Bókasafnið - 01.01.2000, Síða 70

Bókasafnið - 01.01.2000, Síða 70
Þórdís T. Þórarinsdóttir íslenskar fræðibækur ársins 1998 Félag bókasafnsfræöínga veitti þann 10, nóvem- ber 1999 í sjöunda skiptíð viðurkenningar fyrir bestu frumsömdu fræðibækur ársins, Stofnað var til þessara viðurkenninga í tilefni af 20 ára afmæli félagsins haustið 1993. Annars vegar er veitt viðurkenning fyrir fræðibók fyrir fullorðna og hins vegar fyrir fræðibók sem ætluð er börnum, í báðum tilfellum hljóta höfundar bóka ásamt og útgefendum viðurkenningu þar sem vönduð bók byggir á skilvirkri sam- vinnu þessara aðila. Markmiðið með viðurkenningunum er að vekja athygli á mikilvægi þess að gera fræðibækur vel úr garði hvort sem markhópurinn er börn, unglingar eða fullorðið fólk — jafnt almenningur sem sérfræðingar, Staða fræðibókaútgáfu á íslandi Vönduð fræðirit á (slensku hefur jafnan vantað sárlega á (s- lenska bókamarkaðinn þó vissulega megi einnig finna nokkur mjög vönduð rit á markaðnum ár hvert, Því miður hefur eink- um vantað fræðirit fyrir börn og unglinga sem ekkí geta nýtt sér til fullnustu fræðibækur á erlendum málum. Það hefur einkum viljað brenna við að nauðsynlegar hjálpar- skrár vanti í þau fræðirit sem út hafa verið gefin og hefur það rýrt gildi þeirra verulega og valdið því að ritin geta ekki staðist kröfur sem vandaðar fræðibækur og jafnframt komið að gagni sem uppsláttarrit og handbækur. Fræðslugildi útgefinna bóka er oft á tíðum mikið og að mörgu leyti vandað til efnis þeirra en það hefur því miður oft rýrt gildi þeirra verulega að aðgengi upplýsinga, til dæmis í hjálparskrám, er ekki eins og best verður á kosið, Með hjálparskrám er hér átt við skrár sem hafðar eru aftast í ritum þar sem efnisatriðum úr texta er raðað í stafrófsröð og vísað til blaðsíðutals ( megintexta. Slíkar skrá eru ein meginfor- senda þess að nota megi fræðibækur þar sem fjallað eru um tiltekið efni á samfelldan hátt sem nokkurs konar uppsláttarrit eða handbækur. í könnun sem undirrituð gerði á útgáfubókum ársins 1991 (Bókasafnið, 1994, bls, 19) kom (Ijós að aðeins um 26% af fræði- bókum þess árs voru búnar hjálparskrám af einhverju tagi og enn er áberandi að slikar skrár vantar í fræðibækur og uppsláttarrit. Viðmiðunarreglur dómnefnda Fyrir hvorn flokk starfa 3ja manna dómnefndir bókasafns- og upplýsingafræðinga um val fræðibókanna. í dómnefnd um mat á fræðibók fyrir börn sitja þær Ása Sigríður Þórðardóttir (formaður), Lilja Ólafsdóttir og Þorbjörg Karlsdóttir, í dómnefnd um mat á fræðibók fyrir fullorðna sitja þær Bryndís Áslaug Óttarsdóttir, Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir og Þórdís T. Þór- arinsdóttir (formaður). Dómnefndirnar hafa sett sér ákveðnar starfs- og viðmiðun- arreglur sem Félag bókasafnsfræðinga hefur staðfest og hafðar eru til hliðsjónar þegar útgáfubækur eru metnar, Þar er fjallað um hvaða kröfur skal almennt gera til fræðibóka þannig að þær teljist jafnframt hafa gildi sem handbækur og upp- sláttarrit. í viðmiðunarreglunum er meðal annars fjallað um eftirfarandi atriði: Sérfræðiþekkingu höfundar, efnisuppbygg- ingu og efnisgreiningu ritsins, aðferðafræði og markmið, mál og stíl, efnismeðferð ( meginmáli, tilvitnanir til heimilda, bók- fræðilegar skrár, hjálparskrár, myndefni og myndaskrár, út- drætti, frágang og notagildi ritsins, Viðurkenningarnar eru fyrst og fremst ætlaðar til þess að hvetja 'íslenska höfunda og útgefendur til að vanda til útgáfu frumsamdra íslenskra fræðibóka og er þeim bent sérstaklega á að láta ekki vanta í bækur ítarlegar hjálparskrár sem auð- velda aðgang að þeim upplýsingum sem þær hafa að geyma. Hjálparskrár stuðla að auknu notagildi bóka, lengja þar með lífdaga þeirra og gera þær eftirsóknarverðari fyrir bókasöfn landsins og notendur þeirra almennt. Frumsamin íslensk fræðibók ársins 1998 Að þessu sinni hlaut bókin Matarást. Alfræöibók um mat, sem Nanna Rögnvaldardóttir tók saman og Iðunn gaf út, við- urkenningu Félags bókasafnsfræðinga fyrir frumsamda ís- lenska fræðibók fyrir fullorðna. 68 Bókasafnið 24. árg. 2000
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.