Bókasafnið - 01.01.2000, Síða 72

Bókasafnið - 01.01.2000, Síða 72
Minnisstæð bók árið 2000 i þetta sinn voru fjórir bókaverðir beðnir um að skrifa um bók sem er þeim sérstaklega minnisstæð nú þegar 20, öldin er að líða undir lok. Þrír völdu þækur sem komu út á síðasta áratugi aldarinnar en einn valdi bók frá sjöunda áratugnum, Það vakti sérstaka athygli ritnefndar að enginn kaus að 'fjalla um ritverk eftir Halldór Laxness og ennfremur að konurnar skrifa um skáldverk en kariamír um ævisögu og endurminningabók, Einar Örn Lárusson Haraldur Bessason: Bréf til Brands. Seltjarnarnesi: Ormstunga, 1999: 253 bls. Haraldur Bessason er Skagfirðingur, Eftir cand. mag. próf (íslenskum fræðum árið 1956 hélt hann ti! Winnipeg, þar sem hann var prófessor við Manitobaháskóla næstu þrjátíu árin og reyndar einu betur. Árið-1987 sneri hann aftur heim til fslands til að gerast fyrsti rektor Háskólans á Akureyri. Hann hefur nú látið af rektorsembættínu, en stundar enn kennslu við skólann. Nú fyrir jólin sendi hann frá sér minningabók í formi sendibréfa. Þetta er býsna snjöll og skemmtileg aðferð. Bæði verður samband höfundar og lesanda nánara og höfundur hefur frjálsari hendur en í skipulegri frásögn, getur farið fram og aftur í tíma að vild sinni, Bróf til Brands er afar skemmtileg bók aflestrar, Haraldur kann frá mörgu að segja, bæði frá æskuárum sfnum ( Skagafirði og starfsárum \ Kanada, Hann kom nógu snemma vestur til að ná í skottið á gamla tímanum meðal Vestur-fslendinga. Til að mynda kynntist hann bæði Vilhjálmi Stefánssyni landkönnuði og Guttormi J. Guttormssyni skáldi. Reyndar er það ein af mörgum skemmti- legum frásögnum f bókinni þegar þessir tveir voru á sömu samkomu í Geysi f Manitoba, og Haraldi þótti sem hér væri gullið tækifæri til að kynna þessa öldnu landa, Er skemmst frá því að segja, að kynningin mistókst með öllu, sem var þó ekki sök Haralds. Vilhjálmur tók kynningunni fálega, kvaðst ekki þekkja ungu skáldin (Guttormur var um áttrætt), ,,ég þekkti bara Stephan G.", og gekk burt. Haraldur vissi ekki þá, en komst að því síðar, að Guttormur hafði áratugum áður skopast í bundnu máli að einhverju f skrifum Vlhjálms. Vestur-fslendingar- hafa verið nokkuð í tísku hér á landi síðustu árin, Áreiðanlega á Böðvar Guðmundsson þar stóran hlut að máli með meistaraverki sfnu, Hfbýli vindanna og Lffsins tré, þar sem hann róttir nokkuð hlut þeirra sem ,,flúðu land uppúr ættjarðar- Ijóðunum miklu 1874", eins og Halldór Laxness orðaði það á einum stað, Bók Haralds Bessasonar er gott framlag til sögu Vestur-íslendinga. Laufey Eiríksdóttir Böðvar Guðmundsson: Hbýli vindanna. Reytjavík: Mál og menning, 1995, 336 bls. Bók sem hefur óvenju sterk áhrif á lesandann gerir það oft vegna um- hverfisáhrifa svo sem hvar bókin er lesin og undir hvaða kringumstæðum. Þannig er mér mjög minnisstætt hvernig lestur bókarinnar Híbýli vindanna varð tyrir mér eins og nokkurs konar vitrun, vegna þeirra að- stæðna sem ég bjó við þegar ég las hana, Ég.dvaldist þá.í Vancouver á vesturströnd Kanada, þar sem sögumaður bókarinnar hefur frásögnina í upphafi. Ég hafði nýlega hitt í týrsta skipti Vestur-fslendinga og upplifað þá furðulegu staðreynd að ennþá kenna þeir sig við ákveðna staði á íslandi, s.s, konan sem kynnti sig sem „Helga from Seydisfjordur". Þegar ég spurði hana í fávisku minni hvenær hún hefði flutt frá Seyðisfirði kom í Ijós að hún hafði aldrei litið þann stað augum. Ég hafði líka verið kynnt fyrir barnabarni annarrar konu sem vildi endilega að afkomandinn hitti konu sem væri „real lcelandic". Það höfðu líka komið upp erfið augnablik, eins og þegar fullorðinn maður spurði mig ftrekað hvort íslendingar litu mikið niður á Kanada-fslendinga eins og þeir vilja kalla sig, Sami maður, sem var af þriðju kynslóð landnema, hafði ferðast um allan heim en 70 Bókasafnið 24. árg. 2000
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.