Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2002, Síða 17

Heima er bezt - 01.03.2002, Síða 17
---- Hrafl frá hugans leynum 0 ft sækja á hugann brot minningamynda, hrafl eitt sem stundum skapar heillega mynd, en dvínar oftar en ekki og deyr svo út fyrr en varir og síðan ekkert meir. Harmsagan frá Ási í Fellum skýtur æði oft upp kollin- um í ægileik sínum og kallar þá fram tengdar minningar bernsku og æsku frá árum setuliðsins, svo sem her- námslið Breta og Bandaríkjamanna var kallað á þeim árum og síðan eftirhreytur þess sama setuliðs, eftirhreytur sem skópu harmleikinn mikla í Fellum nóvemberdaginn napra. Og þá að upphafinu, hernáminu, sem ungur sveinn komst svo sannarlega í nána snertingu við. Sex ára gam- all var ég þegar brezku herskipin sigldu inn Reyðarijörð- inn og enn man ég þegar faðir minn fór af bæ til að fregna af skipakomu, því ekki sást út á fjörðinn frá okkur í Seljateigi og enn betur man ég gleði þeirra heima yfir því að komumenn voru Bretar en ekki Þjóðverjar, þó annars væru foreldrar mínir lítt hrifin af þessum erlendu afskiptum. M.a.s. fékk ég að fara út fyrir hæð eins og það var kallað til að sjá mætti skipin á höfninni og seint fyrn- ast áhrifin frá þeirri stund og enn frekar þegar herflokkur kom heim á hlað og fyrirliðinn bað um viðtal við föður minn. Allir voru þeir með byssur um öxl og ekki hægt að neita beyg miklum í brjósti þess sex ára við þessa heim- sókn, enda hélt sá sig rækilega innan dyra þrátt fyrir for- vitnina og höfðu þó foreldrar mínir brýnt fyrir mér að ekkert væri að óttast af hálfu þessara vopnuðu hermanna, sem aðeins væru að gegna skyldu sinni við land sitt. Bretarnir byggðu svo herbúðir beggja vegna Seljateigs, aðrar í aðeins nokkur hundruð metra fjarlægð frá bænum okkar. Nálægðin við setuliðið varð enn meiri fyrir þá sök að faðir minn talaði reiprennandi ensku eftir áradvöl sína í Kanada og var því oft kallaður til sem túlkur, svo og sóttust þeir brezku eftir að spjalla við hann m.a. til að fá fréttir af ýmsu sem ekki var í þeirra eigin fréttum sem bæði voru stopular og litaðar. Það voru raunar þær ís- lenzku meira og minna á þessum tíma með fréttaskeyti Reuters sem aðalheimild. Foreldrar mínir seldu þeim mjólk og egg, að vísu í litl- Heimaerbezt 113

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.