Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2007, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.09.2007, Blaðsíða 16
Alekscmdr Litvinenko á banabeði - eitur sérf ræðinganna Örnólfur Thorlacius: A síðustu árum 19. aldar vann franskur eðlisfrœð- ingur, Henri Becquerel, að tilraunum með röntgen- geisla, sem þá voru nýuppgötvaðir. Hann pakkaði Ijósnœmum Ijósmyndaplötum í Ijósþéttan pappír og framkallaði á þær myndir af ógegnsœjum hlutum eftir lýsingu með röntgengeislum; meðal annars mynd af beinum í hendi konu sinnar ásamt giftingarhringnum. Ifýrstu tengdi Becquerel þessa geisla við fosfórun, þar sem efni, sem útsett eru fyrir Ijós, binda Ijós- orkuna og skila henni síðar í formi geisla af annarri bylgjulengd. Við tilraunir sínar notaði hann meðal annars úransölt, sem hann lét liggja í sólarljósi og greindi síðan fosfórljómun frá þeim. Einhverju sinni, árið 1896, var svo skýjað yfir París að hann varð að gera hlé á tilraunum sínum. Þá lagði hann inn- pakkaða Ijósmyndaplötu til geymslu hjá úrankristöll- um í skúffu. Þegar hann framkallaði plötuna síðar sá hann að hún var orðin svört af orku, sem gat ekki verið komið frá sólinni en hlaut að vera fengin úr úraninu sjálfu. 448 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.