Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2002, Page 37

Heima er bezt - 01.03.2002, Page 37
áður skagaði út í sjó, en er nú á þurru landi. Þar á Þang- brandur að hafa lagt skipi sínu. Því heitir hann Þang- brandsbryggja. Þar upp af er Preststeinsbali og Presta- steinn. Þar átti Þangbrandur að hafa haldið sína fyrstu messu eftir að til Islands kom. Norðan við Preststeinsbalann eru Flugustaðaklif og upp af þeim Kjölijall. Norðan við Klifin er örnefnið Þang- brandshróf. Þar á Þangbrandur að hafa geymt skip sitt þá tvo vetur er hann hélt til á Þvottá. (Safn til sögu íslands). Kristnisaga: „Hallr lét flytja þá til Álftaíjarðar ins syðra í Leyruvág ok setti upp skip þeirra þar, er nú heitir Þangbrandshróf en Hallr færði skipfarminn heim á túnvöll sinn ok gerði þar tjald, þat er þeir Þangbrandr váru í. Þar söng Þang- brandr messu.“ Mestar líkur eru á að Þorsteinn trumbubein hafi búið að Starmýri við landnám frekar en á Þvottá, þó ekkert verði um það sagt með neinni vissu því að þessar tvær jarðir hafa þá um margt verið ólíkar því sem nú er. Kem- ur þá tvennt helst til. Hið fyrra er að þá hafa hinar miklu og góðu engjar Starmýrarteigar, verið undir sjó. Hið síðara er að þá er talið að gróðurlausir melar og hlíðar Þvottárlands, hafi verið gróið graslendi. Þegar Þangbrandur var þarna á ferð bjó „Síðu-Hallr at Á,“ en eftir að hafa látið skírast í ánni og allt hans fólk, fékk áin og jörðin nafnið „Þvottá". Síðu-Hallur var Þor- steinsson, Böðvarssonar hvíta á Hofi. Móðir Halls var Þórdís, dóttir Össurar keiliselgs, Hrollaugssonar land- námsmanns í Horna- firði. Kona Síðu- Halls var Jóreiðr (Jóreiður) Þiðranda- dóttir, Ketilssonar þryms á Arneiðarstöð- um á Fljótsdal. (Arn- heiðarstöðum). Móðir Þiðranda hét Arneiðr Ás- björnsdóttir skerjablesa úr Suðureyjum. (Hebriderna). Menn hafa velt fyrir sér hvernig kenn- ingarnafnið Síðu- Hallur sé til kom- ið. Skýringin gæti verið sú að hann bjó á suður-síðu sveitarinnar. Ég bendi á orðalag víða í Njálu, eins og „Þetta spurði Hallr af Síðu“ og „Hann sendi orð Halli á Síðu, mági sínum.“ Enn fremur í Sóknarlýsingu Hofs og Hálssókna frá 1840, segir og er þá miðað við suðurfjöll Álftafjarðar fyrir ofan Þvottá (Kyrfugilsheiði): „Austan fram á þá síðu, sem horfir að Álftafirðinum.“ I miðjum firði út frá vesturlandi eru Nesbjörg og eyjan Brimilsnes, sem skagar langt út í ijörðinn og skiptir hon- um í tvo álíka stóra hluta. Á síðari tímum hefur ljörður- inn sunnan Brimilsness verið kallaður Suður-Álftaflörð- ur. Sama er að segja um þann hluta sveitarinnar, það er frá Múlahálsi suður fyrir Þvottá. Af orðalagi Landnámu er óljóst hvernig Böðvar hvíti og Brand-Önundur, skiptu með sér löndum. Nafnið Múla-Kambsdalur er greinilega sett saman úr tveim nöfn- um; dalurinn sunnan ár dregur nafn af múlanum, en norð- an ár af Kambfelli og Kambgili. Þessum tveim nöfnum er síðan slegið saman, svo úr varð Múla-Kambsdalur, sem síðar breyttist í Geithellnadal. En dalurinn sunnan ár heldur sínu upphaflega nafni, Múladalur. Þá er að líta á hið óljósa orðalag sögunnar um landnám Brand-Önundar, þar sem segir „...nam allt land fyrir norðan Múla-Kambsdal ok inn til Ham- arsár.“ Þetta orðalag er tæplega hægt að skilja á annan veg en þann, að hann nemi land norðan Geithellnaár. Á sama hátt eru allar líkur til þess að Hamars- dalur sunnan ár (Bragðavalladalur) hafi tilheyrt landnámi Brand-Önundar. Áin heitir þá þegar Ham- arsá. Ekki er vitað hvar Brand-Önundur bjó, en annaðhvort hefur það verið á Geithellum eða Mel- rakkanesi. Árbók F. í. 1955 rit- ar próf. Stefán Einars- son. Hann veltir þessu fyrir sér og kemst að eftir- farandi niðurstöðu: „Ekki er ólíklegt, að Brand-Önundur hafi búið á Mel- rakkanesi, því að þar hefur þá verið veiðiskapur, selver og eggver, fiskur gengið í flóann, og Álftaljörður verið Minnisvarði á Þvottá, um Síðu-Hall, árið 2000. Heima er bezt 129

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.