Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Page 15

Heima er bezt - 01.10.2002, Page 15
Valdimar Ólafsson og systkinin á Kirkjubóli í Bjarnardal, Guðmundur Ingi, Jóhanna og Halldór. inn. Það fluttu sárafáir Vestfirðingar til Kanada um aldamótin 18/1900 þegar fjöldinn frá heiðarbýlunum og afdölunum flýði landið vegna matar- skorts og eymdar. Heima í Önundarfirði reru bændur og oft ungir synir þeirra á vorin frá Kálfeyri, sem var skammt utan við Flateyri og höfust þar við í frum- stæðum og oft skjóllitlum verbúðum. Sumarið 1992 rölti ég þangað frá Flateyri með Ingu systur minni og fleira fólki, ásamt leiðsögumanni til að skoða rústirnar. Þá reikaði hugur- inn til þessara fornu vinnubragða og erfiðleikanna við að sækja sér björg í bú til úthafsins í litlum árabátum, allt fram á þriðja áratug tuttugustu aldar. Osinn Já og svo var það Ósinn, hann var dásamleg matarkista og stórkostleg guðsgjöf, þangað komu rauðmaginn og grásleppan á vorin. Sameiginlega voru þau kölluð hrognkelsi. Svo hagar til að Holtsoddinn, kenndur við prestssetrið Holt þar sem Brynjólfur Sveinsson biskup fæddist, lokar næstum firðinum, og innan við hann er Ósinn. Bæirnir Breiðadalur, Veðrará, Holt, Tannanes og Mosvellir áttu land að Ósnum, en allir bændur sveitarinnar og margir Flateyringar veiddu þarna, þetta var almenningur. Þarna var mikill munur flóðs og ljöru og grunnt um fjöruna. Þegar logn var og spegilsléttur sjór, mátti sjá hrognkelsin fela sig í þanginu, þó nokkuð samlit væru. Þarna var ekki veitt í net eins og víðast á landinu heldur húkkað með langri stöng með 5 járnkrókum á öðrum endanum Veiðimaðurinn reri einn á árabáti, hafði pall, sem hann stóð á í stafni, þannig að borðstokkurinn var í hné- hæð. Svo ýtti hann sér áfram með þeim enda stangarinnar sem ekki hafði krókana og skyggndist niður í þangið. Yrði hann var hafði hann endaskipti á stönginni, stakk króka- endanum útfyrir veiðina og dró síðan snöggt að sér. Stundum náði hann tveimur í einu og lét þá detta aftan við sig milli þóftanna í bátnum. Góðir veiðimenn gátu stundum fyllt bátinn á ijörunni en besti veiði- tíminn hófst eldsnemma á morgnana, þegar ratljóst var orðið. Afi og pabbi fengu oft 5-600 á fjörunni og stund- um yfir 1000. Það var svo starf barna og unglinga á bænum, foreldra okkar á sinni tíð og síðar okkar Ingu systur minnar, að mæta með kerruhest, stundum tvo, í ljörunni þegar aðfall- ið kom og þar með báturinn að landi og flytja veiðina heim. Rauðmaginn og siglingar Rauðmaginn var svo soðinn eða steiktur nýr eða léttsaltaður, síðan hengdur upp og þurrkaður og loks reyktur. Stundum var hann líka steiktur í hveljunni við móglóð í eldavélinni og þannig fannst mér hann raunar allra bestur. Ekki man ég samt eftir að aðrir en Guðrún amma matreiddu hann svona. Hertur steinbítur og reyktur rauðmagi sem viðbit, var vinsæll og algengur réttur. Grásleppan var nátturlega borðuð líka, bæði ný og söltuð, en mér fannst rauðmaginn miklu betri matur. Ef vindgola var dró Guðmundur afi ætíð segl að húni og sigldi bátn- um sínum bæði að og af miðum og eins í kaupstaðarferðum til Flateyrar. Bjarni Jónsson hreppstjóri sem bjó í Tröð í Álftafirði við ísaljarðardjúp og nefndur var siglari, kenndi afa að sigla þegar hann var á fermingaraldri og í heimsóknum hjá honum í Tröð. Bjarni þessi var í vinfengi við hjónin Gils og Guðmundínu á Mosvöllum og þar eð þau voru þá barnlaus, gaf hann þeim nýfæddan dreng þeirra hjóna sem hét Guðmundur. Sá drengur dó mjög ungur en þá gáfu þau hjón bara sömu Mosvallahjónum næsta dreng sem þeim fæddist og það var Guðmundur afi minn sem var borinn fáeinna vikna gamall frá Álftaljarðarbotni yfir i Korpudal í Önundarfirði og að Mosvöllum. Þetta var nú útúrdúr en ég man bara ekki eftir að aðrir sigldu skekt- um sínum en hann á uppvaxtarárum mínum. Þó svo hafi vafalaust verið. Seint gleymist sú ljúfa tilfinning að sigla um ijörðinn með gamla mann- inum, hann þá gjarnan við stýrið og segjandi fyrir um skipan seglanna. „Híf og heis Halldóra mín“ var haft eftir honum. Nú er búið að leggja þjóðveginn yfir Ósinn miðjan, með einni langri brú, frá Breiðadal og jarðgöngunum í stefnu á Holt. Nú er öldin önnur, ekkert lífsspursmál lengur að veiða hrognkelsin enda flestir hættir því, en þessi veiðiaðferð Önfirðinganna er merkileg og má ekki gleymast. Barnaskólinn Vert er að minnast barnaskólaár- anna. Ætli unga fólkinu í dag finnist fyrirkomulagið ekki fornfálegt. Við fórum í vorpróf í lestri, skrift og reikningi, sem við höfðum lært heima, átta og aftur níu ára gömul. Heima er bezt 431

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.