Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2007, Page 12

Heima er bezt - 01.09.2007, Page 12
og í nokkurs konar aðalsstíl. Þetta átti greinilega að vera einhver þáttur í kynningu okkar á húsinu. Þama var heil hljómsveit sem lék í veislunni. Ég var, meðal annarra, uppi á annarri hæð að elda, og á okkur vom myndavélarnar, með beina útsendingu frá öllu sem fram fór. Svo voru ríku konumar að vappa eitthvað í kringum okkur og horfa á vinnubrögðin og stundum kvað við: „Nú, já, svona gerið þið þetta!“ Utsendingin mun hafa verið vegna þess að húsið hafði vakið athygli fyrir hvað það var dýrt, og var verið að halda nokkurs konar innflutningsveislu. í annað skipti var ég sendur til þess að vinna í 2500 manna veislu sem haldin var í Sea World. Budweiser, bjórframleiðandinn, sem á Sea World vatnadýragarðinn, bauð öllum seljendum sínum í Norður-Ameríku og Kanada þar til veislu, og bjuggu allir gestirnir á 5 stjörnu Marriot hóteli, og allt frítt, í boði Budweiser. Það var mikið lagt í þessa veislu og við vomm að afgreiða fólkið allt kvöldið. Ég var settur í það að skera kalkúninn á diskana. Hann hafði verið reyktur út í skógi þama hjá og allt sér unnið. Mér er minnisstætt hvað það gat verið erfitt að skera sinina við lærin á kalkúnunum, það er allt öðmvísi en á kjúklingunum. Þama var allt á stómm steinborðum út um allt, og kælt niður með klaka listaverkum, og sjávarréttaborð í stórum stíl, eins kannski hæfði umhverfmu. A meðan ég var að starfa þarna skall á fellibylurinn Hugo, sem frægur varð. Sem betur fór hitti hann ekki beint á svæðið þar sem ég var, en hann svona sneiddi utan í það og gekk mikið á. Pálmatrén svignuðu nánast niður að jörð, en mesta tjónið varð í kringum Fort Lauderdale og þar með ströndinni. Það em miklir kraftar í gangi í þessum fellibyljum og trúir vart nema sá sem í því lendir. Hættan var þó ekki talin meiri en svo á okkar svæði að við bara unnum þennan dag eins og ekkert væri. Við urðum bara að gæta þess að halda okkur inni við. Römm er sú taug... Þegar svo kemur fram á árið 1993, þá tek ég þá ákvörðun að fara heim til íslands. Bæði var að ekki var mikið upp úr sér að hafa þama og að mér féll aldrei almennilega við siðmenninguna á staðnum. Ég saknaði líka árstíðanna heima, þama er ansi mikill hiti að jafnaði, og nánast alltaf svipað veðurfar. Svo heitt var á morgnana þegar maður var að fara til vinnu að ekki var hægt að setjast inn í bílinn og taka á stýrinu t.d. nema að kæla þetta allt saman niður fyrst. Og loftið er mjög rakamettað. Þegar ég svo kem heim þá ræð ég mig til starfa á veitingahúsinu Asakaffi á Grundarfirði, sem rekstrarstjóra hjá Ásgeiri Classen, eiganda þess. Mér er minnisstætt tilvik frá veru minni þar, sem var þannig að eitt sinn kom full rúta óforvarandis frá Stykkishólmi, með 45 Þjóðverja innan borðs. Ég var einn á vakt, aðstoðarstúlkurnar vom í fríi. Þjóðverjarnir koma og setjast allir inn, taka niður alla stóla, sem höfðu verið settir upp á borð vegna hreingerninga. Og allir panta þeir einn bolla kaffi og einn te. Og svo fara þeir bara allir að taka eigin mat upp úr pokum. Og kom þá í ljós að þeir höfðu stolið öllum matnum á morgunverðarhlaðborðinu á hótelinu í Stykkishólmi, látið aka sér á Ásakaffi í Grundarfirði og ætluðu að snæða hann þar. Ég var auðvitað ekki sáttur við þetta og rak þá alla út. Ég hafði einu sinni lent í svipuðu á Borginni. Það vom stór sykurkör á borðunum. Þar höfðu komið tvær þýskar konur og þegar þær fóm, þá tóku þær með sér sykurkarið og allan sykurinn sem í því var. Ég elti þær alla leið út á Austurvöll og sagói við þær, að þetta gengi ekki, þær mættu ekki taka með sér sykurkarið. „Hvað er þetta,“ sögðu þær, „við borguðum fyrir sykurinn." „Já, ég veit það,“ sagði ég. „Réttu mér sykurkarið, og settu út lófann.“ Konan gerði það og ég hvolfdi úr karinu í lófann á henni. „Gerðu svo vel,“ sagði ég, „þarna hafið þið það sem þið borguðuð fyrir.“ Annað dæmi um nýtnina hjá mörgum Þjóðverjum, vom einmitt aðrar þýskar konur, sem vom að fá sér af hlaðborði, og þær höfðu það þannig að bara önnur sótti á diskinn, og þegar hún kom úr fyrri ferðinni þá rétti hún hinni diskinn, en fór svo aftur og sótti fyrir sig. Var meiningin að hún væri bara að kaupa fyrir sig eina. Þær urðu ekki lítið æstar þegar ég rétti þeim reikning fyrir tvo, því það lá náttúrlega í augum uppi að þama vom tvær að nýta sér borðið, fýrir tvær þó svo bara önnur næði í réttina. Já, þetta er skrýtinn siður hjá sumum Þjóðverjum. Ég var ekki ýkja lengi í Ásakaffi en mér var boðið að koma og reka gistiheimili Ólafsvíkur og tók ég því boði. Þar hélt ég utan um ýmsar stórar veislur, einu sinni t.d. 140 manna brúðkaup, þar sem ég bakaði 5 hæða brúkaupstertu, eins og gjaman er. Svo var ég eitt sinn fenginn til að sjá um 450 manna ættarmót, þar sem saman kom svokölluð Steinsætt. Til þess var leigt samkomuhúsið Klif. Þar réði ég mér aðstoðarkokk. Þá kom í ljós að langamma mín, Ásgerður Vigfúsdóttir, og faðir hennar Vigfús, langa- langafi minn, sem átti 24 böm með tveimur konum, og aðstoðarkokkurinn var skyldur, voru af þessari ætt, Steinsættinni. Það kom því í ljós að ég og kokkurinn sem ég réði vorum frændur. Þama má því segja að hafi verið fulltrúar 3ja arma af þessari ætt. Eftir þetta, um 1994-5, réði ég mig enn til Keflavíkur, á veitingastað sem hét Þotan, og var í eigu karlakórs Keflavíkur. Þar gerðist ég yfirþjónn og var í eitt ár. Einnig sem yfirkokkur í afleysingum á Rockwille hjá hemum, en starfandi þjónn þar hafði lent í veikindum. Ekki gat þó orðið framhald á því, vegna þess að flugherinn, sem rak Rockwille, var farinn að skera niður starfsemi sína á staðnum. Ég hafði, þegar þama var komið sögu, gripið í það að selja ýmislegt svona stöku sinnum í Kolaportinu, sem flestir kannast við, og fór ég nú að snúa mér meira að því. Var ég þar fyrst með gjafavörur ýmsar en svo þróaðist þetta upp í það að verða nær alfarið sala á bókum. Meðfram þessu tók ég svo að mér rekstur á veitingahúsinu Ártúnum í Reykjavík. Þar má meðal annars segja að hljómsveitin 444 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.