Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2002, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.03.2002, Blaðsíða 24
nákvæmlega var áætlunin athuguð. Og ekki var ánægjan alltaf geislandi yfir þessu. - Nú held ég að mennirnir séu orðnir vitlausir, heyrðist sagt. - Báturinn kemur á snarvitlausum tíma. Þetta er þeim líkt. - Nei, nú er það ekki einleikið með þá. Báturinn á nú að fara innum alla Jökulfirði. Að þeir skuli ekki alveg hætta þessu og láta Djúpmennina alveg hafa bát- inn, því um þá er hugsað. Þannig var talað og bollalagt um ágalla þá sem fylgdu hinum fáu ferð- um, rætt um ijandskap þeirra manna sem stjórnuðu ferðum bátsins og skilningsleysi þeirra á sárri þörf norðurbyggjanna fyrir flutningshjálp hans. Þá var rætt um gjöldin. Far- gjöldin voru alltof há, hreint okur Fagranes II á Grunnavíkí júlí 1983. fyrir að sitja eða standa á þilfari alla þessa leið. Ekki voru flutningsgjöld- in betri. Fyrir að flytja einn mjölpoka varð að greiða offjár. Þannig braust út gremja manna yfir hve skammt þessar ferðir náðu til þess að leysa samgönguerfiðleik- ana. En á þessum árum barst þó oft önnur hjálp. Á hverjum degi á vorin var von skipa inn á víkurnar, fiski- bátanna sem leituðu þar hafnar og varð því komu Djúpbátsins oft og tíðum ekki veitt eins mikil eftirtekt H. f. Djúpbáturinn 7603 O * hefir greitt fargjald frá cil kr. með tn.s. Fagranes ...............................................:................................. Ifló ? ■ stýýtnaður Gamall farseðill með Djúpbátnum. Fagranes II við bryggju í Grunna- vík 17. júlí 1983. Fólkið um borð eru kirkjugestir á leið til messu að Stað í Grunnavík. Fagranes II sœkir fólk af átthagamóti Grunnvíkinga að Flœðareyri við Leirufjörð í Jökul- Jjörðum, í júlímán- uði 1969. Einn sem bar ábyrgð á ferðahópnum úr Borgar- firði 1975, Guðmundur Finnsson, um borð í Djúp- bátnum á siglingunni frá Bœjum að Æðey. og á haustin, þegar engra skipa var þar von. Það kom svo sem fyrir að á vorin væri ferð hans lítt notuð, aðrar ferðir gáfust, sem bet- ur hentuðu og voru ódýrari. Fiskibátarnir komu inn og tóku menn til vesturfarar 120 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.