Heima er bezt - 01.03.2002, Qupperneq 7
Gíslason, magister í ís-
lenskum fræðum. Ekki
má ég beldur gleyma
dr.Jóni Gíslasyni, sem
kenndi flest tungumál, og
tók svo við skólastjórn,
eins og við var búist, er
Vilhjálmur varð útvarps-
stjóri.
Ég varð ekki stúdent frá
skólanum, enda hafði ég
ekki áhuga á því, þar sem
tónlistarnám mitt sat í al-
gjöru fyrirrúmi. Ég sé
ekki eftir því að hafa sett
tónlistina í öndvegi. Hún
er líka drottning listanna.
Tónmenntun og tónlist-
arstörf
Þá er það tónmenntun-
in. Ég byrjaði tíu ára gam-
all í píanónámi hjá Matt-
hildi Matthíasson, að
Túngötu 5, og fór síðan í
Ungur á árum og með hár, í sal
Landsímahússins.
Kvartett Arna Isleifssonar a Röðli um
196().
Arni Isleifsson viprafónn, Bragi
Hlíðberg píanó, Ragnar Bjarnason
trommur, Kristján Hjálmarsson
klarinett og gestasöngvari Haukur
Morthens.
Tónlistarskólann. Nám mitt þar var
nokkuð slitrótt, vegna náms í Versló,
en ég hélt mig þó allvel að námi.
Telja má ég upp þá frábæru kennara,
sem kenndu mér á píanó: Katrínu
Dalhoff Danheim, Victor Urbancic,
Karl O.Runólfsson, Lansky Ottó, og
síðar á fullorðinsárum, þá Gísla
Magnússon og Rögnvald Sigurjóns-
son. Mér samdi vel við skólastjóra
og kennara þama.
fæddur á landi“, sem Haukur
Morthens söng inn á hljóm-
plötu við texta Aðalsteins Að-
alsteinssonar á Höfn í Horna-
firði. Þá er það „Fjallarefurinn“
og „Þetta er ekki hægt“. „Sum-
ar er í sveit“ er létt lag og auð-
velt að syngja og læra. „Óra-
belgur“ er eitt, einnig „Snjó-
karlinn" og „Komdu með mér
út, allt er fullt af snjó“, sem var
mikið sungið. Textann gerði
Númi Þorbergsson, hinn kunni
dægurljóðahöfundur og hag-
yrðingur.
Mér þótti vænt um að lögin
mín féllu í góðan jarðveg, ekki
síst hjá börnunr og unglingum.
Til gamans var ég að frétta af
lagi eftir mig, sem nýkomið er
út á diski með píanóleikaranum
Magnúsi Péturssyni og nefnist
„Smiðju-Samba“. Ég verð að
drífa mig að nálagast þennan
disk, því ekki man ég neitt eftir
þessu lagi.
Og þar sem minnst er á þessi
lög mín, finnst mér ekki fara
illa á því að birta einn af text-
unum við þau. Það er texti Guð-
mundar Sigurðssonar, vísnaskálds,
„Þetta er ekki hægt“.
Að elska, það er lífsins list,
sem lærist ekki í heimavist.
Og ástinni fœr enginn breytt
né öldur hennar lægt.
En sumir elska saklaust, þó
að sé það hinum ekki nóg,
því flestir vilja aðeins eitt.
En þetta er ekki hœgt.
En ástin lék þó ýmsa grátt,
því elskað var á margan hátt.
Og sumum er hún andlegfró,
en öðrum líkamsrækt.
En allir þrá að elska heitt,
og engu verður þar um breytt,
þó ýmsir fái aldrei nóg.
Nei, þetta er ekki hœgt.
Mín kunnustu sönglög
Leikið með hijómsveitum
Ef ég á að nefna mín kunnustu lög,
hefur „Stína,ó,Stína“ orðið einna
lífseigast. Svo kom „Ég er farmaður,
Ég byrjaði að spila opinberlega
með Hljómsveit Björns R. Einars-
sonar í Listamannaskálanum við
Heima er bezt 103