Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Side 36

Heima er bezt - 01.10.2002, Side 36
Ég hef alltaf viljað horfa fram á veginn Viðtal við Gróu Salvarsdóttur Framhald af bls. 429 „Nú, þama er nú aldeilis fínt starf fyrir okkur. Vitavarðarstaða á Hom- bjargi.“ Hann var samþykkur því, og hafði engar vöflur á, heldur talaði strax við Vitamálastofnun og við fáum starfið. Þar vomm við svo í þrjú ár. Ég var reyndar orðin ófrísk að sjöunda bam- inu, átti í vændum sjöttu fæðinguna. En maður lét það nú ekkert standa í vegin- um, hélt bara sínu striki og við fómm norður 24. mai um vorið með allt okkar hafurtask. Ég fór svo suður til Reykja- víkur að eiga bamið, eitthvað þrem vik- ur áður en fæðingin var áætluð. Annars átti ég öll mín böm heima hjá mér nema þennan eina dreng, hann er fæddur í Reykjavík, 22. september 1955 og var síðan alltaf kallaður vitavörðurinn. Það var ágætt að vera á Hombjargi, en maður var náttúrlega alltaf svolítið hræddur um krakkana fyrst, þessi litlu, því húsið er þama nánast á bjargbrún- inni svo það var ekki um annað að ræða en að binda þau við stólpa, svo þau fæm sér ekki að voða. En Halldór byrj- aði strax á því að girða allt í kring og fyrir bjargbrúnina. Það er tvítugt bjarg þama rétt fyrir framan og það var ekk- ert sem hindraði það að fólk hrataði ofan fyrir ef ekki var varlega farið. Fyr- ir neðan tóku við berir klettar og hafíð. En eftir fyrsta árið þurfti svo ekki að binda þau frekar, því þá höfðu þau lært að þekkja hættuna. Þama var alltaf nóg að gera, í fyrsta lagi við heimilishaldið og bömin, og svo vomm við með skepnur, sem hirða þurfti um og vinna úr afurðum. Við fengum vistir einungis á vorin og þær þurftu að endast allt árið. Síðar urðu ferðir reyndar tíðari til vitavarða er þama dvöldu. Vitinn á Dalatanga Svo þegar við höfðum verið þama í þrjú ár, þá var okkur boðin vitavarðar- Vitarnir á Dalatanga. Ljósm.: Guðmundur Sœmundsson. Hornbjargsviti. Ljósm. úr safni Guómundar Sœmundssonar. staða á Dalatanga. Við ákváðum að þiggja þá stöðu þvi hún var betur laun- uð. Þar vom fleiri vitar. í fyrsta lagi var þar náttúrlega fúll veðurþjónusta eins og á Hombjargi, en svo var þar hljóð- og radíóviti, auk ljósvitans. Hljóðvit- amir em aðeins tveir á landinu, þ.e. á Sauðanesi og Dalatanga. Þeir eru notað- ir þegar þoka er, og þá látnir þeyta lúð- ur. Ég man eftir að eina vikuna á Dala- tanga var afar skrautlegt veður. Það var ýmist þoka, slydda eða snjókoma, svo að í heila viku þurftum við að keyra hljóðvitann. Þetta var knúið af s.k. Elvi- vélum, sem kveikt var á með sígarett- um, eins og það var kaliað. Það var sett í saltpétur, nokkurs konar þerripappír, og síðan snúið upp með lofti. Það var svo merkilegt að þó þetta væri keyrt af og til allan sólarhringinn í heila viku, þá truflaði þetta mann ekki vemlega. Mað- ur einhvern veginn hætti að heyra það. Aftur á móti ef það hætti einhverra hluta vegna, þá hrökk maður upp. Sama var þegar við vom á Hombjargsvita, maður heyrði eða fann strax ef eitthvert feilpúst var í gangi í vélunum. Þetta er svona svipað því þegar þú býrð við mikla umferðargötu hér í Reykjavík, þú heyrir í umferðinni að byrja með en svo hættir þú að taka eftir henni. Eldri strákamir okkur fóm í Alþýðu- skólann á Eiðum í S-Múlasýslu, og vom þar á heimavist. Á Dalatanga vomm við svo alls í 9 ár, samfleytt. 1 vitavarðarstarfínu þarf að vera á vakt allan sólarhringinn. Það máttu ekki vera meira en 2 tímar og 40 mínútur á milli þess sem veður var tek- ið. Við gerðum þetta til skiptis en ég hafði þó yfirleitt næturveðrið og oft dagveðrið líka. Halldór tók reyndar alltaf miðnæturveðrið. Hann var nefni- lega þannig að hann átti erfítt með að sofna strax aftur eftir að hann hafði vaknað, og var kannski rétt að sofna þegar tími var kominn til að taka veðrið aftur. Ég átti aftur á móti mjög auðvelt með að sofna strax og ég kom inn. Ég er eins og sjóari, að þessu leytinu. Ég fór bara yfirleitt í galla utan yfir náttföt- in, síðan út og tók veðrið. Einu sinni kom hafís alveg upp að landi á þeim tíma sem við vomm þama, og reyndar fór hann mun lengra suður með land- inu. Mér leið vel á báðum þessum stöð- um, Hornbjargi og Dalatanga, og ekki gat ég fundið að það væri neitt illviðra- samara á Hornbjargi. Það var svolítið öðmvísi fyrir austan, þannig að það var oft meiri þokuslæðingur þar. Sonur minn, Ragnar, var svo síðar vitavörður á Hombjargi í þrjú ár á ámnum 1984- 87, að mig minnir. Nú er búið að leggja Hombjargsvita af, en Dalatangaviti er enn starfræktur. Ég hélt því alltaf ffam að vitavarðar- starfíð væri minnst þriggja manna vinna, vegna hinnar ströngu viðvem- skyldu. Þú þarft alltaf að vera vakandi fyrir veðrinu og taka eftir veðurbreyt- ingum svo hægt sé að senda rétta veð- urlýsingu. Það gat nú verið misjafnt hjá vitavörðum, hversu nákvæmlega réttar veðurlýsingamar vom. Veðurskeytin voru alltaf send um tal- stöð. Á Hornbjargsvita var kallað til 452 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.