Heima er bezt - 01.04.2007, Blaðsíða 14
Ljósaperur með glóðarþrœði hafa varpað Ijósi á umhverfi
manna í meira en hundrað ár. Tími glóðarlampans er nú
brátt á enda, enda hafa fáar uppfinningar enst betur. Nú
fást ljósgjafar sem skrúfa má inn í venjuleg perustœði og
gefa frá sér jafn þœgilega birtu og glóðarperan en nýta
orkuna mun betur og endast auk þess lengur.
V
Örnólfur
Thorlacius
r
Arið 1938 setti bandaríska
fyrirtækið General Electric
á markað flúrljósin, langar
pípur sem brátt urðu algengur ljósgjafi
á heimilum og vinnustöðum. Inni í
flúrpípu er þunnt loft, þannig samsett
að það gefur frá sér útþólubláa geisla
þegar rafstraumur fer í gegnum pípuna.
Húð innan á glerhjúp pípunnar tekur til
sín geislana og breytir þeim í sýnilegt
ljós við flúrun („flúóresens"). Sem fyrr
segir nýta flúrljósin orku til muna betur
en glóðarperur og endast líka lengur.
Samanlagt gerir þetta mun meir en
að vega á móti dýrari búnaði. Staða
glóðarperunnar hefur samt til skamms
tíma verið tryggð í venjulegum lömpum
á heimilum. Venjulegar flúrpípur eru
ómeðfærilegar og langar: Algengar
stærðir eru 60, 120 og 150 cm. Framan
af var flúrljósið kalt og „ópersónulegt“,
en nú fást flúrpípur með ýmsum litblæ.
Töfm og flöktið á ljósinu eftir að kveikt
er á því er líka fráhrindandi, og birta
úr venjulegum flúrpípum verður ekki
deyfð með stillanlegu viðnámi, svo
nokkuð sé nefnt.
úr sögu glóðarlampans
Þótt flestir tengi glóðarlampann nafni
bandaríska hugvitsmannsins Thomas
Alva Edison, var hann ekki höfundur
þessarar nýjungar en átti vissulega
öðrum mönnum meiri þátt í að gera
hana almenningseign. A 19. öld, einkum
síðari hluta hennar, glímdu menn í
mörgum löndum við að leiða rafstraum
um viðnámsþráð og fá hann til að glóa.
206 Heima er bezt
Yfirleitt var þráðurinn úr kolefni - oft
kolaður strengur úr baðmull eða öðrum
jurtatreijum - inni í glerhylki sem lofti
hafði verið dælt úr til að koma í veg fyrir
að þráðurinn brynni í súrefni loftsins.
Arið 1874 fengu tveir Kanadamenn,
Henry Woodward og Matthew Evans,
einkaleyfi á glóðarperu, þar sem
kolefnisþráðurinn var í glerhylki með
óvirku niturlofti. Þetta kom í veg fyrir
að þráðurinn brynni og var hagkvæmara
en lofttæmingin. Komast mátti af
með veigaminni og þynnri glerhylki
auk þess sem tækni þessa tíma setti
loftþynningunni skorður.
Enskur eðlisfræðingur, Sir Joseph
Wilson Swan, kom trúlega fyrstur
manna fram með glóðarperu sem entist
þolanlega. Hann endurbætti aðferð til
lofttæmingar, skráði árið 1878 enskt
einkaleyfí á glóðarperu með kolþræði
úr bómull og stofnaði 1881 fyrirtæki
sem framleiddi ljósaperur, The Swan
Electric Light Contpany.
Um sama leyti vann Edison að
tilraunum með glóðarlampa. Þeir
Woodward og Evans höfðu ekki
fjárhagslegt bolmagn til að hrinda
hugmyndum sínum í framkvæmd og
Edison keypti af þeim einkaréttinn á
5000 Bandaríkjadali. Hann skráði svo í
janúar 1880 einkaleyfi á eigin ljósaperu
með kolþræði úr bambustrefjum, sem
entist í meira en 1200 stundir. Pera
Edisons ruddi fljótlega gasljósum út
af markaði sem lýsing á heimilum og
strætum.
Ljósapera Edisons var trúlega
traustari og betur hönnuð en aðrar
gerðir samtímans, en meginástæðan fyrir
velgengninni mun vera að hann kom
ekki aðeins fram með pemna heldur kerfi
rafstöðva og leiddi frá þeim rafmagn
inn á heimili og ljósastaura í borgum,
í samkeppni við gaslagnir og gasljós
sem fyrir voru.
Brátt hófust málaferli milli Edisons
og annarra framleiðenda urn einkaleyfi
á rafljósaperu. Vestanhafs lauk deilunum
með sigri Edisons 1889, en Swan
varð ofan á í réttarsölum í Bretlandi,
enda kominn með þarlent einkaleyfl.
