Bókasafnið - 01.01.2000, Side 8
Kristín Bragadóttir
Tréskurðarmyndir til
bókaskreytinga
Islensk prentlistarsaga er að mörgu leyti forvitnileg,
ekki bara hvað varðar prentun og prentfrágang held-
ur Ifka vegna myndefnis. Hér á landi hófst prentun
um 1530 og var þá lögð megináhersla á texta en smám
saman fær myndefni einnig rými á síðum bókanna. Þar sem
kirkjan réð yfir prentsmiðjum á íslandi fyrstu aldirnar var
einungis um prentun á guðsorði að ræða og að sjálfsögðu er
myndefnið einnig sótt til kristninnar,
Margar elstu og fágætustu bækur fslendinga eru varðveittar
á þjóðdeild Landsbókasafns fslands -
Háskólabókasafns sem auk þess geymir
marga aðra þjóðardýrgripi. Þar getur að
líta tréskurðarmyndir og koparstungur
sem eru elstu aðferðir ti! myndskreytinga
■prentaðra bóka, Hér verður einkum fjallað
um þróun í gerð tréskurðarmynda frá upp-
hafi og til mynda Guðbrandsbiblíu, sem
prentuð var á Hólum 1584, en hún er
prýdd mörgum og vel gerðum myndum
sem voru skornar út í tréplötur,
Þróun í tréskurði
Tréskurðarmyndir eiga sór mjög langa
forsögu. Vitað er að Babýloníumenn,
Egyptar, Grikkir og Rómverjar notfærðu
sér þessa aðferð við að búa til nauðsyn-
lega stansa og stimpla, til dæmis fyrir leirplötur. Hin eiginlega
tréskurðartækni til prentunar mun þó hafa borist okkur frá
Kínverjum eins og svo margt annað nytsamlegt. f þessu
ævintýralandi menningar í austri var löng hefð fyrir tréskurði og
tréristum, Tréskurður var mjög vel þekktur og notaður til prent-
unar þegar á 10. öld. Til Evrópu barst tæknin til slíkrar notk-
unar fyrst um 350 árum síðar. Allar götur frá tímum Han-
keisaraættarinnar, sem ríkti við upphaf tímatals okkar, unnu
Kínverjar með háþrykk á silki. Út frá því þróaðist svo smám
saman listin að skera letur í tréplötur, önnur mikilvæg upp-
fínning, sem einnig kom frá Kínverjum, var pappírinn en hann
var skilyrði þess að prentun næði nokkurri útbreiðslu.1
Uppgötvun Kínverja á gerð pappírs skipti miklu máli og þeir
vissu líka hvernig átti að nota hann til dreifingar á prentuðu
efni og myndefni. Á nýju,‘ sléttu, ódýru síðurnar sfnar hófust
þeir nú handa við að prenta orð með stimplum eins og þeir
höfðu löngum gert á leirtöflur. Þeir smurðu bleki úr vatnslitum
á blokk og pressuðu á pappír alveg eins og Evrópumenn
gerðu við fyrstu prentun sína mörgum öldum síðar.2
í Evrópu hófu menn vinnu með lausstafaletur á fyrri hluta
15. aldar, með Gutenberg í broddi fylkingar, en þá hafði fram-
leiðsla á prentpappir og prentsvertu náð
þar nægum gæðum, Myndir og texta var
nú hægt að setja saman og prenta sam-
tímis af tréblokkum á einfaldan og ódýran
hátt miðað við það sem áður hafði verið
unnt,
Þar sem meirihluti íbúa Mið-Evrópu var
enn ólæs fékk myndefni þegar mikið gildi
og varð vinsælt, Við lok 14, aldar voru
fyrstu tréskurðarmyndírnar i Evróþu skorn-
ar af munkum, sem sáu í greininni mögu-
leika á listsköpun sem hentaði fyrir þorra
almennings, Staðan hefur líklega ekki verið
ólfk því sem við þekkjum nú að því leyti að
fólk hefur kunnað að meta myndefni, Strax
í byrjun var þvf komið til móts við þessar
langanir fólksins fyrir myndir. Frummyndir
voru of dýrar fyrir flesta og þess vegna var þá sem nú ein-
ungis á færi forréttindahópa að eignast myndlist, Farið var að
þrykkja myndir af tréblokkum í svolitlum upplögum, á sama
hátt og grafík nú til dags, sem gerir myndefni aðgengilegra og
ódýrara en ef um eina einustu frummynd er að ræða,
Segja má að tréskurður hafi smám saman orðið þjóðleg
listgrein, í upþhafi tréskurðartímans einkennir nýjabrum og
frískleiki útskurðinn, sem aðeins er hægt að líkja við endur-
nýjun tróskurðarins sem átti sér stað 500 árum síðar, Þessar
tréskurðarmyndir, oft mjög fallega handlitaðar, voru seldar við
kirkjulegar hátíðir og önnur slfk tækifæri, Þær fengu snemma
menningarsögulegt gildi,
Tréskurðarmynd eftir Burgkmair frá því um 1514.
Myndin sýnir Maximilían keisara
segja málaranum til.
6
Bókasafnið24, Arg. 2000