Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2002, Qupperneq 21

Heima er bezt - 01.03.2002, Qupperneq 21
þar sem hann var í notk- un um árabil. Báturinn var knúinn 14/56 ha. gufuvél með 7 tonna kolageymslu. Að- almál bátsins voru sem hér segir: Lengd 56,0 fet, breidd 13,8 fet, dýpt 7,4 fet. Stærð: 36 brúttótonn og 15 nettótonn. Asgeir litli er talinn vera fyrsti flóabátur við Island og á næstu árum þróuðust siglingar póst- og farþegabáta milli helstu strandhéraða landsins með tilkomu vélknúinna skipa, svo að um reglu- bundnar ferðir var að ræða. Ferðir Ásgeirs litla voru bundnar við tímabilið mars/október ár hvert og siglt eftir áætlun um Ísaíjarðar- djúp, Jökulfirði og eftir því sem þurfa þótti til Öndundarfjarðar, Súg- andafjarðar, Aðalvíkur og Hornvíkur. Ásgeirsverslun á ísafirði hafði um þetta leyti allmikil viðskipti við Djúpmenn og hafði blautfiskmóttök- ur á Snæfjallaströnd og víðar í Norð- ur Isafjarðarsýslu. Með ferðum Ásgeirs litla þótti stórt spor stigið í samgöngumálum Arngerðareyri 1975, þegar verslunar- og pakkhús frá tímum Asgeirsversl- unar voru ennþá uppistandandi. Djúpmanna og víðar vestra, að vísu var skipið ekki stórt, en káeta í því á upphækkuðu þilfari rúmaði fimmtán manns í sæti og þegar lest var lokuð var rúmgott farþegapláss á þilfari. Árið 1910 hætti báturinn póstferð- um en var áfram í flutningum fyrir Ásgeirsverslun til ársins 1915, en þá var honum lagt upp í ijöru á ísafirði, þar sem búið var í honum um skeið. Sýslunefnd Isafjarðarsýslna óskaði vorið 1905 eftir fullnægjandi gufu- bátsferðum um ísafjarðar- djúp, en fram að því hafði aðeins verið siglt að sumar- lagi. Eftirtaldir útgerðarað- ilar fengu opinberan styrk til Djúpferðanna árin 1904- 1942: Pétur M. Bjarnason, kaupmaður á ísafirði 1904- 1908, Skúli Einarsson út- gerðarmaður, 1908-1912 og 1919. Tang & Riis 1908-1913, Jón Gunn- laugsson 1912-13, 1915-19 og 1919-20, Sigurður Þor- varðsson kaupmaður og Þorvarður Sigurðsson í Hnífsdal 1913-14, Karl Ol- geirsson og Jóhann Þorsteinsson 1914-15 og 1920, h/f Djúpbáturinn 1920-33, Landsbanki íslands 1925. Skipaútgerð ríkisins 1933-34, Högni Gunnarsson 1934, h/f Vestfjarðabát- urinn ísafirði 1935-42. Eins og sést á framangreindri upp- talningu koma margir aðilar við sögu póstbátsferðanna um Djúpið á tíma- bilinu 1904-42 og meðal farkosta þeirra voru eftirtaldir bátar: Gufubáturinn Guðrún, sem síðar var breytt í mótorbát (ekki er vitað um stærð en báturinn var áður eign N.C. Pedersen, Dana, sem stundaði á því skarkolaveiðar frá Flateyri í Öndundarfirði), e/s Tóti, 40 tonn, m/b Geir, e/s Varanger, 87 tonn (var einnig í ferðum um Vestfirði og Breiðafjörð til Reykjavíkur), m/b Sæfari, 27 tonn, m/b Freyja, 29 tonn, m/b Mercúr, 22 tonn, m/b Frigg, 27 tonn, m/b Bragi, 47 tonn, m/b Valur, 20 tonn, m/b Arthur & Fanny, 46 tonn, e/s Hermóður, 113 tonn, m/b Geir, 59 tonn, m/b Egill Skallagríms- son, 12 tonn, m/b Hekla, 30 tonn, m/b Snarfari, 26 tonn, m/b Huginn 2, 59 tonn, m/b Huginn 3, 59 tonn, e/s Kolbeinn ungi, 58 tonn (báturinn þótti ekki nothæfur), e/s Olaf, 74 tonn, m/b Elín, 31 tonn, m/b Svanur, 15 tonn, m/b Harpa og e.t.v. fleiri bátar koma þarna við sögu. Þann 1. desember 1942 var Út- gerðarfélag Djúpbátsins h/f stofnað á Isafirði til reksturs m/s Fagraness, 70 tonna farþegabáts sem keyptur var M/s Arthur & Fanny annaðist um árabil Djúpferðir á millistríðsárunum. Heima er bezt 117

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.