Bókasafnið - 01.01.2000, Síða 25

Bókasafnið - 01.01.2000, Síða 25
Sigrún Klara Hannesdóttir Bókavarðamenntun á Norðurlöndum Umbrotatímar og framtíðarsýn Bókavarðamenntun á Norðurlöndunum er nú að ganga í gegnum meiri umbrotatíma en sést hafa um árabíl, í flestum löndum eru miklar breytingar, nýjar lagasetníngar og nýjar áhersl- ur. Alls eru hér taldir tólf skólar sem kenna bókasafns- og upplýsingafræði innan landanna fimm, en þetta er þó ekki einhlítt því nokkrar stofnanir eins og til dæmis þjóðbókasafn Norðmanna í Mo í Rana eru með nám í bókasafnsfræði sem ekki er talið hér með. Pessi tala er miðuð við þá skóla sem venjulega koma inn í umræðuna um bókavarðanám auk þeirra sem komið hafa inn í svokallað NordlS-NET sem er samvinnunet sem styrkja á samstarf skólanna. í þessari grein verður reynt að lýsa einkennum hvers skóla fyrir sig, draga saman það helsta sem er að gerast og hvaða stefnu skólarnir eru að taka. Danmörk Nám fyrir bókaverði hófst í Danmörku árið 1910 og þá sem einkaframtak. Árið 1917 var ákveðið að setja á stofn bóka- varðaskóla og kennsla hófst 16, september árið 1918 sem talinn er afmælisdagur bókavarðamenntunar í Danmörku. Árið 1920 voru fyrstu almenningsbókasafnalögin samþykkt og umsjón með menntuninni var færð yfir til embættis sem samsvarar bókafulltrúaembættinu á íslandi enda var mennt- unin aðallega ætluð almenningsbókavörðum, Þess má geta að einn af fyrstu nemendunum, sem luku námi, var Sigurgeir Friðriksson sem síðar varð fyrsti yfirbókavörður núverandi Borgarbókasafns. Árið 1956 var stofnaður sérstakur skóli, Danmarks biblioteksskole, og honum ætlað að búa bókaverði til starfa bæði í almenningsbókasöfnum og háskólabókasöfn- um. Pess má geta til gamans að þetta sama ár hóf Björn Sigfússon að kenna bókasafnsfræði við Háskóla íslands svo ekki voru íslendingar langt á eftir í þessu tilliti. Danmarks biblioteksskole Danski bókavarðaskólinn hefur gengið í gegnum ýmsar laga- breytingar, til dæmis var innleitt tveggja ára nám til meistara- prófs (cand. scient.) árið 1990. Árið 1997 fékk skólinn nýja löggjöf sem færir hann upp á háskólastig. Það táknar að smátt og smátt mun skólinn geta útskrifað nemendur með háskólagráðu og þessi nýju lög heimila honum einnig að ráða prófessora til starfa og útskrifa nemendur með doktorspróf en hingað til hefur það ekki verið heimilt. Eftir nýju lögunum er skólanum skipt upp í þrjár stofnanir: Stofnun í upplýsingafræði (Institut for informationsstudier); Stofnun um bókasafnsþróun (Institut for biblioteksudvikling) og Stofnun um menningu og miðla (Institut for kultur og medier) og hefur starfsliðinu verið skipt upp á þessar stofnanir, Nú býður skólinn upp á nokkrar mismunandi námsleiðir, það er B.A.-próf í bókasafnsfræði (bachelorer); 4 ára nám fyrir bókaverði (bibliotekarer); meistarapróf i bókasafns- og upplýsingafræði (cand. scient. bibliotekarer); eins árs nám fyrir rannsóknarbókaverði (forskningsbibliotekar og doku- mentalist) og nám fyrir bókasafnatækna (biblioteksassistent- er). B.A.-námið hófst haustið 1998 og byggir á eldra bóka- varðanámi. Það nám tekur þrjú ár. Þegar þessum þremur árum er lokið er hægt að bæta við sig sjöunda misserinu og fá réttindi til að starfa sem bókasafnsfræðingur bæði hjá hinu opinbera og í einkageiranum. Skólinn hefur eínnig gert samn- ing við Syddansk Universitet sem veitir fólki með B.A.-gráðu og bókavörðum með menntun frá skólanum möguleika á að lesa til cand, mag. prófs í menningu og miðlun (kultur og formidling) við Háskólann í Odense. Danmarks biblioteksskole hefur haft eitt útibú, í Álaborg, sem sett var á laggirnar árið 1973. Árið 1999 voru teknir 74 nýnemar í Álaborgardeildina en auk þess fer þar fram nám fyrir bókasafnatækna (biblioteksassistenter) svo og nám- skeiðahald fyrir starfandi bókaverði Bökasafnið 24. árg. 2000 23
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.