Bókasafnið - 01.01.2000, Page 63
Stjórnarkjöri skal hagað þannig:
a) Formann og varaformann skal kjósa sérstaklega. Þeir
skulu kosnir til tveggja ára f senn. Formaður og varafor-
maður mega sitja þrjú kjörtímabil samfellt.
b) Aðra stjórnarmenn og varamenn skal kjósa til tveggja
ára. Stjórnarmenn mega sömuleiðis sitja þrjú kjörtímabil
í senn. Seta í stjórn skerðir ekki rétt til kjörgengis til for-
manns.
Heimilt er að kjósa félaga að nýju í stjórn þegar ár er liðið frá
því að hann vék úr henni.
6. gr. Stjórnarfundir
Stjófnin skiptir með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir
aðalfund. Stjórnarfund skal að jafnaði halda einu sinni í
mánuði á tímabilinu september - apríl, en oftar ef þörf krefur.
Svo og ef a.m.k. þrfr stjórnarmenn æskja þess.
Formaður boðar til stjórnarfunda og eru þeir lögmætir sé
meirihluti stjórnar mættur. Eínfaldur meirihluti ræður úrslitum
mála á stjórnarfundum.
7. gr. Verksvið stjórnar
Stjórnín fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Stjórnin
annast rekstur félagsins og hagar störfum sínum í samræmi
við lög og samþykktír þess.
Verkefni stjórnar er m.a. að:
a) Bera ábyrgð á rekstri félagsins og þjónustu þess við
félagsmenn,
b) Koma fram fyrir hönd félagsins bæði á ínnlendum og
erlendum vettvangi og afgreiða þau erindi sem þvf
berast.
c) Bera ábyrgð á útgáfumálum félagsins,
d) Halda almenna félagsfundi.
V. AÐALFUNDUR
8. gr. Aðalfundur
Aðalfund skal halda á tímabilinu 15. apríl-15. maí ár hvert. Til
hans skal boðað skriflega með minnst tveggja vikna fyrirvara,
Fundarboðinu fylgi dagskrá fundarins, ásamt tillögum um
lagabreytingar, ef einhverjareru.
Dagskrá aðalfundar:
a) Skýrsla stjórnar.
b) Skýrslur hópa og nefnda.
c) Reikningar félagsins.
d) Fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta starfsárs.
e) Árgjald.
f) Lagabreytingar og skipurit.
g) Kosníng stjórnar og varamanna sbr. 5 gr.
h) Kosning skoðunarmanna reikninga.
i) Kosníng í nefndir.
j) Önnur mál.
Aðalfundur telst lögmætur og ályktunarhæfur sé löglega tíl
hans boðað. Stjórn félagsins er heimilt að boða til aukaaðal-
fundar ef þörf krefur. Skal hann boðaður á sama hátt og aðal-
fundur.
VI. FJÁRMÁL
9. gr. Fjármál
Reikningsár félagsins er almanaksáríð, Reikningar skulu lagðír
fram á aðalfundí, yfirfarnir af kjörnum skoðunarmönnum.
10. gr. Félagsgjöld
Aðalfundur ákveður árgjald hverju sinni að fenginni tillögu
stjórnar. Nemar með aukaaðild greiða hálft árgjald einstakl-
ings, en stofnanir tvöfalt árgjald. Heiðursfélagar og þeir sem
hafa náð 70 ára aldri eru undanþegnir árgjaldi en njóta allra
réttinda á við fullgilda félaga.
VII. FÉLAGSFUNDIR
11. gr. Félagsfundir
Til almennra félagsfunda skal stjórn félagsins boða skriflega.
Til fundar er skylt að boða ef a.m.k. 20 fullgildir fólagsmenn
óska þess skríflega og tilgreina fundarefní. Skal þá fundurínn
haldinn innan tveggja vikna.
VIII. LANDSFUNDUR
12. gr. Landsfundur
Landsfund skal halda að hausti annað hvert ár. Landsfundur
skal að jafnaði vera tveggja daga ráðstefna þar sem fjallað er
um bókasafna- og upplýsingamál. Stjórn félagsíns skipar
landsfundarnefnd og er starfstími hennar milli landsfunda.
IX. LAGABREYTINGAR OG GILDISTAKA
13. gr. Lagabreytingar
Lögum þessum er aðeins hægt að breyta á löglega boðuð-
um aðalfundi eða aukaaðalfundi. Tillögur um lagabreytingar
verða að hafa borist stjórn félagsins fyrir 15, mars.
Bókasafnið 24. Arg. 2000
61