Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2002, Blaðsíða 41

Heima er bezt - 01.03.2002, Blaðsíða 41
með tilliti til grunnssins, eru mjög svo umbreyttar orðnar þannig að nú má svo nær allstaðar þurrum fótum ganga um fjörutímann hvar áður liggja mátti með þilju skip. Hofshólmar Næst norðan Flugustaðaklifs eru Flugustaðaengjar, síð- an Hofsá og Hofsárhólmar, þar sem áin kvíslast út í fjörð- inn. í Þorsteinssögu Síðu-Hallssonar (bls. 400) segir að hann geymi þar langskip, sem hann réri á þegar hann fór til fundar við Þórhadd fyrrum granna sinn og syni hans austur á Berufjarðarströnd: „...Þann dag var ofviðri mikit. Þorsteinn tók öxarnar ok jafnvætti í hendi sér, ok var Þiðrandanautr þyngri, ok þótti honum ekki þó þess ván. Síðan bjóst hann til ferðar ok stígr á ferju, fóru til Hofshólma ok tóku þar langskip gott ok reru út úr Álftafirði snemma of morgin. Þeir váru átján saman ok fóru svá norðr til Landsness.“ (Búlands- ness). Ef taka á frásögn þessa bókstaflega verður hún vart skilin á annan veg en að fjörður, eða fjarðarræma, þar sem áin er nú, hafi þá náð alla leið inn til bæjar á Hofi. Þ. Thoroddssen: Ferðabók I. 1882: „Við Álftafjörð sjást nokkrar fornar sævamenjar, bæði fjöruborð og hellar brimbarðir, nokkuð yfir sævarmáli:“ Páll Imsland jarðfræðingur hefur fylgst með stöðu sjávar við Hornafjörð, frá því um 1950. Páll telur að mið- að við þær niðurstöður sem hann hafi fengið út úr þeim rannsóknum, þá hafi landris orðið um 2 sm. á ári, eða um lm. sl. 50 ár. Hann telur þó að landris við Álftafjörð sé eitthvað minna. Páll segir að engin leið sé að vita hver staða sjávar hafi verið á tímum landnánrs, en þó sé hægt að fullyrða að slík hröð þróun og síðustu 50-60 ára, geti engan vegin hafa verið frá þeim tíma. Hvað hæð sjávar snertir inn á Álftafirði verður hún lægri eftir að syðri ósarnir, þe. við Oseyjar og Þvottárnes hafa lokast og inn og útstreymi fjarðanna er aðeins um Melrakkanesós. Hofsá og Geithellnaá eiga einnig sinn þátt í grynnkun fjarðarins sem og að fylla upp sína eigin farvegi, frá því er þær voru jökulár. Olavíus segir þetta um Hofsá: „Fyrir ofan byggðina liggur Hofsjökull, sem er enn stærri og herfilegri en Þrándarjökull. Undan honum renn- ur Hofsá, vatnsmikil jökulá; fellur hún í tveimur kvíslum eftir eystri og syðri Hofsdal. Mér var tjáð, að áin hefði breytt ósi sínum fyrir skömmu, og rynni hún nú austar til sjávar en áður var. Farvegs breyting þessi olli skemmdum bæði á túni og engjum á prestsetrinu Hofi.“ í upphafi þessa máls er sagt frá eyjunni Brimilsnesi. Enginn vafi er á að Brimilsnes hafi í upphafi tilheyrt landnámi Böðvars hvíta. Allar líkur eru til að Hallur Þor- steinsson, haldi eyjunum fyrir sig þegar hann flytur frá Hofi til Þvottár, því í Vilchinsbók frá 1397, er eyjan talin til eigna og hlunninda Þvottárkirkju og heitir þá Brims- nes. I Gíslamáldaga frá 1570, er það sama endurtekið. Þann 17. maí, 1764, var kirkjan á Þvottá aflögð með kóngsbréfi. Allar hennar eigur og hlunnindi svo og jörðin Þvottá og Þvottáreyjar, voru lögð undir Hofskirkju. (í annálum