Heima er bezt - 01.09.2007, Qupperneq 7
A leiö í vinnuna á Hótel Borg, um 1969.
peningum í skemmtanir. Þegar ég var 8 ára gamall útbjó
ég mér háf, sem ég fór með niður að höfn og hjólbörur,
og fyllti þær með kola og ufsa. Þennan fisk seldi ég
svo, og þannig gat ég átt fyrir bíómiðum.
Reyndar lenti ég líka í slysi 13 ára, en þá varð ég
aftur fyrir bíl, og fótbrotnaði.
Slysið, sem ég varð fyrir þegar ég var 10 ára, varð
náttúrlega til þess að ég dróst aftur úr í skóla og varð
á eftir jafnöldrum mínum sem nam einum bekk. Til að
vinna það upp fór ég seinna vestur á Snæfellsnes til séra
Þorgríms á Staðastað, sem var með heimavistarskóla
og hjá honum tók ég svo 3. og 4. bekk gagnfræðaprófs á
einum vetri.
Kynlegir kvistir
Eftir gagnfræðaskólann fór ég að vinna ýmsa tilfallandi
vinnu, m.a. hjá Keflavíkurverktökum við rafvirkjun og var
hugmyndin sú að fara að læra til þess. Vann ég þá m.a. í
möstrunum við Rockwille. Þau eru eitthvað um 140 fet á
hæð og var bara sett stroffa undir rassinn á manni og maður
hífður upp til þess að tengja.
Síðan ætlaði ég á samning hjá fyrirtæki í Keflavík, sem
hét Geisli. Var ég byrjaður þar en þá kom eigandinn einn
daginn og sagði mér upp, því hann þurfti að koma frænda
sínum að.
Reiddist ég þessu að vonum, og ákvað að fara út úr bænum
í leit minni að næsta starfi. Fór ég þá til Reykjavíkur og
komst að á Hótel Borg, þar sem ég hóf að læra til þjóns.
Eigandi hótelsins þá var Pétur Daníelsson, sem var lærður
þjónn. Mér fannst hann fara hálf illa með Borgina, því alltaf
þegar lagfæra átti eitthvað í húsinu þá breytti hann því alltaf
I Glaumbœ, 1969, ásamt starfsfólki.
til nútíma útlits, svo gamli sjarminn, þessi danski staóall,
fór svo mikið af staðnum við það.
Hótel Borg var byggð, eins og kunnugt er af Jóhannesi
Jósefssyni, sem alltaf var kenndur við hótelið. Hann átti tvær
dætur, sem hétu Saga og Hekla. Konan hans hét Karólína
og bjó alltaf uppi í tumherbergi hótelsins.
Jóhannes var skapmikill maður. Til er saga af því að eitt
sinn þegar þau hjónin fóru til Bandaríkjanna og Hótel Saga
átti að sjá um staðinn á meðan. Gyllti salurinn sem svo var
kallaður, var allur málaður að innan eins og í skógi væri
og voru þar máluð dádýr á beit ásamt fleiri dýrum sem því
hæfðu. Rekstraraðilinn lét kalka yfir þetta listaverk allt á
meðan Jóhannes var úti, og má nærri geta hvort hann fékk
ekki áfall þegar hann kom tilbaka og sá hvað búið var að
gera.
Til var annað hótel í Reykjavík, sem hét Hekla. Eitt sinn
var bóndi í gistingu hjá Jóhannesi á Borg. Bóndanum leiddist
svo hann gekk niður í gestamóttöku og bað Jóhannes að
lána sér sögu. Jóhannes brást hinn versti við þessari bón, og
botnaði bóndinn ekkert í framkomu hótelstjórans, að hann
skyldi ekki vilja lána sér bók. En ástæðan var auðvitað sú að
Heima er bezt439