Bókasafnið - 01.01.2000, Page 11

Bókasafnið - 01.01.2000, Page 11
myndmót til láns eða kaups. Komið hefur í Ijós að myndírnar hafa verið fengnar erlendis frá. Eru sumar prentaðar eftir myndamótum úr þýskum biblíuprentunum. Myndirnar eru allar ómerktar nema ein af Páli postula og umgerðin um titil bók- arinnar, Myndin af sánkti Páli er mörkuð fangamarki Guð- brands og hin líklega líka, þótt á því leiki meiri vafi. Frekar eru líkur til þess, að biskup hafi gert eitthvað af upphafsstöfum, skreytingum eða bókahnútum en allt er það haganlega gert. Magnús Már Lárusson segir í formála að Guðbrandsbiblíu í Ijósprenti að Guðbrandur hafi aflað myndamóta frá útlöndum en hafi sjálfur skorið hnúta og annað skraut ásamt Grími Eiríkssyni í Viðvík.10 Ætla má að Jón JÖnsson, áðurnefndur prentari, og Guð- mundur Erlendsson prestur hafi séð um myndaþrykkin ásamt öðrum verkum en sjö manns munu hafa lagt hönd á plóginn við prentun biblíunnar, Stóð verkið yfir í tvö ár auk verulegrar undirbúningsvinnu. Þarna var ekkert til sparað. Titilsfðuna prýðir tilkomumikil tréskurðarmynd sem þekur alla fólfósíðuna, Hún er samansett úr tfu sjálfstæðum myndum og inniheldur geysimikið frásagnarefni, Þessar myndir eru mjög fígúratfvar og mynda ramma utan um bókfræðilegar upplýsingar ritsins. Þarna eru fræg biblfuminni túlkuð á myndrænan hátt eins og eðlilegt er. Úr tréristunni má lesa myndir er sýna atburði sem allir þekkja og eru margendurteknar á öllum skeiðum myndlistar- innar þar sem hugmyndafræði kristinnar trúar er við lýði. Nefna má að á einni myndinni kemur heilagur andi yfir Maríu mey til að tilkynna henni að hún muni frelsara fæða. Þarna sjáum við Jesú liggjandi í jötu með Maríu og Jósef til vinstri handar og vitringana til hægri við jötuna og er það sennilega vinsælasta myndefni hins kristna heims. Skírn Jesú fær sinn sess og sést dúfa sveimandi yfir geislabaugi Krists, Þarna getur og að líta fjallræðuna. Jesú stendur á fjallstindi með áheyrendur fyrir neðan. Maður með heilaga ritningu er honum á hægri hönd og til vinstri hefur hann annan mann sem tilbið- °r hann ákaft. Ennfremur er minnt á upprisu Krists sem stærsta og veigamesta atburðinn í kristinni trú. Myndir til uppfyllingar, sem hafa minna kristilegt gildi, eru einnig með og vandað er til verksins í hvívetna. Andans menn, sem ef til vill eru mikilsmetnir skrifarar umluktir pappfrs- rollum, eru í sitthvoru horni uppi. Þeir minna á dverga miðalda sem koma mjög oft fram í myndlistinni og geta hór sem best staðið fyrir hið narratíva eða frásagnarhefðina. Tónlistarmaður spilandi á lýru sína minnir á hinar sjö fögru listir og á vel heima á áberandi stað á titilsíðunni Þessi stærsta og íburðarmesta mynd Guðbrandsbiblíu er vandvirknislega unnin í öllum smáatriðum. Fagmenn hafa verið hér að verki og verkfærin þeirra í góðu lagi, Hún er þó yfir- hlaðin viðburðum og skrauti eins og algengt var fyrr á öldum. Henni er ætlað að segja mjög mikið í einu vetfangi eins og var einkennandi fyrir tréristur f Evrópu á þessum tíma. Myndin virkar ruglingsleg við fyrstu sýn og þarf gaumgæfilegrar skoð- unar við. Öll tréristan er fagurlega skreytt með blómum, lauf- blöðum, dýrum og dýrahöfðum. Aðrar myndir biblíunnar hafa fræðimenn rakið til myndamóta sem notuð voru ( Evrópu á þessum tíma. Þær bera líka með sér að þær eru útlendar og fylgir þeim framandi yfirbragð. Þar er að finna myndefni eins og glæsilegar byggingar sem langt var frá að fýrirfyndust á íslandi þessa tíma og ýmsa sjaldséða hluti, Út- lendur bragur er á húsdýrum. Má í því sambandi nefna mynd sem táknar drauma Faraós með magrar kýr og feitar í forgrunni og er á þeim afar útlendur svip- ur. Þær hafa löng sveigð horn og eru áreiðanlega ekki úr Hjaltadal og enn síður úr Flóanum. Þar sem menn þykjast vita að Guðbrandur hafi kunnað að beita skurðjárninu og að hann var liðtækur teiknari er freistandi að eigna honum eitthvað af handverki bókarinnar. Halldór Hermannsson segir: „That Bp. Guðbrandur was a very skilful artisan is well known, and he provided the press with ornaments and other decorative things from his own hand, but the extent of his work in that respect can not be determined now with certainty. He may have made some of the woodcuts in the Bible, but he did not design them."11 Ef til vill má ætla að hann eða annar (slendingur hafi teiknað bókstafinn Þ sem er upphafsstafur að mörgum köflum og ennfremur eilítið minna þ sem víða er við greinaskipti. Varla hefur Guðbrandur keypt þennan sérfslenska bókstaf í útlönd- um. í bókinni er margt annarra fallegra upphafsstafa sem tölu- vert er lagt í. Litla þ er mjög snoturt, læsilegt og frekar hreint þrátt fyrir að margs konar sprotar, sveigðir og beygðir, séu í skreytinga- skyni. Sprotarnir sem enda í lauflaga formi minna á gróður og Iff jarðar og er í samræmi við aðra upphafsstafi bókarinnar. Fléttur sem eru uppistaða í stóra þ við upphaf bóka og Titilsíða Guðbrandsbiblíu, prentuð 1584 að Hólum. Bókasafnið24. Arg. 2000 9

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.