eru hvorki jörðin Þvottá, né heldur Þvottáreyjar, taldar til eigna Þvottárkirkju). Þegar Hofsprestur flytur til Djúpavogs, eftir aldamótin 1900, þá tekur hann Þvottár- eyjar með sér sem sín hlunnindi. Nafnið „Brimsnes“ bendir til að brim hafi ná þangað inn meðan fjörðurinn var meira opinn fyrir úthafi. í bókinni Sveitir og jarðir í Múlaþingi segir m.a. þetta um Brimilsnes: „...Ennfremur á H, síðan kirkja var af- lögð á Þvottá, Brimilsnes í Álftafirði út af Hærukollsnesi. Það er langstærsta eyjan í firðinum, nokkuð klettótt (hæst 20 m y.s, en annars vel gróin. Þar er æðarvarp, selveiði og hagaganga fyrir um 30 kindur). Mín niðurstaða af þessum hugleiðingum er sú, að á tímum landnáms hafi grunnur fjörður náð alla leið inn til Hofs. Lægstu hlutar Brimilsness verið undir vatni og hafi því í upphafi verið kallaðir „Hofshólmar,“ sem síðar breytist í Brimsnes og síðast Brimilsnes. Hafi þetta verið svo, þá fær frásögnin um ferjuna og langskip í Hofshólm- um, í herför Þorsteins Síðu-Hallssonar austur á Beru- Ijarðarströnd, staðist. Landris það sem hér hefur verið fjallaö um skýrir einnig þá breytingu sem orðið hefur við áðurnefndar klettaborgir á Starmýrarteigum. Það má einnig hugsa sér hver sjávar hæð hefur verið við við Þangbrandsbryggju, þegar Þangbrandur prestur steig þar á land síðsumars 997. Rétt fyrir 1940 fór ég á litlum árabát frá Melrakkanesi til Starmýrar og lenti bátnum þar sem hét Oddsvík, sem er litlu sunnar en Leiruvogur og Þangbrandsbryggja. Eg var að fara í heimsókn til foreldra minna sem þá bjuggu þar. Nú um sextíu árum síðar er þarna gróið land, og þjóðvegurinn liggur þar sem áður var fjörður. Heimildir P. E. Kristian Kalund, Suður-Múlasýsla, 1879-1882, bls. 50-53. Landnámabók, bls. 187-189, íslendingasagnaútgáfa Guðna Jónssonar 1946. Tilvitnanir eru teknar úr Njálu, bls. 238 - 243 - 247 og 264, Guðni Jónsson 1947. Jón Bergsson prestur á Hofi frá 1837-43, gerði sóknarlýsingul840, fyrir Hofs- og Hálssóknir, þar með talið Papey. Eyjar og sker, úti fyrir Berufirði, Hamarsfirði, Álfta- firði og inn á fjörðum. Jónas Hallgrímsson, Eyjar og sker í Múlaþingi, bls. 199. Djúpivogur 400 ár við voginn, bls.401. ÁrbókFÍ. 1955, bls.33-34. Omefnaskrá f. Melrakkanes, Ömefnastofnun Þjóðminjasafns. 12 bindi Fombréfasafns Islands, bls. 61. Sveinn Pálsson, dagbækur og ritgerðir 1791-1797, bls. 364. Ferðbók Ólafs Ólavíusar, sekretere 1775-1777, bls 133. Kristnisaga, krisniboð Þangbrands, bls. 255, Guðni Jónsson 1946. Guðbrandur Magnússon, K h. 1856, Safn til sögu íslands. Um tímatal í íslendingasögum, bls. 431. Vilchinsbók frá 1397 og Gíslamáldagar 1570. Ferðabók Þorvaldar Thoroddssen, 1882, bls. 77. Þorsteinssaga Síðu-Hallssonar, bls. 400, Austfirðingasögur Guðni Jónsson 1947. Sveitir og jarðir í Múlaþingi, bls. 468. Páll Imsland, jarfræðingur, samkvæmt samtölum í apríl 1998. Páll staðfestir með símtali 30 ágúst 1998, að rétt sé eftir haft. Páll ritar grein um þetta í Skaftfelling 1993 ?, sem hann kallar Sögur af Hellnaskeri. Heima er bezt 133

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.