo mikil var þensla fyrirtækis-
ins að þessar 600 þúsund krónur
árið 1901 voru orðnar ein milljón
og 750 þúsund krónur árið 1905. Þá
var líka hámarkinu náð. Ári áður
hafði allri skútuútgerð verið hætt -
eins og hendi væri veifað - og var
það að kröfu Spánverja sem munu
ekki hafa talið borga sig að standa í
slíkum rekstri lengur.
SKÓLIVERÐANDI
KAUPMANNA
Höfuðstöðvar verslunarinnar
Edinborgar voru alla tíð í Reykja-
vík. Litla húsið í Hafnarstræti 8
varð nær strax of lítið og voru þá
keyptar hinar gömlu eignir Knud-
zonsverslunar í Hafnarstræti 10-12.
Þar var reist nýtískulegt verslunar-
hús árið 1905 með stærri verslun-
argluggum en áður höfðu þekkst í
Reykjavík og miðstöðvarkyndingu
sem þá var nýjung. Enn voru færð-
ar út kvíarnar og keypt hús í
Austurstræti sem lágu að húsunum
við Hafnarstræti. Deildir Edinborg-
arverslunar í Reykjavík urðu alls
um tólf, þegar flestar voru, og
unnu þar fjölmargir íslendingar
sem síðar urðu þekktir kaupmenn í
Reykjavík. Hallgrímur Benedikts-
son, síðar stórkaupmaður, var til
dæmis fyrir nýlenduvöruversl-
28 VERZLUNARTIÐINDI