Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2007, Page 11

Heima er bezt - 01.09.2007, Page 11
lögregluna í Bandaríkjunum og senda heim, en áttaði mig ekki á því þá. I millitíðinni gerist það svo að breskt fyrirtæki, sem heitir Bass, kaupir 1500 hótel af Holiday Inn keðjunni í Bandaríkjunum. Við þá breytingu versnuðu svo kjörin hjá starfsfólkinu, að mér fannst það ekki svara kostnaði að vinna þar áfram. Svo ég réði mig til Walt Disney, sem þama er með þrjá stóra skemmtigarða. Þar fékk ég starf sem bakari. Þannig háttar til að í miðjum garðinum, þar sem ég var, var stórt vatn, og í kringum það 11 veitingahús, sem byggð voru upp sem fulltrúar ákveðinna landa. Húsið sem ég vann í var rekið í nafni og með stuðningi Noregs. Þarna var allt með norskum hætti og starfsfólkið í norskum búningum. Noregur var eitt Norðurlandanna með hús þarna, Dönum hafði verið boðið að setja upp hús en þeir höfnuðu því. Var sagt að þeir hefðu séð eftir því síðar, því þetta er gullnáma ef svo má segja, fyrir löndin, ekki hvað síst fyrir kynninguna sem þau fá í gegnum þetta. Maður þurfti að fara á 3ja daga námskeið til þess að komast inn í kerfið hjá Disney. Það var svo margt sem athuga þurfti, til dæmis varð maður að hafa vissa framkomu, vera með sérstaka klippingu, og bannað var að hafa húðflúr sem sást. Þú þurftir að vera í svörtum sokkum, og stelpurnar að vera með síða eyrnalokka, o.fl., o.fl. Þetta er í rauninni eitt risa leiksvið þarna, sem sett er upp fyrir gestina. Þama vinnur gífurlegur tjöldi fólks, en gestir verða aldrei varir við að það sé að fara á milli veitingastaðanna. Þetta er náttúrlega allt meira og minna tölvustýrt og mikið af framkvæmdum á staðnum fer fram neðanjarðar, og þar er gríðarstór matstaður fyrir starfsfólk staðanna. Og þarna niðri er notast við rafmagnsbíla í öllum flutningum. Þetta sér almenningur aldrei þegar hann heimsækir garðana. Og mjög ströng gæsla var í kringum þetta allt saman. Og það vill nú verða stundum svo að Bandaríkjamenn þekkja ekki mikið til fyrir utan sína heimabyggð. Einu sinni kom til mín kona og spurði hvort ég væri norskur. Já, já, ég sagðist vera það, nennti ekkert að vera að leiðrétta þann misskilning hjá henni. „Jæja, sagði hún, „geturðu sagt mér hvort þeir eiga í sömu vandamálum með víkingana þarna í Noregi og við eigum með svertingjana hér í Bandaríkjunum.“ Já, já, svaraði ég, við eigum í stöðugum vandræðum með þá. Þeir eru alveg snarvitlausir þessir Ijárans víkingar.“ Ég nennti ekkert aó vera að útskýra eða svara neinu um þessa hugmynd hennar. Svo kom líka til mín maður og spurði hvað væri lengi verið að keyra til íslands. Ég sagði honurn að það tæki tólf tíma, það er að segja sko, ef það væri búið að hefla veginn. Einu sinni fór starfsfólkið út að skemmta sér, og þar á meðal norsku starfstúlkurnar. Þá sannfærðum við Bandaríkjamennina um það að samgöngutæki norsku skólabamanna væru ísbirnir. Bandaríkjamenn virðast margir hverjir sjá svo lítið út fyrir sín landamæri, að þeir vita nánast ekkert um önnur lönd eða þjóðir. Ég hef stundum hugsað til þess að ég hefði eiginlega frekar átt að fara til Kaliforníu heldur en Flórída þegar ég Norsk víkingakirkja í Disney garðinum, við hliðina á norska veitingastaðnum. fór fyrst til starfa í Bandaríkjunum. Það er allt öðmvísi þjóðfélagskerfi þar en á Flórída, auk þess sem Flórída er láglaunafylki, þangað flyst mikið af ellilífeyrisþegum, vegna lægri skatta t.d. Og það er einhvern veginn erfítt að komast inn í lífsháttakerfið þarna, í peningamálin og þess háttar. Þegar ég vann hjá Disney þá hafði ég sem aukastarf vinnu hjá veisluþjónustu, sem þarna var, og hjá henni vann ég um helgar og þegar ég átti frí, en hjá Disney var unnið í vaktavinnu. Við fórum svona hingað og þangað á vegum þessarar veisluþjónustu, og stærsta veislan sem ég tók þátt í á þeirra vegum, var 5000 manna veisla sem haldin var á íþróttaleikvanginum í Orlando. í henni þurfti til 200 kokka og 150 þjóna. Eitt sinn vorum við fengin til þess að sjá um veislu hjá ríkum efnafræðingi, sem var að halda teiti í húsinu sínu, en hann bjó í húsi sem kostaði 11 milljónir dollara. Var sjónvarpað frá þessari veislu, svo þar vorum við hálfvegis komin með hlutverk í sjónvarpsþætti. Húsið var á tveimur hæðum, gert hafði verið stöðuvatn við það, og þar var sérstakur golfvöllur. Þrjú eldhús voru í því, eitt veislueldhús, íjölskyldueldhús og svo eitt barnaeldhús með glymskratta í gamla stílnum, og var það innréttað í stíl rokktímabilsins. Við vorum leidd í gegnum húsið til skoðunar, þegar við komum. Það var hvítur marmari í öllu og á öllu. A einum stað komum við að þar sem 6 ára stúlka hjónanna sat og var að spila á píanó, og við hlið hennar stóð bróðir hennar og studdi annarri hendi á öxl hennar. Þetta var einhver uppstilling í anda ríka fólksins Heima er bezt 443

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.