Bókasafnið - 01.01.2000, Blaðsíða 50
skóla íslands fengið aðgang að Háskólanetinu og Internetinu
fyrir árið 1990. Árið 1992 var íslenska menntanetíð, eitt af
fyrstu menntanetunum á landsvísu, orðíð fullkomlega starf-
hæft, Þróun sem þessi leiddi af sér þörf fyrir Internetnámskeið
á öllum stigum.
Langtímarannsóknin á Internetnemum átti rætur að rekja til
þess að lausn þurfti að finna á vandamáli vegna kennslu á
sviði sem var þá tiltölulega nýtt - að kenna fólki að nota Inter-
netíð, Árið 1993 þyrjaði Anne Clyde að kenna inngangsnám-
skeið að Internetinu. í fyrstu var það kennt sem hluti af B.A.-
námi í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla (slands.
Síðar var það haldið við Há-
skólann á Akureyri (fyrir nem-
endur í kennslufræðum og
viðskiptafræðum) og við Sam-
vinnuháskólann á Bifröst (fyrir
rekstrarfræðinema). Að auki
voru haldin stutt endurmennt-
unarnámskeið til kynningar á
Internetinu fyrir fagfólk (bóka-
safnsfræðinga, lögfræðinga,
blaðamenn, lækna, fræði-
menn og aðra) og fyrir al-
menning. Samantekt á nám-
skeiðum frá 1993 til 1996 er
birt í töflu 1. Námskeiðin byrj-
uðu öll með kynningu á raf-
rænum pósti. Þegar nem-
endur eru að læra að svara
rafrænum pósti er æskilegt
að þeir fái einhver skilaboð sem þeir geta svarað. Jane
Klobas var á þessum tíma, eins og áður er getið, að kanna
leiðir til að greina og skýra ástæður fólks, sem er ekki fagfólk í
upplýsingamiðlun, fyrir að nota nettengd upplýsingakerfi. Frá
þessum sameiginlegu hagsmunum kviknaði hugmyndin um
að senda þátttakendum námskeiðsins rafrænan póst. Með
þessu fengju þeir æfingu í að svara skilaboðum auk þess
sem hægt væri að safna gögnum um ástæður þátttakenda
fyrir því að vilja læra um Internetið. Langtímarannsóknin byrjaði
því með þeirri hugmynd að söfnun gagna með þessari aðferð
gæti gefið gagnlega innsýn á notkun Internetsins, án þess þó
að ákveðinn fræðilegur bakgrunnur lægi að baki sem hægt
væri að vinna úr þessum gögnum eftir. Þetta síðasttalda
vandamál leystist með tilkomu PBiC líkansins í gegnum
rannsóknir Jane Klobas í Vestur-Ástralíu á árunum 1995 til
1997.
f heild tók 621 einstaklingur þátt f Internetnámskeiðum sem
48
kennd voru af Anne Clyde á íslandi á þriggja ára tímabili frá
árinu 1993 til 1996. Af þeim fjölda svöruðu 449 spurninga-
lista sem sendur var í rafrænum pósti. Samsvarar það 72,4
prósent svarhlutfalli. Fyrir utan átta einstaklinga (1,8%) af 449
svöruðu allir spurningunum með þeim hætti að svörin voru
skiljanleg rannsóknaraðilum. Af þessum voru fjórir erlendir
nemar frá Lettlandi, tveir voru óviðkomandi og tuttugu sendu
inn svör við spurningalista sem hafði áður verið sendur út til
forprófunar. Af þessu leiðir að 423 svör voru greind í lang-
tímarannsókninni.
í byrjun rannsóknanna var lítið vitað um viðhorf til Internets-
ins og til þess að læra að
nota það. Þess vegna var
spurningalistinn byggður á
spurningum sem Ajzen og
Fishbein (1980) mæla með til
að greina viðhorf og til að
draga fram helstu skoðanir
fólks um mannlegt atferli.
Einnig var byggt á spurning-
um sem notaðar voru í bein-
um viðtölum við ástralska
notendur rafrænna upplýs-
ingakerfa (Klobas, 1994). Till-
högun kennslunnar krafðist
þess jafnframt að skilaboð
væru stutt, vinsamleg, auð-
veld þeim sem hefðu ekki
áður svarað rafrænum pósti
og auðskilin einstaklingum
sem hefðu ekki ensku að móðurmáli. Skilaboð sem voru for-
prófuð í fyrsta námskeiðinu (nóvember 1993) voru lagfærð og
notuð í öllum námskeiðum sem haldin voru eftir það á Islandi.
í aðlagaðiý mynd kölluðu þau fram viðeigandi svör í gegnum
alla langtímarannsóknina og einnig í rannsókn sem gerð var
síðar í Namibíu (Klobas og Clyde, 1998). Endurgerð skila-
boðanna er sýnd á mynd 2. Greining á viðhorfum til
Internetsins og til þess að læra á Internetið byggðist aðallega
á svörum við spurningu númer tvö: „Hvers vegna viltu læra á
Internetið?"
Gögnin sem fengust með rafrænum pósti fyrsta árið voru
greind með NudlST (hugbúnaður hannaður fyrir greiningu á
gögnum í textaformi). Greining með þessum hætti reyndist
ófullnægjandi af nokkrum ástæðum. Tengdust sumar þeirra
rannsókninni sjálfri, einkum því að skoðun á eldri fræðiskrifum
hafði ekki leitt í Ijós neinn viðeigandi fræðilegan grundvöll.
Aðrar tengdust hugbúnaðinum (a.m.k. þeirri útgáfu sém
Bókasafnið 24. árg, 2000
Spurningalisti sendur með rafrænum pósti
G'day!
This traditional Australian greeting comes to you from Perth,
Western Australia. (It is short for " Good day" , and pronounced
* g'die" . Ask Anne Clyde to say it for you.)
I hope you enjoy learning to use the Internet. I am very pleased
to play a small part in your course, even though I am far away in
Perth. (Perhaps Anne Clyde will invite me to Iceland to
participate in person. I have only visited Iceland once but
enjoyed my visit very much.)
Will you help me with my research? I am a professor in the
Graduate School of Mcmagement at the University of Western
Australia. My research is about why people use electronic
information resources, like the Internet. Please reply to this
message with answers to these questions:
1. Have you used the Internet before today? If so, how many
times?
2. Why do you want to learn about the Internet?
*****************************************************************
Jane Klobas
Lecturer
The Graduate School of Management
The University of Western Australia
Nedlands WA 6007 Australia
Mynd 2.