Heima er bezt - 01.09.2007, Qupperneq 18
Fjarstýrði tunglkönnunarvagninn Lunokhod 1
Eiturverkun
Miðað við þunga („gramm fyrir gramm“)
er pólon-210 um fimm milljón sinnum
eitraðra en blásýra (HCN). Fátítt er samt
að efnið valdi manntjóni, enda fágætt,
auk þess sem geislar þess berast skammt
sem fyrr segir.
Eftir því sem næst verður komist
er Aleksandr Litvinenko, fyrrum
starfsmaður sovésku leyniþjónstunnar,
fyrsti maðurinn sem látist hefur af bráðri
póloneitrun, en honum var byrlað eitur
í Lundúnum í nóvember sl. Prófessor
Iréne Joliot-Curie, sem hélt uppi merki
foreldra sinna í geislavirknirannsóknum,
lést af blóðkrabba 1956, og er talið að
dánarorsökina megi rekja til þess að hylki
með póloni sprakk í vinnustofú hennar 10
árum fyrr. I rannsóknastofu Weiszmann-
stofnunarinnar í ísrael, þar sem unnið var
að smíði kjarnorkusprengju, greindist
pólonleki 1956, sem grunur leikur á að
hafi valdið dauða nokkurra starfsmanna
þar úr krabbameini á næstu árum, en
skýrsla um málið hefur ekki verið gerð
opinber.
Pólón er afar dýrt. Miðað við heims-
markaðsverð á almennum markaði er
það magn sem ætlað er að Litvinenko
hafi verið byrlað verðlagt á 20 milljón
sterlingspund (eða rúmlega tvo milljarða
ísl. króna), og samkvæmt því væri þetta
líklega dýrasta morð sem sögur fara af.
Ef grunsemdir um þátttöku háttsettra afla
í leyniþjónustu eða jafnvel ríkisstjóm
Rússlands eru réttar, má samt ætla
að efnið hafí fengist á hagstæóara
heildsöluverði.
I tóbaki er eitthvað af póloni, og nú
þykir líklegt að krabbamein í lungum
reykingamanna megi meðal annars rekja
til póloneitrunar. ntfípi
MYNDBROT
Átt þú í fórum þinum skemmtilega mj-nd, t.d. af atburði, stað,
húsum. dýrum eða fólki, sem gaman væri að birta i Myndbroti?
Ef svo er þvi ckki að senda okkur hana til birtingar og leyfa
lcscndum HLB að njóta hennar líka?
Vindmylla
Sú var tíðin að vindrafstöð var áflestum
sveitabœjum, til Ijósa og geymahleðslu.
Hér er mynd af einni slíkri, erlendri, sem
kannski kveikir minningar hjá einhverjum
sem man eftir svipaðri hér á landi.
450 Heima er bezt