Bókasafnið - 01.01.2000, Side 69
Yfirlýsing IFLA
um bókasöfn og vitsmunalegt frelsi
Yfirlýsing útbúin af IFLA'FAIFE og samþykkt af framkvæmda-
stjórn IFLA í Haag í Hollandi þann 25. mars 1999,
IFLA (Alþjóðlegt samband bókasafna og stofnana) styður, ver
og stuðlar að vitsmunalegu frelsi eins og það er skilgreint í
Mannréttíndayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna.
IFLA lýsir því yfir að allir menn eigi grundvallar rétt til
aðgangs að framsetningu þekkingar, skapandi hugsunar og
vitsmunalegrar virkni, ennfremur til að tjá skoðanir sínar
opinberlega.
IFLA álítur að réttur til þekkingar og tjáningarfrelsi séu tvær
mismunandí hliðar sama grundvallarlögmáls. Rétturinn til
þekkingar er forsenda fyrír frjálsa hugsun og samvisku, Frjáls
hugsun og tjáningarfrelsi eru nauðsynleg skilyrði fyrir frjálsan
aðgang að upplýsingum.
IFLA staðhæfir að fylgi við vitsmunalegt frelsi sé þungamiðja
ábyrgðar starfsstétta bókasafna og upplýsingamiðstöðva.
IFLA hvetur þess vegna bókasöfn og starfsfólk bókasafna til
að halda fast við undirstöðuatriði vitsmunalegs frelsis,
óhindrað aðgengi að upplýsingum og tjáningarfrelsi, ennfrem-
ur að viðurkenna friðhelgi notenda bókasafna.
IFLA hvetur meðlimi sína til að efla með starfsemi sinni
viðurkenningu og framkvæmd ofangreindra grundvallaratriða.
Með því að gera það, staðhæfir IFLA að:
• Bókasöfn láti í té aðgang að upplýsingum, hugmyndum
og skáldskap. Þau þjóní sem lykill að þekkingu, hugsun
og menningu.
• Bókasöfn láti í té míkilvægan stuðníng við símenntun,
sjálfstæði í ákvarðanatöku og þróun menningar fyrir bæði
einstaklinga og hópa.
• Bókasöfn leggi fram sinn skerf til vaxtar og víðgangs vits-
munalegs frelsis og aðstoði við að tryggja grundvallar
lýðræðislegt gildísmat og almenn borgaraleg réttindi.
• Bókasöfn berí bæði ábyrgð á að tryggja og auðvelda
aðgang að skráðri þekkingu og vitsmunalegri starfsemi. í
þessum tilgangi eigi bókasöfn að afla, varðveita og gera
aðgengilegar mismunandi tegundir efnis, sem endur-
spegli menningu og fjölbreytileika þjóðfélagsíns.
• Bókasöfn eígi að tryggja að fagieg sjónarmið en ekki
stjórnmálaleg, siðferðileg eða trúarleg viðhorf ráði við val
og aðgengileika safngagna og þjónustu.
• Bókasöfn eigi að afla, skípuleggja og dreifa upplýsingum
á frjálsan hátt og vera andvíg hvers konar ritskoðun.
• Bókasöfn eigi að gera safnkost, aðstöðu og þjónustu jafn
aðgengileg fyrír alla notendur. Engin mismunun ætti að
vera vegna kynþáttar, trúarbragða, kyns, aldurs eða
annarra þátta.
• Bókasafnsnotendur muni eiga rótt á friðhelgi og nafn-
leynd. Bókaverðir og annað starfsfólk bókasafna á ekki
að láta uppi við þríðja aðila persónuupplýsingar notenda
eða gefa upp efnið sem þeir nota.
• Bókasöfn fjármögnuð af almannafé og sem almenningur
hefur aðgang að eiga að hafa grundvallaratriði vitsmuna-
legs frelsis í heiðri.
• Bókavörðum og öðru starfsfólki í slíkum bókasöfnum er
skylt að styðja við ofangreind grundvallaratríði.
• Bókaverðir og annað fagfólk á bókasöfnum eíga að
uppfylla ábyrgð sína bæði gagnvart vinnuveitanda sínum
og notendum. Ef til árekstra kemur milli þessara þátta
skal skylda við notendur vega þyngra á metunum.
IFLA (International Federation of Library Associations and Insti-
tutions) var stofnað árið 1927. Félagar IFLA eru í 155 iöndum
um heim allan. FAIFE er nefnd innan- IFLA og stendur fyrir Free
Access to Information and Freedom of Expression, í Kaup-
mannahöfn. Heimasíðan er: http://vwvw.faife.dk/
Þórdís T. Þórarinsdóttir þýddi
Bókasafnið 24. árg. 2000
67