Heima er bezt - 01.04.2007, Síða 7
Sigriður Anna Þorgrímsdóttir og Þorsteinn Steingrímsson, eiginmaður hennar, með börnum sínum og barnabörnum
(fremst).
Auðvitað gæti ég nefnt nokkra skólafélaga mína þama
þennan vetur, en held ég sleppi því. Séra Jón Guðnason kenndi
ensku, og var ég þar einn nemenda. Enska var móðurmál
mitt ífá Ameríku.
Leikfimi kenndi Ellert Finnbogason, og þar var ég vel
liðtækur, eins og fram hefur komið. Söng kenndi Askell
Jónsson, frá Mýri í Bárðardal.
Hvað er að segja um reykingar nemenda í skólanum?
- Bannað var að reykja innan dyra, en þá reyktu menn
bara út um gluggana blésu reyknum þar út. Ég reykti talsvert
þarna, eins og margir strákarnir. Þá voru konur ekki enn
teknar að reykja að neinu marki.
iðnnám mitt og starf því tengt
Iðnnám stundaðir þú í iðngrein, sem var nokkur nýjung.
Segðu okkur frá því.
- Ég hóf iðnnám 18 ára í offsetprentun. Útskrifaðist tveimur
árum eftir að iðngreinin var samþykkt. Guðmundur Jóhannsson
og Einar faðir minn stofnuðu Lithoprent og voru frumkvöðlar
í þessu. Starfsemin hófst að Grjótagötu 14, en fluttist
tveimur árum síðar að Nönnugötu 16, Njarðaragötumegin.
Samstarfsmenn mínir voru: Einar Magnússon og Guðmundur
Jóhannsson. Pabbi og Guðmundur kynntust í Ameríku og
unnu síðan saman hér. Þeir stofnuðu þetta fyrirtæki, en lynti
Skafti Þorgrímsson, ungur.
Heima er bezt 199