Bókasafnið - 01.01.2000, Síða 59
ráðinn yrði framkvæmdastjóri í að minnsta kosti hlutastarf til að
sinna daglegum rekstri og málefnum félagsins í umboði
stjórnar. Innan félagsins var gert ráð fyrir að störfuðu einstök
svið og nefndir eftir því sem við ætti hverju sinni. Lög félagsins
voru hugsuð sem nokkurs konar rammalög og nánari út-
færslu var síðan að finna f greinargerð. Skipurít félagsins og
Listi yfir innlend og erlend samskipti áttu að auðvelda stjórn
og félagsmönnum að hafa yfirsýn yfir starfsemi þess.
Við úttekt á fjármálum félaganna kom í Ijós að enginn veru-
legur munur var á fjárhagsstöðu þeirra þannig að missterk
fjárhagsstaða félaganna þurfti ekki að standa í vegi fyrir sam-
einingu.
Atkvæðagreiðsla um sameininguna og niðurstöður
Kjörgögn vegna atkvæðagreiðslu um sameiningu bókavarða-
félaganna voru send út með kynningarefninu og skrifleg
atkvæðagreiðsla um málið fór fram meðal félagsmanna þar
sem þeir tóku endanlega ákvörðun um hvort af sameiningu
bókavarðafélaganna yrði. í atkvæðagreiðslu um sameiningu
félaganna, sem lauk þann 14. maí 1999, var samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta þeirra sem afstöðu tóku að Félag
bókasafnsfræðinga og Bókavarðafélag íslands ásamt aðíldar-
félögum þess, Félagi um almenningsbókasöfn og skólasöfn
og Félagi bókavarða í rannsóknarbókasöfnum, sameinuðust I
eítt félag frá og með 1, janúar 2000.
Úrslit kosninganna voru kunngerð á tölvupóstlistanum
Skruddu og heimasfðu félaganna um tveimur vikum eftir að
atkvæðagreiðslu lauk, ennfremur í Fregnum 2. tbl., 24. árg.
1999, bls. 17. Atkvæði féllu á eftirfarandi hátt ( hverju félagi
um sig:
Félag bókasafnsfræðinga:
Atkvæðisrétt höfðu: 235
Atkvæði greiddu: 120 eða 51,1%
Já sögðu: 113 eða 94,1 %
Nei sögðu: 2 eða 1,7%
Auðir voru: 2 eða 1,7%
Ógildir voru: 3 eða 2,5%
Félag um aimenningsbókasöfn og skólasöfn:
Atkvæðisrétt höfðu: 188
Atkvæði greiddu: 89 eða 47,3%'
Já sögðu: 85 eða 95,5%
Nei sögðu: 1 eða 1,1%
Auðir voru: 1 eða 1,1%
Ógildir voru: 2 eða 2,3%
Félag bókavarða í rannsóknarbókasöfnum:
. Atkvæðisrétt höfðu: 132
Atkvæði greiddu: 70 eða 53,0%
Já sögðu: 65 eða 92,9%
Nei sögðu: 5 eða 7,1%
Auðir voru: 0
Almenn leynileg atkvæðagreiðsla fór fram í pósti, aðskilin eftir
félögum, og voru atkvæðin talin í hverju félagi fyrir sig. Þeir
sem voru félagar f fleiri en einu félagi fengu því kjörgögn í
samræmi við félagsaðild.
Til þess að tillagan um sameiningu teldist samþykkt innan
hvers félags um sig þurfti einfaldur meirihluti þeirra sem
afstöðu tóku að samþykkja hana.
Atkvæðisrétt höfðu allir skuldlausir einstaklingar í viðkomandi
félögum samkvæmt nánari skilgreiningu stjórnar hvers félags
um sig.
Gömlu bókavarðafélögin lögð niður og kvödd
Eftir að vilji félagsmanna varð Ijós við atkvæðagreiðsluna var
næsta skref að huga að undirbúningi stofnfundar nýs félags
og jafnframt að því að leggja gömlu félögin niður í samræmi
við lagaákvæði (hverju félagi um sig.
Bókavarðafélag íslands reið á vaðið með að leggja félagið
niður. Á 17. ársþingi Bókavarðafélags íslands, sem haldið var
29. maí 1999, staðfestu þingfulltrúar niðurstöður úr atkvæða-
greiðslu félaganna um að sameinast í eitt félag sem tæki til
starfa 1. janúar árið 2000 og samþykktu jafnframt að slíta
Bókavarðafélagi (slands frá sama tíma að telja.
Ýmsa undirbúningsvinnu þurfti að inna af hendi ( hinum
félögunum svo félagsslit gætu orðið með lögformlegum hætti.
Breyta þurfti lögum, til dæmis hjá FAS, til að einfalda
félagsslitin. Einnig þurfti að breyta lögum og gera stjórnarsam-
þykktir svo tryggt væri að eignir gömlu félaganna gengju
áfram til nýja félagsins. FAS félagar samþykktu ( allsherjar-
atkvæðagreiðslu að leggja félagið niður. Slit FB og FBR voru
samþykkt á félagsfundum,
FB og FBR héldu síðan vegleg kveðjuhóf fyrir félagsmenn
sína. FBR hélt veglega móttöku þann 22. október 1999 og
FB stóð fyrir hátíðarkvöldverði þann 4. nóvember sama ár.
Haft var á orði að félagslíf ( bókavarðafélögunum hefði sjaldan
verið svo líflegt sem þetta haust.
BVFÍ klykkti svo út með því senda félögum í FAS og FBR
jólakort þar sem félagið þakkaði öllum þeim sem starfað
höfðu fyrir félagið og óskaði félögum góðs brautargengis í nýju
félagi á nýrri öld.
Bókasafnið 24, árg, 2000
57