Heima er bezt


Heima er bezt - 01.10.2002, Qupperneq 24

Heima er bezt - 01.10.2002, Qupperneq 24
í lok síðustu aldar var reist veglegt veitingahús á grunni gamla Skíðaskálans, sem brann nokkrum árum áður. inum. Svo skemmtilega vildi til að verðandi eiginkona Sigurðar, Val- gerður Þórðardóttir, hafði verið vinnukona á Hólnum í tíð fyrri eig- anda, en gerðist síðar ráðskona Sig- urðar með þeim afleiðingum að þau giftust nokkru síðar. I 30 ára veru þeirra á Kolviðarhóli var mikið um framkvæmdir á staðnum, meðal ann- ars í búskaparháttum og þar voru lík- lega teknar í notkun fyrstu vinnuvél- ar til jarðræktar hér á landi. Sumarið 1930 átti Sigurður yfir fimmtíu hesta, sem hann leigði fyrir ferðamenn til útsýnisferða. Annar búsmali var 6-7 kýr og 20-30 kindur til heimilisnota. Það var árið 1929 sem Sigurður lét byggja mikið og vandað steinhús á Kolviðarhóli. Eins og sjá má af myndum af húsinu, setti það mikinn svip á umhverfið. Það var búið 20 herbergjum, auk tveggja veitinga- stofa. Til gamans má geta þess að þar voru yfir 30 hurðir á járnum og 39 gluggar. í því var miðstöðvarhitun frá kolakatli í kjallara, raflýsing frá dísilrafstöð og sjálfrennandi vatni sem dælt var úr brunni neðan við Hólinn. Húsið mun hafa kostað um 70 þús- und krónur, sem var mikil upphæð, enda bar það af öðrum veitingahús- um landsins á þessum tíma. Á fyrrihluta 20. aldarinnar voru ferðalög manna að hluta til með lík- um hætti yfir Hellisheiði og verið hafði í aldanna rás. Að vísu komu hestvagnar til sögunnar að sumarlagi tvo fyrstu áratugi 20. aldarinnar og bílferðir hófust upp úr því, eftir því sem vegirnir bötnuðu. En þegar vetur lagðist að og allt varð ófært, var ekki um önnur flutningstæki að ræða en klyfjahestinn. Og þegar honum varð ekki við komið þá brutust menn fót- gangandi og oft með byrði á baki. Síðar komu hestasleðamir fram á sjónarsviðið, hin mesta samgöngu- bót. Við þessar aðstæður bjó Sigurður á Hólnum og reyndar margir fyrirrenn- arar hans og var Kolviðarhóll því réttnefnd björgunarstöð við Heilis- heiðarveginn, alfaraleið í óbyggðum, ef svo má að orði komast. Árið 1907 var landssíminn lagður austur yfir Hellisheiði og við það komst Kolviðarhóll í símasamband við nágrannasveitirnar, til mikilla bóta fyrir ferðamenn. Eftir það var mun auðveldara fyrir Sigurð að fylgjast með ferðum fólks að vetrar- lagi, hvort heldur var á Hellisheiði eða í Svínahrauni, en á þeim slóðum eru illviðri tíð. Mun Sigurður hafa bjargað mörgum manninum úr bráð- um lífsháska, þá þrjá áratugi sem hann var gestgjafi á Kolviðarhóli. Þá var einnig föst venja að húsinu var aldrei læst svo að ferðamenn, er bar að garði um nætur, gætu tafarlaust komist þar í húsaskjól og notið hressingar. Þannig gekk starfið fyrir sig á Hólnum meðan þeirra Sigurðar og Valgerðar naut við. Það fór ekki hjá því að í þá þrjá aldarljórðunga sem greiðasala fór fram á Kolviðarhóli var ferðamanna- straumur þangað jafnan mikill. Það er talið að hann hafi verið mestur frá því laust fyrir aldamótin 1900 og fram yfir 1920. Meðal þekktra útlendinga, 440 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.