Bókasafnið - 01.01.2000, Blaðsíða 38
Linda Erlendsdóttir
Meistaraprófsnám við University of Wales,
Aberystwyth
Við Háskólann í'Wales, Aberystwyth, er boðið upp á fjarnám í
bókasafns- og upplýsingafræði. Upplýsinga- og bókasafns-
fræðideildin (Department of information and library services)
býður bæði upp á Dip/BScEcon nám og Dip/MScEcon nám.
Hægt er að stunda meistaraprófsnám í skjalastjórn (records
managment), stjórnun læknisfræðisafna (health information
management) og stjórnun bókasafna og upplýsingaþjónustu
(library and information services), Tii að geta hafið meistara-
prófsnám þarf B.A.-próf og einhverja starfsreynslu í bóka- eða
skjalasöfnum. Miðað er við að meistaraprófsnámið taki þrjú ár
en hægt er að Ijúka því á fjórum árum. Þrátt fyrir að námið fari
fram með fjarkennslu er nauðsynlegt að mæta í skólann í
upphafi hvers skólaárs til þess að undirbúa námið og ræða
við kennara,
Undirrituð hóf haustið 1996 meistaraprófsnám j stjórnun
bókasafna og upplýsingaþjónustu/
Á fyrsta ári er lögð áhersá á stjórnunarkenningar og starfs-
mannastjórnun en á öðru ári er hægt að velja milli tveggja leiða í
náminu. Annars vegar er hægt að velja stjórnun skólasafna og
bókasafnsþjónustu við ungt fólk en híns vegar er hægt að velja
almenna stjórnun bókasafna og upplýsingaþjónustu. Ef síðari
leiðin er farin þarf að velja tvö af eftirfarandi þremur sviðum:
stjórnunarkerfi (systems in management), fjármálastjórnun
(financial management), aðfangastjórnun (collection manage-
ment). Á fýrsta og öðru ári þarf að Ijúka um það bil fimm til sex
verkefnum með ákveðinni lágmarkseinkunn til að hafa staðist
skólaárið. Þriðja námsárinu er svo varið í ritgerðarsmíð,
Eins og áður hefur komið fram þurfa nemendur að mæta í
skólann í nokkra daga (upphafi hvers námsárs, Þá gefst þeim
tækifæri til að hitta skólafélagana, kennara og undirbúa nám-
ið, Strax á fyrsta ári er hverjum nemanda úthlutaður kennari
sem er nokkurs konar tengiliður þeirra við skólann og gott
getur reynst að hafa samband við hann ef einhverjar spurn-
ingar eða vandamál koma upp. Verkefnum er hægt að skila í
tölvupósti eða_ faxf-og-það er reynsla mín að þrátt fyrir tölu-
verða fjarlægð milli mín og kennaranna í Wales er ákaflega
auðvelt að leita til þeirra og svör við spurningum berast fljótt.
Skólagjöld eru rúmlega 600 pund fyrir hvert skólaár, auk þess
sem nemendur þurfa að koma sér til Wales og greiða fyrir
gistingu og uppihald þar. Núna stunda sex íslendingar fjarnám
til meistaraprófsgráðu í bókasafns- og upplýsingafræði í
Aberystwyth.
Ég mæli hiklaust með því að fólk kynni sér þennan mögu-
leika á að afla sér framhaldsmenntunar. Þrátt fyrir. töluverða
vinnu hefur námið verið áhugavert og skemmtilegt og það
hefur verið fengur í því að kynnast fólki frá ýmsum löndum og
fá innsýn í störf þess.
Nánari upplýsingar um námið fást hjá:
The Open Learning Unit
Llanbadarn Fawr
Aberystwyth
Ceredigion
SY23 3AS
United Kingdom
tölvupóstfang: olu@aber,ac.uk
veffang: http://www.aber,ac.uk/~olu
Nánari upplýsingar um Wales
http ://www. ceredigion.gov. uk/croeso/index. htm
Svava H. Friðgeirsdóttir
Meistaraprófsnám í skjalastjórn við
University of Northumbria
Fjarnám nýtur vaxandi vinsælda, Einstaklingar jafnt sem fyrir-
tæki sjá sér hag ( því að auka þekkingu sína og fyrirtækisins
án þess áð nemandinn þurfi að fara frá vinnu og heimili um
lengri eða skemmri tíma. Mörg fyrirtæki líta á fjarnám sem
endurmenntun starfsmanna sinna, þó svo að þeir læri í flest-
um tilfellum utan hins daglega vinnutíma.
Framhaldsnám í skjalastjórn
Haustið 1996 byrjaði University of Northumbria, Newcastle,
fyrstur háskóla í heiminum, fjarnámskennslu ( skjalastjórn til
meistaraprófs, Undírbúningur námsins hafði þá staðið (fjögur
ár, Öll umgjörð námsins er til fyrirmyndar og hafa aðrir skólar,
til dæmis University of Wales, Aberystwyth, fengið ráðgjöf um
uppsetningu, skipulag og framkvæmd náms til meistaraprófs (
skjalastjórn.
Námið er byggt upp með það í huga að nemendur séu
starfandi á skjalasafni og í fullri vinnu. Gert er ráð fyrir að nem-
endur eyði um tólf klukkustundir i námið á viku, Samiwæmt
skipulagi háskólans er reglulega farið yfir námsbrautir og eru
breytingar gerðar til að námið sé ætíð (takt við tímann, Nám á
sviði upplýsingafræði þarf sífeilt að vera í endurskoðun vegna
örrar tækniþróunar. Námið hefur því gengið í gegnum slíka
endurskoðun, Helstu breytingar eru þær að námið tekur nú
full tvö ár og hefst í janúar, í stað þriggja skólaára (sept. - maí)
áður, Einnig hafa námskeið verið sameinuð og fengið meira
vægi en áður var,
36
Bókasafnið 24. Arg. 2000