Bókasafnið - 01.01.2000, Page 62

Bókasafnið - 01.01.2000, Page 62
Upplýsing Félag bókasafns- og upplýsingafræða LOG I. NAFN OG MARKMIÐ 1. gr. Nafn og varnarþing Félagið heitir: Upplýsing — Félag bókasafns- og upplýsinga- fræða. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. 2. gr. Markmið Markmið félagsins er: a) Að auka skilning á mikilvægi sérfræðíþekkingar bóka- safns- og upplýsingafræðinga og annarra starfsmanna þókasafna og upplýsingamiðstöðva. þ) Að efla skilning á mikilvægi íslenskra bókasafna og upplýsingamiðstöðva í þágu menningar, menntunar og vísinda. c) Að bæta aðstöðu til rannsókna og náms í bókasafns- og upplýsingafræði. d) Að efla samstarf og samheldni félagsmanna. e) Að gangast fyrir faglegri umræðu um bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar. f) Að stuðla að og standa fyrir símenntun félagsmanna. g) Að auka samvinnu ólíkra safnategunda. h) Að koma á samvinnu við innlenda og erlenda aðila með svípuð markmið, i) Að vera löggjafanum og stjórnvöldum tíl ráðgjafar um bókasafns- og upplýsíngamál. j) Að starfa með Stéttarfélagi bókasafns- og upplýsinga- fræðinga og öðrum stéttarfélögum eftir því sem við á. II. FÉLAGSAÐILD 3. gr. Félagsaðild Rétt til félagsaðildar eiga: a) Bókasafns- og upplýsingafræðíngar svo og þeir sem starfa á rannsóknarþókasöfnum, almenningsbókasöfn- um, sérfræöibókasöfnum, skólasöfnum, starfsmenn stofnana og fyrírtækja sem vinna að upplýsingamiðlun. b) Nemar í bókasafns- og upplýsingafræði eða öðru námi á sviði upplýsingamiðlunar og -tækni geta átt aukaaðíld að félaginu í allt að þrjú ár. Nemar, sem óska eftir aukaaðild, hafa málfrelsi á fundum en ekki atkvæðisrétt og eru ekki kjörgengir. c) Áhugamenn um markmið félagsins. d) Almenningsbókasöfn, skólasöfn og sérfræði- og rannsóknarbókasöfn, skjalasöfn svo og aðrar stofnanir og fyrirtæki sem starfa að upplýsingamálum. Stofnana- aðíld fylgir ekki atkvæðisréttur. Umsóknir um félagsaðild eru afgreiddar á stjórnarfundi. III. SKIPULAG SVIÐA OG NEFNDA 4. gr. Skipulag Starfsemi félagsins skiptist á eftirfarandi svið: a) Stjórnunarsvíð. b) Fjármálasvíð. c) Útgáfusvið. d) Fræðslu- og ráðstefnusvið. e) Fagsvið. Á hverju sviði skal starfað samkvæmt skipuriti sem staðfest hefur verið'áaðalfundi. Stjórn félagsins eða félagsfundi er heimilt að skipa hópa og nefndir og fela þeim ákveðin verkefni eftir nánari fyrirmælum hverju sinni, Þeím skal með erindisbréfi setja starfsreglur þar sem viðfangsefni er skílgreint, starfstímabil ákveðið og hver nefndarmanna sé ábyrgur fyrir störfum hennar. IV. STJÓRN OG STJÓRNARSTÖRF 5. gr. Stjórnarkjör Stjórnarkjör fer fram á aðalfundi. Stjórn félagsins skal skipuð sjö mönnum: formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Auk þess skulu kosnir tveir varamenn. 60 Bókasafnið 24. árg. 2000

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.