Edison varð að kaupa sér leið inn á
breska markaðinn með því að sameina
fyrirtæki sitt og Swans (undir heitinu
Ediswan).
Heima í Bandaríkjunum sameinaði
Edison árið 1890 verksmiðjur sínar í
The Edison General Electric Company
og tveimur árið síðar runnu fyrirtæki
keppinauta hans inn í samsteypuna og
nafnið var stytt í General Electric.
í upphafi 20. aldar hóf General Electric
tilraunir með glóðarþráð úr hitaþolnum
málmi, þungsteini eða volfram. Fyrst
voru þessir þræðir afar dýrir, en 1910
T. A. EliISON.
Electrio-Laaip,
No. 223,898 Palented ian. 27. 1880.
íf
Glóðarperan sem Edison tók
einkaleyfi á 27. janúar 1880. (US
Patent 0223896.)
kom fram ný framleiðsluaðferð, og
volframþræðir, stundum blandaðir
öðrum málmum (svo sem blanda
osmíns og volframs, ,,osram“), útrýmdu
kolþráðunum í ljósaperunum.
Af sérhæfðum gerðum af glóðarperum
skal hér aðeins getið halógenljósanna,
sem meðal annars hafa rutt sér til rúms
í ökuljósum bifreiða. I halógenljósum
er volframglóðarþráður umluktur
halógengasi - oft joði eða brómi - inni í
lítilli peru. í þeim er hærri hiti en svo að
venjulegt gler standist hann, svo perurnar
eru úr sérhertu efni, oft kvarsi.
Halógenljósin ganga fyrir lágspenntum
rafstraumi (til dæmis 12 voltum frá
venjulegum bílgeymi). Þau gefa frá sér
meiri birtu og nýta raforkuna nokkru
betur en venjulegar glóðarperur og
endast auk þess um tvöfalt lengur.
Til heimilisnota koma þau samt ekki
í stað venjulegra glóðarljósa nema helst
í öflugum kastljósum. Vegna hitans er
nokkur eldhætta af halógenljósum, auk
þess sem þau gefa frá sér talsvert af
skaðlegum útíjólubláum geislum.
Flúrperurnar
Sem fyrr segir eru nú fáanlegar litlar
flúrperur, á stærð við venjulegar
glóðarperur og ganga margar inn í
sams konar perustykki. Ljósgjafmn
er lítil flúrpípa, oft beygð í þröngt U-
form eða vafin í þéttan spíral. Fyrstu
perumar af þessari gerð gáfu margar frá
sér hvimleitt suð, ljósið var flöktandi,
einkum þegar á ævi perunnar leið, og
liturinn á ljósinu var óþægilegur. Nú
eru þessir barnasjúkdómar að baki og
flúrperumar standast fyllilega samanburð
við venjulegar glóðarpemr. En þær eru
til muna spameytnari - nýta orkuna
betur. Afl raftækis - vinnan sem tækið
skilar á tilteknum tíma - er mælt í
vöttum, þar sem eitt vatt (W) er það
afl sem skilar vinnunni 1 júl á hverri
sekúndu. Miðlungssterk ljósapera er 60
W, en megnið af þessu afli kemur ekki
ffam sem ljós, en birtist sem varmi, er
hitar umhverfið. Álíka björt flúrpera
er 11 til 15 W, svo aflið - og þar með
orkunotkunin - er aðeins um fimmti
hluti af afli glóðarperunnar.
Flúrperur eru dýrari en glóðarperur,
en þegar þess er gætt að flúrpera endist
um tífalt lengur en glóðarpera er verðið
hagstæðara: Sextíu vatta glóðarpera
kostar (í Heimilistækjum í Reykjavík)
111 krónur, en jafnbjartar flúrperur um
700 kr. (11 W pera selst á 695 krónur,
14 W á 730).
Víða í heimi er verulegur hluti raforku
fenginn við brennslu á jarðefnum -
jarðgasi, olíu og kolum. Með því að
fleygja öllum glóðarperum og taka í
staðinn upp flúrperur mætti í þessum
löndum ekki aðeins draga úr orkuþörfinni,
heldur líka úr losun koltvíoxíðs og þar
með úr gróðurhúsaáhrifum. Samkvæmt
Philips-fyrirtækinu, sem framleiðir
bæði glóðarperur og flúrperur, eru í
Bandaríkjunum um Qórir milljarðar af
perustykkjum fyrir rafljós. Ef komar
væru flúrperur í öll þessi ljósastæði
myndi árlegur rafmagnsreikningur
Heima er bezt 207