Verzlunartíðindi - 01.02.1995, Qupperneq 31
EDINBORGARVERSLUN
... - ■
Einar kaupir armbönd, hringa,
ætlar brátt að láta syngja:
"Forðum til hins fyrsta manns."
I gær tók Björg sér ballskó eina,
biður að taka frá en leyna
göngustafi gentlemanns.
Hanar, fuglar, kýr og kettir,
kassar perluskeljum settir.
Stundanegrinn. Flest má fá.
Dómínó og dýr sem synda.
Dómínó stærri og albúm mynda
og ótal fleira er að sjá."
Eitt sinn var auglýst í Edinborg
að hver sem keypti pund af kaffi
fengi með í pakkanum miða sem
bókstafur var prentaður á og þegar
sá hinn sami gæti skilað miðunum
þannig að úr þeim mætti lesa orðin:
"Edinborgar Excelsior-kaffi", þá
mátti hann kjósa sér einhvern nyt-
saman búshlut úr versluninni.
Eitt ráðið var það að hlaða kolum
í stafla og áttu menn að giska á
hveresu þungi þeirra væri mikill.
Sá sem komst næst hinu rétta fékk
kolabinginn að launum, að sjálf-
sögðu heimsendan sér að kostnað-
arlausu.
Einu sinni var auglýst að hver
sem verslaði fyrir krónu minnst
fengi afhent póstkort og skyldi sá
fá verðlaun sem oftast gæti skrifað
Verslunin Edinborg á kortin.
Brautryðjandi úti í heimi, í hvers
konar auglýsingabrögðum, var um
þær mundir fyrirtækið Lever
Brothers sem framleiddi Sunlight-
sápu og fleiri vörur. Edinborg hafði
umboð fyrir þetta fyrirtæki og lét
ekki sitt eftir liggja.
Það þótti tíðindum sæta er
Edinborg auglýsti að sá fengi 20
þúsund króna verðlalun sem gæti
sýnt fram á að Sunlight-sápan væri
ekki eins góð og lofað væri. Verka-
menn í Reykjavík sem aðeins höfðu
nokkur hundruð krónur í árslaun,
kannski í mesta lagi eitt þúsund,
hugleiddu mjög hvernig þeir gætu
nælt sér í þessa peninga en engum
hugkvæmdist ráð til þess. Hins
vegar varð þetta til þess að nafn
Sunlight-sápunnar var á hvers
manns vörum og var því um snjallt
auglýsingabragð að ræða.
FRÍ HEIMSENDING
Á HESTVAGNI
Helsti keppinautur Edinborgar
var Thomsens-magasín. Þessum
tveimur verslunum lenti stundum
harkalega saman og háðu opin-
berar deilur vegna hinnar hörðu
samkeppni í Reykjavík á fyrstu
árum 20. aldar. Arið 1906 byrjaði
Edinborg á þeirri nýjung að bjóðast
til að aka öllum vörum heim til
viðskiptamanna, hverju nafni sem
þær nefndust, og fékk sér þrjá
hestvagna í þessu skyni. Þennan
heimflutning tóku svo flestar aðrar
verslanir upp og var óspart auglýst
í blöðum bæjarins: "Vörurnar send-
ar frítt heim", "vörurnar sendar
heim að kostnaðarlausu". Sigur-
björn Þorkelsson, þá starfsmaður
Edinborgarverslunarinnar, segir í
endurminningum sínum.
"Nú kom samt í ljós að talsverðir
annmarkar voru á þessari heim-
sendingu vara og kaupmenn höfðu
ekki gert ráð fyrir því að fólk tæki
þessu nýja boði um bætta þjónustu
svo bókstaflega sem raun varð á.
Menn komu ofan úr sveitum og
heimtuðu allt sent heim til sín.
Heimsendingarástríðan fór nú að
grípa svo mjög um sig meðal bæjar-
búa að undrun sætti. Beðið var um
einn eða tvo eldspýtustokka eða
eitt títuprjónabréf eða pund af salti
- allt áttu kaupmennirnir að senda
heim."
PÁFINN GERIR GRIKK
Á árunum 1907 til 1908 gekk
fjárkreppa yfir Vesturlönd.
Sigurbirni Þorkelssyni segist svo
frá:
"Það duldist engum að eftir árið
1908 til 1909 varð hlutafélagið Cop-
land og Berrie fyrir ægilegum töp-
um á fiskkaupum, allt að tveimur
milljónum. Sú saga gekk að það
hefði verið páfanum í Róm að
kenna. Hann hefði allt í einu tekið
m
fyrir:
SKRIFSTOFUNA?
rekstrarvorur
Irekstrarvöru v.i ;1
I íiinprrlís (BÉlilÍÍ! ■■ L|ii»J[J
Ljósritunarpappír, tölvupappír, faxpappír,
bréfabindi, plastmöppur, skrifblokkir,
stílabækur, gatarar, heftarar, pennar o.m.fl.
Hagstætt verð.
Líttu við og skoðaðu úrvalið!
Með allt á hreinu ! ^
REKSTRARVÖRUR Ry
RÉTTARHÁLSI 2 • 1 10 REYKJAVÍK • SÍMI: 587 5554
VERZLUNARTÍÐINDI 31