Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.10.2002, Blaðsíða 9
Efrí mynd: Barnaskólanemendur í Reykjanesi 1934-35. Eiríkur Stefánsson fyrsti kennarinn er efst til vinstri á myndinni, og Gróa stendur honum til vinstri handar. Neðri mynd: Fyrsta unglingadeild skólans 1935 og eldri deild barnaskólans eftir áramótin 1935-36. Gróa er í annari röð, með hvíta húfu á höfði. „druslast með þessa krakka,“ eins og ég orða það stundum. Sigga systir mín segir nú stundum að ég sé frek, og það getur vel verið, en einu sinni lokaði ég hana reyndar inni. Þá var ég 6 ára gömul, og átti að reka úr túninu. Sigga var þá 3ja ára. Hún var ekki farin að ganga þá, skreið bara, því hún fékk beinkröm, sem háði henni framan af. Fyrir utan bæinn var djúpur lækur og nokkuð breiður, og átti ég að sjá um að reka úr túninu. Ég þorði ekki að fara yfir lækinn án hennar, og skilja hana eftir, því hún gat farið í lækinn. Svo ég bara lokaði hana inni. Og hún varð svo sár yfir því að hún var reið út í mig lengi á eftir. Maður var einhvem veginn fæddur með svo mikla ábyrgðartilfinningu eða vandist a.m.k. mjög fljótt á að Ibúðarhúsið á Bjarnarstöðum. hafa hana. T.d. þegar við vorum að fara að smala, ég og Hákon bróðir minn, hann var svo lítill að mér fannst, að ég var alltaf skíthrædd um að týna honum. Ábyrgðartilfinningin var eitt- hvað svo sterk í manni. Maður var að druslast með þessi systkini sín fram og tilbaka og reyndar fannst mér þetta ekkert mál. Maður þekkti ekkert ann- að. Maður átti bara að gera þetta. Að sækja hesta og þess háttar var ég farin að annast um leið og ég gat dreg- ið haus til mín, beislað og fundið stóra þúfú, til þess að komast á bak. Eiginmaður og börn Síðan hætti ég á Akureyri, hafði eignast þar kærasta og orðið ófrísk, en það slitnaði upp úr sambandinu og fór ég þá heim í Reykjarfjörð. Ég segi stundum að ég hafi byijað á öfúgum enda, en svona er nú lífið. Þar eignast ég svo elsta bamið mitt, Aðalheiði Auðunsdóttur, en hún er fædd 6. nóv- ember 1941. Það mæltist nú dálítið misjafnlega fyrir heima að ég skyldi koma óffísk heim, faðir minn tók því reyndar með jafnaðargeði en móðir mín var ósáttari við það. Haustið 1942 ræðst ég síðan sem ráðskona fyrir verkamenn er unnu að því að byggja við skólahúsið og sund- laugina á Reykjanesi en fyrsti skólastjóri þar var Aðalsteinn Eiríksson. Kona hans var Bjarnveig Ingimundardóttir, og fyrsti kennarinn Eiríkur Stefánsson. Skólinn hafði ver- ið byggður árið 1934 og það sama ár settist ég í bamaskóla. Þá var reglan sú að á undan bamaskólanum var aðeins farskóli hér í sveitinni. Bamaskólinn starfaði í 6 vikur fyrir hver áramót. Eftir áramótin starfaði unglinga- skóli í 3 mánuði. Samhliða honum störfúðu tvær bamadeildir, sínar sex vikurnar hvor. Um vorið vom bamadeildimar svo saman í einn mánuð, við upplestur og próf. Fullnaðar- próf tek ég vorið 1935 og fer svo í unglingaskólann árið eftir, eða veturinn áður en ég fermdist. Aðalheiður mín var heima hjá for- eldrum mínum á meðan ég var að vinna á Reykjanesi en við það var ég einn vetur. Og þar kynntist ég mannin- um mínum, Halldóri Víglundssyni, ættuðum frá Vopnafirði, fæddur 11. Heima er bezt 425

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.