Bókasafnið - 01.01.2000, Blaðsíða 51

Bókasafnið - 01.01.2000, Blaðsíða 51
höfundar höfðu aðgang að á þessum tíma). Þegar sömu gögn voru greind aftur með notkun SPSS hugbúnaðar og með PBiC líkanið sem fræðilegan grundvöll náðist betri árangur. í kjölfarið voru öll gögnin sem safnað var á árunum 1993 til 1996 greind með þessum hætti (sjá mynd 3 fyrir yfirlit yfir langtímarannsóknina). Upplýsingar um kóðun og greiningu gagnanna er að finna í öðrum greinum höfundanna (einkum Klobas og Clyde, í prentun). [ eftirfarandi umræðu eru dregnar saman niðurstöður lokagreiningar gagnanna sem safnað var á þessu þriggja ára tímabili. Flesf;ir þátttakendur í nám- skeiðunum höfðu ákveðnar hugmyndir um notkun Inter- netsins í byrjun námskeiðs- ins. Þrátt fyrir það virðist sem aðalhvatinn fyrir námskeiðs- þátttöku þeirra hafi verið sá að auka við almenna þekk- ingu sfna eða skilning á Inter- netinu. Að undanskildum litl- um hópi þátttakenda nefndu jafnvel þeir sem urðu að taka námskeiðið sem hluta af B.A.-námi sínu, að ástæða þeirra fyrir þátttöku byggðist frekar á því að þeir vildu læra um Internetið en kröfu um að Ijúka námskeiðinu sam- kvæmt gildandi námskrá. Þegar komið var fram á árið 1995 voru þeir nemendur orðnir fáir sem tóku fram að námskeiðið væri skyldunámskeið. Fleiri breytingar komu fram í ástæðum þátttakenda fyrir námskeiðsþátttöku á þeim þremur árum sem rannsóknin stóð yfir. Aðeins á árinu 1994 greindu þátttakendur frá verulegri þörf fyrir að kanna möguleika Internetsins eða vísuðu til þarfar til að læra á Internetið áður en þeir byrjuðu að nota það í raun. Á árinu 1995 voru hins vegar nokkrir þátttakendur farnir j að greina frá þvi að það sem hvetti þá til að læra á Internetið væri að þeir vildu ekki „missa af lestinni". Tiltölulega hátt hlutfall þeirra sem voru byrjendur á Internetinu tók fram að þeim fynd- ist mikilvægt að læra á Internetið, Sá hópur þátttakenda sem gat þess að það væri mikilvægt að læra á Internetið stækkaði óðum þann tíma sem rannsóknin stóð yfir. Svo virðist sem eftir 1994 hafi þátttakendur haft áhuga á að læra um Inter- netið vegna Internetsins sjálfs eða vegna þess að þeir höfðu trú á því að það væri mikilvægt að kunna að nota það. Enn- fremur virðist að þótt þeir væru kunnugir Internetinu hafi þeir fundið fyrir þörf til að kanna eða læra á grundvallaratriði þess áður en þeir byrjuðu að reyna að notfæra sér það í raun. Flestir þátttakendur hugðust nota Internetið í viðskiptalegum eða faglegum tilgangi. Auk þess ætluðu flestir bæði að nota það til að safna upplýsingum og til að eiga samskipti við annað fólk. Nokkur munur var þó á ástæðum þátt- takenda fyrir því að nota Internetið eftir því hvort þeir ætluðu aðallega að nota það til upplýsingaöflunar eða aðallega til samskipta. Þátt- takendur væntu þess að notkun Internetsins væri áhugaverð, gagnleg og ánægjuleg, Þeir væntu þess að umfram aðra miðla (þar með talið fax og síma) hefði Internetið kosti, hraða og væri þægilegra í notkun en viðurkenndu jafnframt að réttan búnað þyrfti til að nota það. Fáir minntust á gæði Internetsins, Á meðal þeirra fáu sem það gerðu var hátt hlutfall af reyndum Internet- notendum, Styður það þá hugmynd að á meðal Internetnotenda með litla reynslu skipti viðhorf til útkomu notkunar meira máli heldur en gæði Inter- netsins. Fáir þátttakendur lýstu yfir óvissu eða neikvæðum viðhorfum til Internetsins og notkunar þess. Ummæli tengd skynjun á stjórn voru fátíð og lýsti meirihluti jákvæðri frekar en neikvæðri skynjun á stjórn. Algengustu ummæli um stjórn vísuðu til þess úrvals (eða skorts á úrvali) sem þátttakendur höfðu af við- eigandi tækjum og aðstöðu til Internetnotkunar. Fjöldi þátttak- enda sem minntist á aðgang að aðbúnaði minnkaði eftir því sem leið á rannsóknina og tölvur og módem urðu algengari á íslandi- í heild endurspegluðu svörin afar jákvæð viðhorf til Internetsins. Internetið var eitthvað sem þátttakendur væntu að nota til venjulegra mannlegra samskipta og til upplýsinga- söfnunar. Þeir væntu þess að njóta góðs af því bæði í starfi og sem einstaklingar. Svo virðist sem nemendur (jafnvel þeir Yfirlit yfir áfanga í langtímarannsókn á íslandi Atburöur Nlðurstaða (Rannsóknarstig) Fyrsta Internetnámskeiöiö Forprófun spumingalista Gagnasöfnun hefst Skoöun eldri fræöaskrifa Fariö yfir gögnin og lagt mat á tengsl þeirra viö eldri fræðaskrif Viöurkennt aö hugsanlegar breytinga hafi oröiö á viöhorfum til Intemetsins og til námskeiöanna Gagnasöfnun heldur áfram Jane Klobas þróar kenningu um skipulagöa hegöun sem grundvöll fyrir rannsókn á notkun nettengdra upplýsingaveitna Gagnasöfnun haldiö áfram Jane Klobas lýkur þróun PBiC likans um notkun nettengdra upplýsingaveita Btig-lt-Rannsóknarspumingar settar fram Stig 2: Gögn frá fyrsta árinu greind, Nóv 1993 - Des 1994, meó Nud*IST Stig 3: Endurgreining á gögnum frá fyrsta árinu, byggt á kenningu um skipulagöa hegöun og meö SPSS Gagnasöfnun lýkur Stig 4: Greining gagna frá 1994 til 1996 byggö á kenningu um skipulagöa hegöun meö hliösjón af niöurstööum frá stigi 3 og PBiC likani Klobas Mynd 3. Bókasafnið 24, árg. 2000 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.