Bókasafnið - 01.01.2000, Page 60
Störf Vinnuhóps um sameiningarmál
bókavarðafélaga
Mikið og óeigingjarnt starf var unnið til að sameining bóka-
varðafélaganna gæti orðið að veruleika. Þegar vinnuframlagið
sem innt var af hendi vegna sameiningarinnar er skoðað telst
svo til að í þessi tvö ár sem sameiningarferlið stóð yfir hafi
verið haldnir um 40 vinnufundir. Fundirnir stóðu að jafnaði í
tvær til þrjár klst. og að meðaltali voru um fimm manns á fund-
unum. Þetta er, vægt reiknað, alls ígildi um 3ja mánaða starfs
og er þá ótalið vinnuframlag milli funda sem oft var verulegt.
Mesta vinnan fór í samningu laga, það er umgjörð og
skipulag hins nýja félags. Margir komu þar við sögu. Auk
bókasafns- og upplýsingafræðinga voru íslenskufræðingar og
lögfróðir menn fengnir til að leggja blessun sína yfir lögin.
Af þessu má sjá að í vinnuframlagi metið er hér um dýr-
mætt félag að ræða og er vonandi að félagið verði í fram-
tlðinni einnig dýrmætt félagsmönnum sínum. Óskandi er að
sameinaðir geti bókaverðir og bókasafns- og upplýsinga-
fræðingar eflt skilning á mikilvægi sérfræðiþekkingar bóka-
safns- og upplýsingafræðinga og annarra starfsmanna bóka-
safna og upplýsingamiðstöðva, eflt samstarf sín á milli, aukið
fagvitund sína og menntun og í auknum mæli látið að sér
kveða á fagsviðinu og á opinberum vettvangi.
Stofnfundur nýja félagsins þann 26. nóvember 1999
Á haustdögum 1999 tók Vinnuhópur um sameiningarmál bóka-
varðafélaga á íslandi svo þráðinn upp að nýju við að undirbúa
stofnfund í samræmi við vilja félagsmanna og stefnt var á að
halda stofnfund sameinaðs félags síðla hausts sama ár.
Stofnfundurinn var svo haldinn í Norræna húsinu þann 26,
nóvember 1999. Á fundinum voru flutt ávörp og félaginu sett
lög. Lagadrög þau sem fyrir fundinum lágu voru samþykkt
óbreytt ( öllum grundvallaratriðum. Lögin eru birt í heild sinni
annars staðar i blaðinu. Þá var félaginu valið nafn, kosin stjórn
og árgjald ákveðið. Á fundinum var samþykkt umboð til handa
nýrri stjórn félagsins til að grfpa til viðeigandi ráðstafana um
kaup á auknum húsnæðishlut í sameignarfélaginu Ásbrú að
Lágmúla 7. Einnig var samþykkt tillaga um staðfestingu á
umboði þeirra fulltrúa sem sitja í nefndum og ráðum fyrir
forvera nýja félagsins. Frá og með fyrsta starfsdegi nýja
félagsins urðu þeir fulltrúar þess.
Fyrstu stjórn nýja félagsins skipa eftirfarandi aðilar sem skipta
þannig með sér verkum:
Þórdís T. Þórarinsdóttir formaður
Svava H. Friðgeirsdóttir varaformaður
formaður og varaformaður eru tengiliðir við stjórnunarsvið
Lilja Ólafsdóttir, gjaldkeri, tengiliður við fjármálasvið
Hólmfríður Tómasdóttir ritari, viðheldur félagatali
Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir meðstjórnandi, tengiliður við
útgáfusvið
Jenný K. Valberg meðstjórnandi, tengiliður við ráðstefnu- og
fræðslusvið
Þórhallur Þórhallsson meðstjórnandi, tengiliður við fagsvið
Þeirra sem hafa fengið það hlutverk að ýta nýja félaginu úr
vör bíður mikið starf, Mikilvægt er að félagsmenn séu virkir og
skjóti hugmyndum að stjórninni um verkefni sem eflt geta
félagið faglega og félagslega.
Fjölmennt var á stofnfundinum og fór hann málefnalega fram.
Þátttakan lofar vissulega góðu um kröftugt starf í framtíðinni, Þar
sem einsýnt þótti að ekki gætu allir félagsmenn sótt stofn-
fundinn ákvað vinnuhópurinn að birta stofnfélagaskrá í næsta
hefti Bókasafnsins og birtist hún annars staðar í blaðinu.
Að loknum stofnfundinum nutu fundarmenn tónlistar
strengjakvartetts ungra tónlistarmanna. Einnig var glæsileg
mótttaka fyrir fundarmenn í Norræna húsinu í boði mennta-
málaráðherra, Björns Bjarnasonar og konu hans, Rutar
Ingólfsdóttur,
Bókavarðafélögin hafa í gegnum tíðina átt gott samstarf við
menntamálaráðuneytið og oft leitað til ráðuneytisins um styrki
til ýmissa verkefna á vegum félaganna og jafnan fengið góða
fyrirgreiðslu. Ennfremur hafa fulltrúar félaganna starfað í
ýmsum nefndum á vegum ráðuneytisins. Hið nýstofnaða félag
væntir sér mikils af samstarfi við menntamálaráðuneytið hór
eftir sem hingað til.
Um þessar mundir er mjög ör þróun á sviði upplýsingamiðl-
unar og upplýsingatækni og hið nýstofnaða félag Upplýsing -
Félag bókasafns- og upplýsingafræða hefur fullan hug á að
taka þátt í að móta þá þróun sem verður á þessu sviði (
framtíðinni,
Hugmyndasamkeppni um nafn á nýtt félag
Vinnuhópur um sameiningarmál bókavarðafélaga á íslandi
ákvað að efna til hugmyndasamkeppni um nafn á nýja félagið.
Auglýst var á Skruddu og í Fregnum eftir tillögum um aðalheiti,
undirheiti og vefsetur og einnig mátti koma með tillögur um
enskt heiti. Alis komu 54 tillögur um aðalheiti, 13 um
undirheiti og 26 um vefsetur. Um enskt heiti komu 15 tillögur,
Tilnefnd var sérstök nafnvalsnefnd sem í áttu sæti þær Eydís
Arnviðardóttir, Guðrún Eyjólfsdóttir og Inga Kristjánsdóttir sem
var formaður kjörnefndarinnar. Valdi nefndin úr tillögunum og
útbjó atkvæðaseðla og kusu fundarmenn milli nokkurra nafna,
í boði voru vegleg bókaverðlaun sem útgefendur gáfu.
Bækurnar áttu það sameiginlegt að hafa hlotið viðurkenningu
Félags bókasafnsfræðinga sem besta frumsamda fræðibók
ársins fyrir fullorðna.
Upplýsing var valið aðalheiti félagsins með 27,4% greiddra
atkvæða en kosið var á milli fimm nafna. Bára Stefánsdóttir
58
Bókasafnið 24. árg. 2000