Bókasafnið - 01.01.2000, Side 6

Bókasafnið - 01.01.2000, Side 6
Yfir hafdjúpið heyri eg kveina mína einmana lærisveina. Til helvítis hrapa á jólum, þeir sem hröktu mig burtu úr skólum. Þá hrópar heilagur andi: „Hvort er nú sál þín í standi?” Sál mín, hún er hrein og í standi Eg hlýði þér heilagur andi. Hratt skríður Lyra mót austri. Eg víl lifa og deyja j klaustri. Á íslandi eru hörkur og hríðar. Mig langar ekkert að ríða. Indæll er svalinn á austan. Eg þekki ekkert Jón gamla Austmann Engan mann eg heyri kveina. Aldrei hefi eg átt lærisveina. ifUxui-! 'fktf CK ’jvfÁ Vf)-nS oö) ’feucðjja rVVi) ÁuMAaAvy'Oo-f Z^. -Piat&Cwyi txj- acM*Wwi /líifiSa.. oti, cufyit, aS c-j. fi-í /yvu, ilicwtafzi dlufta, l jivutcvA li&Mt/Ut /xtb-cL s<f«» •vylz/eur -^f-ocvnou: 4'HÍr -PvfXyXcdtu^ tdstvíCfAcvcI. álAvþ eyyvvtC oíX ex&t i Uy o/ovf Á/ÍD-yvi wvrt uX x ■Évyvwi OaJJia Sufc. ihvfS Uy Æilo ^■CCiyviXLlZLvvv, OL^ iÁ,vt ÉuHrHÍ lWtdu Pfifl CCÍUúvM1- Zi^jtÁviC^. Jfú, {cvuæ£MaSj fyCfVtvlUiJ HilíwiClvtUwi 'IKC-tX 'atMíccviJl (VYlifö U^, cdlU <VMX*m |' tMuv íirv1 9-vwwi vKt-Cx %rtx$w /Vvvvja u Sv^Tlvr, -pJt oi OjCyímt t, tyícJficdtÁAMJytovwiiYwi ■tt/w'Áuw’ /Íl^átcUYiJLáXcAXX, 1hU {latc^ Écjt í himininn hopp á jólum þeir hröktu mig burtu úr skólum, Nú hneigir sig heilagur andi. Hann sér, að eg er í standi, Svona éta ekki aðrir ofan í sig en þeir, sem eru fordjarfaðir af auðmýkt útvaldra. Kl, hálfeliefu á mánudagskvöldið lögðumst við að hafnar- bakkanum í Bergen. Burðarkarlar komu undir eins um borð og buðust til að bera dót okkar. Gamall karl tók töskur okkar félaganna og keyrði í handvagni upp í Bonda heimen, en við fylgdumst með. Bondaheimen er hótel, sem bændur hafa reist. Það fór hrollur um mig, er eg heyrði nafnið, en Frey- steinn hafði vísað félaga mínum á þessa vistarveru. Hótel þetta fanst mér leiðinlegt, Við fengum allstóra stofu til íbúðar með nöktum steinveggjum og ódúklögðu gráu stein- gólfi, Tvö rúm voru þar, einn klæðaskápur, þvottaborð, dívan teppislaus úr skinni og tveir stólar, Mikill munur fanst mér á þessari íbúð og ensku hótelum eða Hotel de Palai í París. Þó var þarna rándýrt að vera, Við komum þangað kl. 111A um kvöld og fórum þaðan kl. 6 næsta kvöld, fengum smurt brauð og mjólk fyrra kvöldið og átum óskemtilegan morgun- mat og miðdegismat daginn eftir. Þetta kostaði ásamt rúminu 13 kr. og 50 aura fyrir hvorn, Norsk bændamenning. Kl. 12 daginn eftir tókum við að rölta um bæinn, fórum í banka og leituðum upp járnbrautarstöðina. Bergen þykir mér fremur fallegur bær, einkanlega er landslagið fallegt. Mörg húsin standa hátt uppi í hlfðum og allar götur uppi á fjalla- brúnunum. Þaðan skína Ijós í myrkri. Það á við mig. Við skoðuðum elzta hús I Bergen. Það er höll, sem reist var á dögum Hákonar gamla og var drykkjarsalur konungs, Það er allmikið hús, Fyrir enda stendur hásæti konungs og drottn- ingar, en meðfram hliðum eru bekkir, Húsið er úr steini, gólf úr timbri og ekkert loft, heldur sér upp f rjáfrið, sem er alsett drekahausum; en á öðrum veggnum eru málaðir ríðandi hermenn. Eg sagði við karlinn, sem sýndi okkur húsið, að hér hefði Snorri Sturluson setið og drukkið sig fullan, „Já," sagði karlinn. „Þá var meira frelsi en nú á tímum. Noregur hefur aldrei átt jafngóða daga og undir stjórn Hákonar. Og táraðist yfir hnignun tímanna. Frá Bergen héldum við kl. 6.20’ á þriðjudagskvöld og kom- um til Voss kl. 9, Guðmundur Hagalín er ekki heima, Hann er á fyrirlestrarferðum úti á landi, Hann hefir tvo fyrirlestra og býður fólki að velja um. Kona hans hlær að þessu fyrirlestrar- standi manns síns 4 BÓKASAFNIÐ24. ÁRG, 2000

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.